Þá er bara að koma helgi og ekki hefur krafturinn við að pakka verið alveg eins og lagt var upp með í upphafi viku. Ó mæ god. Um helgina er ég svo löglega afsökuð en núna bara eftir um 2 tíma hoppum við upp í hálandalestina til Aviemore í helgarfríið okkar. Strákarnir eru í skólanum í þessum skrifuðu orðum og ég er að klára að henda ofan í tösku fyrir okkur. Það er aðeins að hlýna, búið að vera ægilega kalt undanfarið, og nú held ég að vorið sé bara að koma. Við Danni vorum bæði lasin um miðja viku, það er alltaf sama sagan þegar kólnar aðeins og þetta verður eins og í frystiskápi hérna inni þá leggst einhver í slappelsi. Gvvuð hvað það verður himneskt að komast í almennilega kyndan kofa, þar sem jafnt hitastig mun haldast kvölds, morgna og miðjan dag. Þvílíkur lúxus.
Annars er lítið að frétta, við fylgdumst með vali á breska júróvisjon laginu um síðustu helgi og boy o boy, lengi getur vont versnað. Þetta er einhver sá sykursætasti hópur sem sést hefur um langt skeið, flugáhöfn nánar tiltekið, sem syngur um the European flight, rúllandi flugfreyjutöskum og kaffivögnum fram og til baka um sviðið. Svo er víst allt búið að vera vitlaust yfir því að það voru einhverjar bakraddir að gaula sem sáust ekki á sviðinu. Svona eins og Milli Vanilli hérna í denn. En jæja, er í Evróvisjon gír og horfði líka á íslenska myndbandið og fannst það glatað með stóru G-i. Botna ekkert í því.
Myndin hér að ofan er af Jakóbínunum sem bekkurinn hans Gísla er búin að mála og skreyta stofuna með. Gísli á þennan hérna, King George II. Ég var nefnilega á síðasta foreldrafundinum í Sciennes Primary í gærkvöldi. Buhuuu, skólinn sá er kvaddur með trega. En ágæti hans hefur verið margoft rætt á þessari síðu og óþarfi að tíunda það frekar. Nú er best að drífa sig því ekki megum við missa af lestinni.
Luv, Hilla

3 ummæli:
Góða ferð svítý og eigið yndislega helgi. ISS
Góða ferð ljúfastan. Ég hlakka til að heyra ferðasöguna. :)
KNús, Elísa
Vona að þið hafið það gott krúslur og njótið síðustu daganna í Skotlandinu.
Ásta
Skrifa ummæli