miðvikudagur, janúar 17, 2007

Hálfnuð vinnuvika...


Well ó well. Það er bara gott að vera komin í venjulega rútínu eftir allt þó skrefin hafi verið pínu þung upp á skrifstofu á mánudagsmorguninn. Mér þykir orðið voða vænt um samstarfsfólkið mitt. Upp til hópa mikið prýðis fólk sem tók vel á móti mér og lofaði mikið hinar íslensku súkkulaðirúsínur sem ég hafði meðferðis. Þarf endilega að socialisera aðeins meira svona utan vinnu við mannskapinn. Hef tvö tækifæri á næstu vikum og nú er bara að rífa sig upp á ragggatinu og smella sér með í geimið.

Ég verð nú að segja yfirmanni mínum til hróss að hann er einstaklega skilningsríkur þegar kemur að veikindum. Strákarnir eru búnir að vera lasnir til skiptis eða saman nánast síðan ég byrjaði í september. Þetta er ekkert búið að vera neitt venjulegt heilsuleysi síðan í haust. Veit ekki svei mér þá hvað veldur, nema kannski ef vera skyldi skoski hús-kuldabolinn og þessar hitasveiflur innanhús. Í dag er sem sagt 3ji vinnudagurinn minn á samningstímanum og strákarnir voru báðir veikir, Gísli með kvefpestina sem var að taka sig upp aftur og Daníel með eyrnabólgu. Karlinn er aldrei með neitt vesen yfir þessu þó ég sé verkefnaráðin og þarf helst að mæta svona nokkuð vel á samningstímanum til að náist að klára á tilskildum tíma. Reyndar er reyndar aðalmarkmið samtakanna að vinna að barnaheill og því kannski væri það nú hálföfugt ef starfsfólkið fengi ekki svigrúm til að sinna eigin börnum þegar eru problem. En ég er nú dulleg og get unnið stundum að heiman og mætt hálfan daginn eins og ég gerði í dag. Ef guð lofar næ ég heilum degi á morgun og út vikuna.

Svo ég haldi áfram að röfla um vinnuna af því að ég hef ekki um neitt annað betra að tala þá er þetta frekar massivt verkefni sem mér hefur verið falið og það fer nett um mig þegar ég hugsa um skilafrestinn. Ég er með sama skilafrest fyrir minn hluta sem tekur út heilsdagsvistun í öllu Bretlandi og hinir sem eru að vinna að þessu í 5 öðrum Evrópuríkjum og byrjuðu í nóvember!!!Djísús. Sjáum hvað setur, ég reyni að missa ekki svefn yfir þessu. Góðu fréttirnar eru þær að það er búið að orða við mig vinnu þarna áfram fram á mitt sumar ef ég vil. Er ekkert búin að skuldbinda mig í það en það er vissulega gott að þurfa ekki að hafa áhyggjur af atvinnuleysi.

En jæja, nú er familían hér bara að fara að hátta, bræðurnir eru orðnir ansi vel þreyttir á hvor öðrum eftir daginn og mamman myndi þiggja smá stund í friði og ró...en verður sennilega ekki að ósk sinni nema lufsast líka inn í bedda.


Góða nótt,

Hilla.

2 ummæli:

Unknown sagði...

Habbblahaa.. nóg að gera í vinnunni! Það er flott að heyra að þú hefur vinnu fram á sumar ef þú vilt. Nú tekur þú þér góðan tíma í að skoða stöðuna. Spennandi tímar! :)

Skilaðu batakveðjum til drengjanna.

Nafnlaus sagði...

Knús til þín. Hugsum til þín í kvöld þegar hávaðasömu stúlkurnar hittast :)
Gulla