
Var rétt í þessu að enda hálftíma símtal við starfsmann Scottish Rail og náði að bóka helgarferðalag fyrir okkur tríóið til Aviemore, smábæjar í norðrinu sem er víst voða gaman að heimsækja, segja þær innfæddu sem vinna með mér. Ferðalagið í hálandalestinni er
víst ein og sér næg ástæða til að skella sér og ku vera líklegt að ægifallegt landslagið á leiðinni hafi verið fyrirmyndin af lestarleið galdradrengins Potter í lærisetrið góðkunna. Myndum þetta allt í bak og fyrir náttúrulega.
víst ein og sér næg ástæða til að skella sér og ku vera líklegt að ægifallegt landslagið á leiðinni hafi verið fyrirmyndin af lestarleið galdradrengins Potter í lærisetrið góðkunna. Myndum þetta allt í bak og fyrir náttúrulega. Nú skipuleggur maður tímann sem eftir er út í ystu æsar. Er búin að gera lista yfir things to do og það er töluvert sem maður á eftir að öpplifa áður en hægt er að kveðja Skotlandið.
Listinn er einhvern veginn svona og ekki tæmandi, ég tek það fram:
-Royal Botanic Gardens í Edinborg (skammast mín geðveikt en er ekki búin að fara)
-Arthur Seat, ef nokkur kostur er á páskadagsmorgun þegar egg eru látin rúlla niður sætið að gömlum sið.
-St. Andrews- ómissandi ein ferð þangað, ekki reyndar sú fyrsta
-Stirling kastali- er búin að vera of lengi á leiðinni þangað
-Ludon kastali á vesturströnd Skotland- einhver tívoligarður sem gormarnir verða að komast í.
-Heimsókn til Hálandahöfðingjans í Glenbogle - pílagrímsferðalag múttu gömlu í kastala Hálandahöfðingjans. Held að mamma geri ráð fyrir því að við hele familien birtumst þá í næstu þáttaröð BBC. Þurfum helst að gista þarna yfir nótt.
-Writer´s Museum í Edinborg
-Hjólaferð meðfram kanalnum
-Túrbó verslunarleiðangur í Bobbi Brown á Princess Street
...auk nokkurra hjólaferða og göngutúra á alla uppáhaldsstaðina okkar innan borgarmarkanna....Svo þarf maður víst að pakka og koma í skip og þrífa og vesenast sem er að sjálfsögðu far less enjoyable en það sem ég er búin að tíunda að ofan.
Ó mæ god. Eins gott að ég á bara tvo daga eftir í vinnunni....
Luv, Hilla hálandapilla.

5 ummæli:
Spennó plön stelpa mín! þetta er stórt og skemmtilegt prógramm.
Njóttu tímans sem eftir er. Það tekur við nýr og skemmtilegur kafli í næsta mánuði.
Knús og kveðja, Elísa
ps. Viltu láta vita áður en þú ferð og hittir frú Brown. Blikk blikk.
Sælar skvís
Þetta er ekkert smá flottur listi, vonandi að þið náið að komat yfir sem mest.
Annars er voðalega notaleg tilfinning að vita af ykkur á heimleið. Við getum farið að lunchast og svona á daginn, enda nánast í næsta húsi.
Ég kem með í lunch! :)
ekki spurning Elíze þú mætir í lunchið, svo getum við skipt á svona career ráðum og bobbyast og svona....gaman gaman
rakst hér inn fyrir tilviljun ,átti einu sinni heima í þessari góðu borg. Mikilvægt að þrífa tappa í vöskum og baði vel, leigumiðlunin skoðar þá ; )
Heiur
Skrifa ummæli