En jæja... að öðru. Ég hætti náttúrulega að vinna á föstudaginn og var eiginlega bara hálfleið yfir því þegar til kom. Samstarfsfólkið mitt var svo elskulegt að ég var voðalega meir yfir þessum starfslokum. Það streymdu til mín litlar gjafir og kveðjukort í síðustu viku og svo höfðu mínir nánustu samstarfsmenn undirbúið litla kaffissamkundu á föstudagsmorguninn. Þar fékk ég köku, þetta voða fallega kort sem margir höfðu skrifað í persónulegar kveðjur og fallega hálsfesti og klút til að tryggja að ég yrði smart í nýju vinnunni. Þegar yfirmaðurinn minn kom svo strollandi með blómvönd og 'paid a professional tribute' um mitt ágæti fór ég algjörlega í slaufu. Þetta var eitthvað svo final að kveðja þau öll og svona af því að maður er nú að fara úr landi. Ég var ægilega heppin af fá þessa reynslu að vinna á þessum stað með þessu frábæra fólki, það var bara alveg ómetanleg viðbót við lífið okkar í Skotlandi. Þegar ég hugsa um það, gat þetta ekki verið betra, því þetta er búið að vera svo margþætt. Maður er búin að vera útlenskur nemi í háskólanum og kynnast því sem því fylgir, vera foreldri í skosku skólaumhverfi og kynnast foreldrum og börnum og svo að vera hér á vinnustað. Þrefaldur bónus.
En aftur jæja, ég get nú samt ekki sagt, að þó vissulega hafi það verið tregafullt að kveðja Children in Scotland á föstudaginn, að þá hafi mig langað í vinnuna í morgun. Fannst það eiginlega bara voðalega notalegt að fara með Gilla minn á hjólinu....og háma í mig restina af Mæðradagssúkkulaðinu sem ég fékk í rúmið í gærmorgun. Þeir voru svo miklar ægilegar dúllur við mömmu sína, synirnir mínir, búnir að fara sjálfir með sinn eigin aur og kaupa sitthvorn konfektkassann fyrir mömmu gömlu og færðu henni ásamt mæðradagsblöðrum. Það var nú alveg rúsínan í pylsuendanum eftir að vera mærð alveg upp til skýja þarna við starfslokin og núna finnst mér ég náttúrulega vera alveg hryllilega frábær.
They certainly make it all worthwile, þessar elskur.
Ég ætlaði að setja inn myndir frá helginni en einhverra hluta vegna á ég í vandræðum með að hlaða úr vélinni. Smelli inn myndum um leið og þetta er komið í lag. Og já, svo er ferðalagið í sveitina um næstu helgi. Nú er um að gera að vera nógu duglegur að pakka í vikunni svo maður geti farið í reisuna með góðri samvisku....
Luv, Hilla

3 ummæli:
Drottning eins og þú átt nátturulega bara skilið að fá höfðinglegar kveðjur að starfslokum. Þeir vita greinilega hvað þeir eru að missa og eiga örugglega eftir að sakna þín! Ég hlakka til að hitta þig reglulegar í saumó! knús og kram Ásta
Njóttu þess að strolla um borgina og hafa það notalegt með Gill og Dann. Tíminn líður hratt á gervihnattaöld!
Hlakka til að sjá ykkur krúslan mín.
Muuhhhummmmm ég er eitthvað svo agalega meyr þessa dagana að ég sit hér með tárin í augunum að lesa þetta. Mér hefur alltaf fundist svo erfitt að kveðja.....ég hefði nú bara farið að skæla yfir öllum herlegheitunum.
Knús my dear ISS
Skrifa ummæli