
Jæja gott fólk. Þá er maður búin að jafna sig eftir útskriftarherlegheitin og vinnuvikan ríflega hálfnuð. Og ég á m.a.s. frí á föstudaginn! Jibbíjei. Gulla er nefnilega að koma á morgun og við ætlum sko að eiga príma góða afmælishelgi. Hún á nebblega afmæli á föstudaginn og ég eftir hálfan mánuð. Best að vera ekkert að bíða með hátíðarhöldin.
En hvað síðan síðast? Ekki mikið. Er að vinna á mjög tight deadline í vinnunni því nú verð ég að skila skýrslunni í lok næstu viku. Kæmi mér ekki á óvart þó ég yrði að leggja inn nokkra aukatíma. Í vikunni þurfti ég svo að fara að eyða tíma í að færa til mubblur í skrifstofunni, sem við deilum sex saman. Þetta er nú engin hola svosem, alveg þokkalega stór en þær vildu endilega fara að re-aransera þessu öllu. Sumum var kalt, aðrir fengu glampa á skjáinn sem er ekki í samræmi við heilsu standarda og einhverjar fleiri ástæður voru týndar til. Og drottinn minn dýri, vesenið í kringum þessa skrifborðsflutninga. Fyrir alveg heillöngu síðan tók ein sig til og klippti út skrifborðin og hillur á hjólum í réttum hlutföllum og þær eru búnar að vera að rúlla þessu fram og til baka á pappír og velta þessu á alla kanta hver ætti að vera hvar. Þegar búið var svo að brölta húsgögnunum eftir þessu vísindalega líkani var útkoman allt önnur en reiknað var með. Við vorum því í allan gærdag að draga þetta drasl fram og tilbaka og funda um það hver ætti síðan að fá hvaða starfsstöð. Sumir voru með sterka preferenca eins og gengur og aðrar voru sveigjanlegri. Ég var í seinna liðinu, enda svo sem bráðum að hætta og fannst ég ekkert geta verið að setja mig á háan hest. Þar að auki finnst mér fátt leiðinlegra en svona vesen. Það kemur mér alltaf jafnmikið á óvart að hitta fólk sem lifnar alveg við þegar svona mubblu-skipulagsbreytingar standa fyrir dyrum. Þegar búið var að kalla heilsustandards-officerana og þeir búnir að leggja blessun sína yfir nýja skipulagið fékk ég nýja plássið mitt. Það er ekki reyndar eins gott og það gamla en ég var svo fegin þegar þetta var yfirstaðið að ég læt mér standa á sama. Þótt það líti nú út fyrir að ég fái annan samning e. áramót eitthvað fram á vorið.
En að öðru, sem ég gerði líka að umtalsefni á sama tíma fyrir ári: jólakort! Mér finnst svo gaman að fá jólakort og því verð ég að koma bara með addressu tilkynningu því að nú er ekki hægt að senda í Frostafoldina. Þeir sem eru snemma í því geta sent hingað eða í Bogahlíðina því við verðum náttúrulega þar yfir jólin. Hér eru því tvær addressur til að velja úr:57/5 Montpelier Park
Edinburgh
EH10 4NBEdinburgh
U.K.
eða
Bogahlíð 2
105 Reykjavík
Nú fá allir jólakort frá mér á réttum tíma því nú er ég ekkert að skólast og hef enga afsökun. Kannski að sé bara rétt að maður fari bara að smella sér í þessi kortamál.
Luv, Hilla
Nú fá allir jólakort frá mér á réttum tíma því nú er ég ekkert að skólast og hef enga afsökun. Kannski að sé bara rétt að maður fari bara að smella sér í þessi kortamál.
Luv, Hilla

4 ummæli:
Innilega til hamingju með daginn! Gulla með árin 29 og Hildur með Gullu í Edinborginni:) Skemmtið ykkur svakalega VEL. Efast ekki um að þetta verður eftirminnileg helgi hjá ykkur dúllos míos!
knúsogklem;
1-0 fyrir Bogahlíðinni!
kv. Ásta
Sælar skvísur
Geri nú ráð fyrir að Gullan sé mætt á svæðið, alveg væri ég nú til í að vera með ykkur. Þú verður nú að lofa mér að taka Gullu með á staðinn okkar, namminamm. Eigið þið ógó skemmtilega daga *öfund* knús Inga
heyrðu já og p.s. Til lukku með daginn Gulla mín :)
Hæ Hildur mín
Innilega til hamingju með þennan glæsilega titil. Þú rúllaðir þessu auðvitað upp eins og öðru.
Sjáumst vonandi
Kveðja Sandra Brá
Skrifa ummæli