sunnudagur, janúar 14, 2007

Nýtt ár í henni Edinborg...

Jæja ekki hefur maður verið að drepast úr blogggleði. Ég verð að herða mig upp svo ég haldi hér einhverjum heimsóknum.

En hvað er títt? Við komum hingað heim á þriðjudaginn, Gíslinn var frekar lufsulegur með hita og kvef og hefur ekkert enn farið í skólann en ætti að komast á morgun, insjallah. Við höfum því átt frekar náðuga viku hérna heima, rigningin hefur lamið rúðurnar á morgnana þegar Daníel hefur þurft að vakna og við Gillinn höfum velt okkur á hina hliðina. Verrrí næs. Veðrið hefur nefnilega verið afleitt alveg, rok, rigning og leiðinlegheit og við höfum lítið sem ekkert farið út.

Sælan er samt úti á morgun því þá þarf ég víst að mæta í vinnuna. Ég er nú töluvert endurnærð eftir þennan frímánuð. En það verður örugglega fínt að byrja aftur, þó tilhugsunin sé pínu erfið verð ég að viðurkenna.

En jæja, það var gott að koma aftur í Skotlandið en við erum nú samt töluvert jákvæðari fyrir því að flytja heim aftur eftir þetta ferðalag. Þið voruð svo ferlega skemmtileg að maður bara getur ekki séð það fyrir sér að vera í burtu of lengi. Við eigum nú eftir að melta þetta allt saman á næstu vikum og mánuðum og sjá hvernig þetta þróast allt saman þegar fer aðeins að vora.

Þetta er frekar þurr færsla, ég geri mér grein fyrir því en er eitthvað svo skrambi andlaus. Erum enn að lufsast með tekönnur á náttfötunum og erum að reyna að ákveða hvað við eigum að gera við daginn. Það verður mest lítið trúi ég.
Ég þarf aðeins að snyrta pleisið til því landlordinn ætlar víst að kíkja hingað á morgun. Arnar brósi var svo eitthvað að minnast á að hann hyggðist henda í eins og eina köku og ég gæti fengið eina vöfflu að launum ef ég lánaði honum járnið mitt. Held ég taki þeim díl bara.

Luv þangað til næst,

Hilla.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Velkomin "heim" :o).
Vona að heilsan fari að skána á bænum.

Nafnlaus sagði...

Já ansi var ég léleg að lufsast rétt á meðan þið voruð á landinu. Þér að segja Hildur mín þá lít ég miklu betur út svoleiðis með roð í kinnum og kjaftar á mér hver tuska! =I´m back! Vantar bara aðeins frú Bobbi undir augun!!!! svei mér ef ég fer bara ekki að blogga svo aftur .. það hefur ekki gerst síðan í fyrra! Þannig að tóm jákvæðni á nýju ári í snjósköflunum hlýtur nú að þýða að þetta ár verði bara nokkuð skemmtilegt:) knús þar til næst Ásta pásta

Unknown sagði...

Ju minn eini hvað frú Brown er inn hjá minns þessa mánuðina. Merkilegt að þetta skuli ekki vera selt hér heima. Bisness-hugmynd?! :)

Ekkert nýtt héðan.

Yfir og út.

Nafnlaus sagði...

Já viðskiptafræðingar OPNIÐ AUGUN! :) miss Brown er algjört möst.

McHillary sagði...

Hæ elskurnar.
Já veit ekki hvernig ég væri hefði ég ekki kynnst Bobbi, það væri hroðalega upplit. Annars allir hressir hér nú, byrjuð að vinna og allt á fullu. Fer alveg að blogga um þetta allt. Er bara svo hræðilega löt núna.
Over and out.

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Velkomin heim elsku Hildur, líttu endilega einn latte til okkar eftir vinnu í vikunni þegar vel hentar. Hér er ró og hér er friður og svo framvegis ;) og fuglar og íkornar í garðinum svo tíðir gestir að þetta er eins og að hafa stöðuga Richard Attenborró mynd í beinni fyrir utan konservatoríið.