föstudagur, janúar 19, 2007

'Goodbye to the roaring twenties'

Er yfirskrift á afmælisfagnaði miklum er mér er boðið í annað kvöld. Ein samstarfskona mín er nefnilega að halda upp á 29 ára afmælið sitt með þvílíku pompi og pragt að annað eins hefur bara ekki verið kunngjört um langan tíma. Þetta verður 'night of dancing, drinking and good fun before the Great Depression of the thirties'. Það dugar ekkert minna en Hilton hótelið hér í borg fyrir samkunduna og dresskódið? Jú, hvað nema þriðja áratugstískan með flapper, fjöðrum, höttum, hönskum og det hele. Samstarfsfólkið mitt ætlar alveg að hópast í geimið og eru búin að vera að setja saman sjatteringuna alla vikuna. Ég má náttúrulega alls ekki missa af þessu en á ekkert viðeigandi nema gamla perlufesti og rauðan varalit. Og er náttúrulega að vesenast í þessu á síðustu stundu að alíslenskum sið. Ef einhver les þetta af Edinborgarfélögum mínum sem telur sig luma á einhverju fataskápnum sem gæti gengið við þetta tilefni yrði ég afar þakklát (síminn minn er 229 1938 by the way). Ekki það að ég búist svo sem við þetta sé sú tegund klæðnaðar og fylgihluta sem fólk sér ástæðu til að flytja með sér milli landa. En maður veit aldrei.

Annars finnst mér þetta alveg brilljant hugmynd hjá gellunni að fagna þessum tímamótum áður en kreppa fjórða áratugarins tekur við. Verst að ég er orðin of gömul til að stela henni.

McHilla 20's-Pilla.


8 ummæli:

Unknown sagði...

Ég er búin að reyna að kommenta hér og ekkert gengur.

Testing-one-two-testing!

Unknown sagði...

Jæja... það tókst loksins.
Hvernig væri að halda bara game í tilefni: " Goodbye to the roaring thirties" ?
Hvernig var svo í afmælinu í gær?

McHillary sagði...

Já það er kannski ekki galin hugmynd...fjórði áratugurinn hefur ekki verið mikil kreppa mín megin, altént ekki fram að þessu og því frekar roaring bara ef eitthvað er.
Afmælið var annars alveg ágætt. Rosa mikið tilstand samt fyrir eitt partý. Er alveg á felgunni eftir þessa helgi. Og Danni minn ennþá með í eyrunum og ég á leiðinni með hann til læknis. Ekki nógu gott mál.
Ciao, eigðu góða vinnuviku framundan.

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Halló esskan mín - þessir kjánar sem eru ekki einu sinni orðnir 30 ára vita nú bara ekki hvað þetta er allt svo MIKLU auðveldara og skemmtilegra þegar kona er búin að átta sig á hvað skiptir máli og hvað er hvað í þessu lífi ;o)

Takk fyrir póst plús komment og vona að þú komist i kaffibollann eftir vinnu á þriðjudaginn, held honum allavega volgum fyrir þig!

Nafnlaus sagði...

Jæja vonandi öll veikindi afstaðin hjá ykkur.
Hér eru allir glápandi á handbolta og talandi um handbolta. Strákarnir OKKAR fóru að standa sig eins og hetjur eftir sneypulegan leik við einhverja útlendinga og gáfu svo vinunum okkar Pólsku smá séns í kvöld vegna viðskiptasamninga um Prins Póló.... þú kannski fylgist með þessu af sama þjóðarrembingi og við?? Annars er maður orðinn svaka fær í að syngja þjóðsönginn því hann er spilaður allt of hratt þarna úti og fín ögrun að kunna hann "reiprennandi"! Hin mesta skemmtun sem sagt. Ég hefði kannski átt að setja þessa færslu í bloggið mitt??? lol jæja en hafðu það gott krús og mundu þú ert aldrei of gömul ...!!!

Nafnlaus sagði...

hæhó!
við brædongörls vorum að hugsa um smá hitting/útstáelsi á laugardagskveld, kannski sushi og hvítt? intereeststeed? heyri í þér í kvöld, Lí.

Unknown sagði...

Jæja.. á ekki að skella sér út í kvellen?

McHillary sagði...

Hæ my dears! Jiii, það er svo mikið að gera hjá mér í sósíal lífinu að það er allt að verða vitlaust!! Hallan mín skaust yfir til mín um helgina frá Brusselbæ og við erum að fara út á Montpeliers og allan pakkann....updeita fréttum síðar!! Túrúlúúúú