fimmtudagur, nóvember 30, 2006

MSc European and Comparative Public Policy


Þetta er semsagt gráðan mín í fullri lengd. Master í evrópskum samanburðar stefnumótunarfræðum. Ekki beint þjáll titill. Tillögur að smellinni þýðingu eru vel þegnar.


En jæja, þá er þetta afstaðið og þetta var hinn besti dagur. Ég var náttúrulega búin að þramma Princess Street upp að öxlum daginn áður, versla nesti og nýja skó og maska mig vel og lengi með ferskum LUSH hrukkubana og það dugði ekkert minna en tvær tegundir. Fyrir vikið var maður aðeins minna krumpaður en venjulega.

Athöfnin sjálf fór fram í ægilega fallegum gömlum sal. Meðfylgjandi myndir eru teknar fyrir utan hann eftir ceremóníuna sem var voðalega hátíðleg. Þeir sem voru efstir í fræðihíerkíunni í hverri deild útskrifuðu sína nemendur og vitinu var danglað í mann með gömlum hatti.






Þar með er þessu tímabili í lífinu lokið. Það er pínu tregablandið þó ég geti ekki sagt að ritgerðarskrif heilli sérstaklega í augnablikinu. Ætli maður sé þá hættur þessu skólastússi? Örugglega í bili en hvað veit maður svo sem.

Ástarþakkir fyrir heillaóskirnar og kveðjurnar í kommentunum mínum. Það var svo notalegt að kveikja á tölvunni í morgun og lesa öll kommentin frá ykkur..

Það auðveldaði töluvert leiðina að þessum áfanga að geta deilt með ykkur síðasta ári og fá alltaf reglulega pepp og góðar kveðjur. Bestu þakkir fyrir það.
En nú má ég engan tíma missa, er að nýta tímann með mömmsu minni áður en hún heldur aftur heim á leið. Hún á nú ekkert lítið í þessu brölti mínu öllu...

Þangað til næst,
McHilla Masters-Smilla

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Hildur mín
Innilega til hamingju með gráðuna fínu, maður verður bara feiminn! Hér situr maður enn óbreyttur læknaritari... Ég verð nú að láta vita af Unnsu systur sem sendir sínar bestu óskir en hún liggur heima hjá sér þríbrotin á ökkla eftir að hafa runnið í hálku. Ekki skemmtilegt rétt fyrir jólin. Og ekki má gleyma riturunum hér á barnó sem súpa bara hveljur yfir dugnaðinum í þér. Til hamingju!
Hilla Gilla og Unnsa

Nafnlaus sagði...

Ó svo mikið til hamingju Hildur mín:) Þú hefur staðið þig eins og hetjan sem þú ert.

Nafnlaus sagði...

TIL HAMINGJU skvís!!
kv. Birna Selfyssingur

Nafnlaus sagði...

Elsku Hilla mín,

Æðislegar hamingjuóskir með nýja titilinn. Það hefur nú margt gerst á einu ári í þínu lífi! BA próf, MS próf og fleira og fleira. Hlakka til að hitta þig bráðum!

Nafnlaus sagði...

Elsku vinkona!!!
Til hamingju með prófið. Það er frábært að lesa að þetta hafi verið góður dagur. Við heyrumst svo flótlega
Kv Ingunn

Unknown sagði...

Það er ekki of oft sagt hvað ég er stolt af þér! Ju dúdda mía hvað þú ert fín þarna á myndinni með henni múttu þinni. Eitthvað svo "lush"-leg. Herregud!

McHillary sagði...

sælar dömur allar saman! og þúsund þakkir fyrir þessar góðu kveðjur.
Sendi miklar stuðkveðjur til ritaranna á barnó, það er aldrei að vita nema maður skelli sér í eins og einn kaffisopa þangað í jólafríinu. Heldurðu að ég hafi ekki keypt einn skammt af sama hrukkubananum og þú keyptir Elísa mín í sumar. Það er akkúrat passlegt eftir fyrir mig og Gullu þegar við förum að pæjast um næstu helgi. Æðislegt enn og aftur að fá frá ykkur blómin, þau eru ekkert smá flott hérna mér til yndis og ánægju....