Jæja gott fólk. Bara aftur mánudagur. Gvvuð hvað þessar færslur hjá mér eru eitthvað óspennandi. Skjúsmí. Ég vil taka það strax fram að ég samsama mig ekki með þessari mynd af nútímamömmunni. Myndi hinsvegar alveg vilja vera svona yfirveguð og smart (og meira með lóðin í annarri líka). Ég sjálf er töluvert langt frá ídealtýpunni og búin að vera á mörkum þess að leggjast í flensu um nokkurra daga skeið. Ég ákvað nú að hressa mig aðeins við þegar ég kom úr vinnunni í dag, litaði á mér hausinn og lushaðist. Maður verður kannski aðeins skárri á morgun fyrir vikið.
Það er lítið að frétta, dagarnir líða hver af öðrum og það líður að því að verkefnið ógurlega klárast. Jiii, hvað næsta helgi skal verða næs. Síðasta helgi var með eindæmum róleg, Gísli fór í sitt fyrsta og langþráða 'sleep over' til vinar síns sem átti afmæli og komst að því að heima er best og er ekkert á leiðinni í næturgistingu í bráð. Mömmunni er nú bara svolítið létt við það enda hefur alltaf óskapa áhyggjur af drengjunum sínum. Reyndar svo miklar að Daníel vill meina að það sé orðinn félagslegur barrier hvað ég er stíf á því að leyfa þeim að strjúka um frjálst höfuð utan skólatíma. Hummm, það er náttúrulega ekki nógu gott en maður þorir ekki að taka neina sjénsa hérna í útlandinu, það er nú bara þannig.
Þetta hefur verið til umræðu í fjölmiðlum hérna í vetur hvað foreldrar eru paranoid með börnin sín. Það á reyndar að nokkru leyti rætur í því að haustið 2005 hvarf 11 ára drengur hér í bæ nálægt Edinborg á leiðinni í skólann og kom ekki heim til sín aftur. Síðan þá hefur umferð aukist svo um munar í kringum skólana og reyndar svo mjög að það hefur verið nokkuð til umræðu að með þessu séu foreldar að stórauka hættu á umferðarslysum. Krakkarnir læri heldur ekkert að bjarga sér í umferðinni sem gangandi vegfarandur því þau séu nánast keyrð inn í skólastofu. Í kjölfarið var einnig tekið upp öryggiskerfi í öllum skólum í Skotlandi sem virkar þannig að ef barnið er skráð absent án þess að hringt hafi verið og látið vita um fjarvist fær maður hringingu frá sjálfvirku kerfi sem lætur vita af fjarvistinni. Strákarnir labba sjálfir í skólann á morgnana og mér brá því heldur betur í brún á föstudagsmorguninn þegar ég fékk hringingu frá maskínunni um 10 leytið sem tilkynnti mér að Gísli hefði ekki mætt í skólann um morguninn enda hafði ég skilið við hann þar sem leiðir okkar skiljast á morgnana þar sem hann heldur sína leið og ég mína. Eftir tæpar 10 angistarmínútur þegar konurnar á skrifstofunni hlupu af stað til að athuga með drenginn minn fékk ég að vita að kennarinn hafði gert mistök í skráningunni.

Frekar óskemmtilegt en ég átti einmitt svipaða reynslu í haust. Þá bauð ein mamman í bekknum hans Gísla honum far úr skólanum án þess að láta mig vita. Ég sem var komin á hjólinu til að ná í stráksa, rétt missti af þeim út í bíl og hjólaði fram og til baka um hverfið í 45 mínútur. Það var náttúrulega eins og jörðin hefði gleypt barnið. Gísli hafði aldrei fengið far áður og þetta var eitthvað alveg tilfallandi því þetta fólk býr ekkert nálægt okkur. Ég var svo ráðalaus og ein í þessi þrjú korter að tilfinningin var ólýsanleg. Ég endaði á því að fá alveg break down á skólaskrifstofunni, skældi hástöfum og heimtaði að það yrði hringt á lögregluna. 'Calm down' sögðu konurnar á skrifstofunni sem leist ekki á blikuna og skólastýran snérist út í sinn fjallabíl til að hefja leit að Gíslanum mínum. Jæja, rétt í því fékk ég hringingu, þá var hann kominn heim, mamman sem gerði mér þennan grikk hafði lent í umferðartöfum en mestu máli skipti náttúrulega að lillinn minn var heill á húfi. Ég var hinsvegar í marga daga að jafna mig eftir þetta trauma.
Það er svo sannarlega ekki tekið út með sældinni að vera single mom í UK. Í morgun fékk ég svo hringingu frá leigumiðluninni minni og nú þarf landlordinn minn víst íbúðina til eigin afnota í lok júlímánaðar. Það er nefnilega það. Ef við myndum vera áfram þyrftum við því að leita að þriðja heimilinu í Edinborg. Held að þetta geri nú út um það að við bætum við þriðja vetrinum. Þannig að ég held að það liggi þá fyrir að við erum á leiðinni heim ..... einhvern tíma fyrir lok júlímánaðar. Habblaha...
Hilla Úttaugaða-Pilla

13 ummæli:
úff púff, enda er Vilborg á leiðinni heim, og Sigga Dóra og Lína og líklega brósi þinn líka er það ekki og ég verð farin... ekkert meira að gera hér ;) wink wink.
Ég fékk alveg tár í augun ég samsamaði mig svo sterk við þessa mynd af þér að leita að barninu þínu í stórborg í útlandinu - versta martröð sem ég get ímyndað mér!
Oh guð hvað ég skil þig vel, ég get meira að segja tekið svona panikköst, þegar drengurinn týnist í Árbænum....þó að mér vitandi hafi ekki nein börn horfið þaðan á dularfullan hátt. Þetta er bara móðurhjartað sem slær svon sterkt. Við ráðum ekkert við það.
Leiðinlegt að heyra með íbúðina en ég brosti nú aðeins út í annað, þar sem það er nú ekkert leiðinlegt að fá ykkur aftur á klakann. Knús og kram Inga
Jahérnahér mín kæra. Það er nóg um að vera.
Segi það sama og stelpurnar. Hræðileg tilfinning þegar svona kemur upp með barnið manns. Ég hef nú samt ekki lent í svona krítískum aðstæðum. Maður veit aldrei.
Flott að þið hugið að heimför ;) Bíð eftir fyrsta þemapartý.
Huuurðu.. eitt mál. Manstu hvað yngingarmaskinn heitir frá Lush. Þessi sem á að geymast í ísskápinn? Ekki vanþörf á að skafa nokkur ár af minns!
Lets bí in bend.
Ju ég verð að drífa mig í að gera BB innkaupalistann!!
Já segðu ekki óskastaða að vita ekki hvað hefur orðið um barnið manns!
knús í krús, Ásta pásta
Hæ mamma,
Svaka flott síða var að skoða bloggið svaka cool!
Elska Þig!!!

Sorry,
Það var mistök að þetta var sent 4um sinnum
hvar er mánudagsbloggið?? komdu svo í kaffi í vikunni eða eitthvað. er með fyrirlestur á fimmtudag, hvernig væri að hittast eftir það?
Lí
Ekkert smá langbestur hann Gísli þinn:D Svona eiga góðir synir að vera:)
Vona að taugarnar séu ekki eins þandar og allt sé fallið í ljúfa löð og allir rólegir. Annars bara Risaknús og nú verður þú að lesa fréttirnar góða mín;)
kv. Ásta bumbupásta
Maður er bara orðinn stressaður!! Engin færsla og það eru að verða komnar 3 vikur.. og enn með þandar taugar...
Vona að þú sért bara svona slök að þú sért ekkert að stressa þig á að blogga... en komdu með virkilega slakandi fyrirsögn þá næst:þ
kv Ásta
Skrifa ummæli