mánudagur, janúar 29, 2007

Manic Monday...


Jæja, þá er nú komið að því að maður slengir inn hér einhverjum fréttum. Það er nú alveg af nógu að taka, ég átti gott kvöld í fyrirkreppupartýinu og fylgir hér mynd af mér í skrúðanum ásamt einni samstarfskvinnu. Ég var eins og Grimmhildur Grámann þegar ég mætti í geimið. Alveg grínlaust. Með sígarettumunnstykki, fjaðrir, perlur og í kápunni minni með loðhettunni. Þegar ég mætti á barinn (sem átti að hittast á fyrir partýið) í öllu mínu veldi sátu allir bara penir og enginn í fjaðraham. Mig langaði doldið að gufa upp, svona með einu góðu magic trick. Þegar á leið fóru svo allir að tína á sig draslið upp úr einhverjum pokum en þá var ég búin að sitja drykklanga stund eins og einhver fígúra í miðjum hópnum. En jæja, ég fílaði þetta outfitt alveg í ræmur og mun grípa hvert tækifæri til að skreyta mig 20's style héðan í frá. Síðasta vika var svo algjör nightmare vika í vinnu (skilafresturinn ógurlegi farinn að setjast aðeins á sinnið) en síðan gerðist nú bara ekki minni viðburður en það að mín kæra Halla tók sér stutta pásu frá bjúrókrötunum í Brusselby og heiðraði okkur með nærveru sinni um helgina. Það var æðislega huggulegt og við hamingjuðumst alveg helling yfir eigin skemmtilegheitum enda er Hallan stuðpinni á heimsmælikvarða eins og kunnugir þekkja. Þess ber myndin hér til hægriágætlega merki en á henni eru Halla og Sandra í léttri sveiflu næstsíðasta kveld nýliðins árs.


Ég hef ekki miklu að deila hér nema þessu myndasjóvi. Maður bara vinnur, vaskar upp og er á sloppnum. Þannig er klukkustundunum í vöku best lýst. Annars er nú að hlýna hérna og veðrið bara alveg með besta móti. Nú fer að líða að því að strákarnir fara í annarfrí í skólanum og þá ætla ég að taka mér nokkra frídaga líka. Júhúúúúúú, meira frí, meira frí......
Óska ykkur góðrar vinnuviku...

Lov, Hilla.

4 ummæli:

Unknown sagði...

Takk fyrir mig enn og aftur.. þetta var æði...!

Nafnlaus sagði...

Gaman að heyra frá þér ljúfasta ljúfan!
Sé þig í anda mín kæra, á barnum með varalitinn og fjaðrahaminn... muuhahahahahaaaa..... ! Þú hefur verið aðal 20´gellan. Ekki hætta á öðru. Þú flytur þetta trend svo heim og við höldum svo þema-partý reglulega. Hugmynd! :)
Later darlingur.

Nafnlaus sagði...

Sæl Hildur Sig,
Þú manst kannski ekki eftir mér en Dísa heiti ég og var með þér í barnaskóla fyrir "örfáum" árum síðan, þér og Eddu :)
Ég rakst inn á bloggið þitt fyrir tilviljun, var meira að segja búin að lesa nokkuð marga pósta áður en ég þekkti þig. Mig langaði bara að kvitta, hrósa þér fyrir dugnaðinn og óska þér velfarnaðar.
'Eg er sjálf í master í útlöndum - á að vera að skrifa lokaritgerðina as we speak ....

Gangi þér vel og kærar kveðjur
Dísa frá Breiðholtsskóla

Nafnlaus sagði...

Sælar skvís

Flott að vanda, ég styð hugmynd Elísu verðum að yfirfæra þetta trend til landsins.....verðum með þema partý í bunkum á komandi árum.

Er annars eitthvað að frétta? knús Inga