miðvikudagur, mars 28, 2007

The best smallest country in the world...



....er slagorð sem mætir manni á flugvellinum í Glasgow þegar maður stígur fæti á skoska jörð og ég verð að segja að gamla frón fær harða samkeppni. Ekki nóg með að Edinborg sé slíkum töfrum gædd að það er erfiðara en orð fá lýst að slíta sig frá henni, eru hálöndin í norðri alveg himneskur staður. Verst að ég skyldi uppgötva þetta síðarnefnda svona seint.En betra er seint en aldrei eins og sagt er og við ætlum að leigja bíl þegar mamma og pabbi koma og bruna þarna norður eftir aftur með þeim og Arnari og co. Við áttum semsagt alveg frábæra helgi í Aviemore, veðrið sem hafði verið víst hundleiðinlegt framan af viku, var alveg dásamlegt yfir helgina, sól og fínt.

Aviemore er bara lítið þorp, voða sveitó og huggulegt. Við náðum að fara í fallegan skemmtigarð í næsta þorpi og svo upp í Craingorm fjöllin þar sem við trilluðum upp rúma 1000 metra í fjallalest. Hin eiginlega hálandalest gengur bara yfir sumartímann og því misstum við af því að bruna í gamalli gufulest um Harry Potter slóðir. Kannski seinna. Nú jæja, svo náði Danni að komast á fjórhjól og mátti litlu muna að hann keyrði bara beint á hálandakusurnar þar sem hann geystist um grundir á tryllitækinu. Og svo var bara kominn tími til að halda heim á leið.

Ég var búin að einsetja mér að dæla hér inn gullkornunum af miklum móð svona síðustu vikurnar en það fer nú lítið fyrir því. Dagarnir fljúga áfram og pakkelsið gengur hægt en gengur þó. Ég hef töluvert verið að fylgjast með þjóðmálaumræðunni heima undanfarið enda alveg brilljant að geta að pakkað og puðað undir Silfri Egils eða Kastljósinu í gegnum netið. Maður þarf jú víst að fara að gera upp hug sinn fyrir kosningar sem er frekar erfitt að þessu sinni verð ég að segja. Eftir nokkra umhugsun get ég nú ekki tekið undir þá umræðu að mér finnist kostir mínir eitthvað aðþrengdir að vera íslensk kona. Þvert á móti. Af öllu því fólki sem ég hef kynnst (og er það nú töluverður hópur!!) hér í skoska lífinu mínu, hef ég engar konur með börn hitt hér aðrar en íslenskar er hafa ferðast á milli landa til að stunda nám. Langflestar þær íslensku kvenna er ég hef hér kynnst í námi hafa verið fjölskyldukonur og þar af erum við allavega þrjár hér samtíða er lögðum upp í þetta einar með börnin okkar. Það væri í raun gaman að sjá einhverja alþjóðlega rannsókn á þessu en ég þori að fullyrða að miðað við höfðatölu þá höfum við, ja örugglega eitt hæsta hlutfall mæðra í námi í heimi. Það hlýtur að þýða að samfélagið geri okkur þetta kleift, þó ég ætli nú ekki að fara að halda því fram að einhver verði feitur af námslánunum svo sem. Ofan á það, eru þau viðhorf ríkjandi á Íslandi að þú sért þinnar eigin gæfu smiður og fátt sé ómögulegt nema þínar eigin girðingar standi í veginum. Að ég held, alveg jafnt fyrir konur og karla.

Í þessu samfélagi sem við erum nú að kveðja, er "socio-economic" bakgrunnsbreytan með mun meira forspárgildi um almenna velgengni einstaklinga, en við blessunarlega þekkjum enn. Mér er minnistætt samtal er ég átti við einn samnemanda minn, breskan strák á sama tíma í fyrra en við vorum að ræða pólitík. Orð hans voru eitthvað á þessa leið: "You make few choices in life but more or less, life picks you" og hann var svolítið raunalegur, svona í þeim anda sem er einkennandi fyrir það að hamingjuvísitalan hér í landi hefur staðið í stað í hartnær þrjá áratugi. En er það þannig? Velur lífið okkur eða veljum við lífið? Mér finnst ég svo sannarlega hafa átt valkosti og flestir ef ekki allir í kringum mig tel ég.

Kannski er Ísland best í heimi eftir allt... Eftir þessar vangaveltur ætla ég hinsvegar að venda mínu kvæði í kross og lofsyngja efnishyggjuna núna eftir hádegi, marsera niður í bæ og kaupa eitthvað fínt í nýja húsið mitt.
Ást og kossar þangað til næst,

Hilla.

P.s. er búin að vera að hlaða nýjum myndum á barnanetið undanfarið fyrir þá sem vilja kíkja...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sammála síðasta ræðumanni ;)Og það er nú alveg satt hjá þér, það er fátt sem stendur í vegi okkar nema okkar eigin andlegu takmarkanir/girðingar. Einhvers staðar heyrði ég því fleygt að.."The sky isn´t the limit, your mind is". En nóg af djúpspeki, skemmtu þér vel í búðunum ;)
Kveðja, Magga

Nafnlaus sagði...

heyr heyr, Hildur hálandahetja, ég fæ líka endalaust hrós fyrir eljuna að hafa lagt út í að flytja ein til Embru með börnin tvö og skal ég segja þér að ég er stolt af okkur!! Og í anda the Secret þá er það ljóst að við veljum lífið að miklu leyti. Þetta gamla góða - you always have at least two choices in life - eins og það að ákveða á morgnana að fara brosandi á fætur en ekki í fýlu og svo koll af kolli, hlægja að því sem útaf ber og læra af því en halda ótrauður áfram. Við værum svo sannarlega ekki þar sem við erum í dag ef við hefðum hlustað á efasemdarraddir fólks í kringum okkur. Hlakka til að sjá þig á klakanum þó vissulega hefði ég mikið frekar vera að koma að hitta þig í Embrunni heittelskaðri.

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Heyr heyr, mikið er ég innilega sammála bæði bloggara og kommenterum, jafnt í sýn á lífið og Eiðinaborg (eins og Hermann heitinn próf. Pálsson við Edinburgh Uni nefndi hana). Allt lífið erum við að velja, líka þegar við veljum að gera ekki neitt. Og þótt sumt sé öðru vísi en kona hefði kosið þá má að minnsta kosti alltaf velja sér viðhorf að eigin smekk, hvað sem öðru líður :o) Nú er Snúðurinn minn á leið til the best smallest á morgun, og guttar af Montpelier velkomnir að heilsa á hann ásamt mömmu sinni, gefist þeim tími til fyrir pakkelsi.