miðvikudagur, desember 13, 2006

Í fréttum er það helst...

Gulla og Gísli í stíl og í góðum fíling á hinum rómaða veitingastað Montpeliers

....þá er Gullan komin og farin eftir þessa fínu afmælishelgi. Við máluðum bæinn svona léttbleikan á föstudagskvöldið og Gulla gat m.a.s. manað mig í parísarhjólið sem mig er búið að langa í um nokkurn tíma (eiginlega síðan í fyrra) en hafði ekki alveg haft mig í. En þetta hafðist allt og heilar komum við niður þó okkur hafi ekki beint litist á blikuna þarna uppi.

En hvað er þá nú á dagskrá? Ég á tvo daga eftir í vinnunni og er að vinna á milljón til að klára að skrifa skýrsluna sem ég ég að skila á föstudaginn. Þetta er allt að ganga upp en ég verð sennilega að sleppa jólateitinu á morgun. Sem er nú frekar súrt. En það er allavega komið á hreint að ég fæ nýjan samning hjá samtökunum frá og með 15. jan og fram að páskum sennilega. Mér líkar alveg stórvel og eiginlega alltaf betur og betur. Það er góður mórall og svo er maður svo vel staðsettur að maður getur shoppað eins og mófó í 45 mín. lunch-break ef þannig liggur á manni. Það bíða mín tvö ný rannsóknarverkefni; fyrst að vinna hluta af Evrópurannsókn um after school care á fátækum svæðum og svo önnur um hversu mikið börn og ungt fólk taka þátt í að móta stefnu í geðheilbrigðismálum í Skotlandi. Ég er bara spennt fyrir þessu, þó það hafi gengið vel að vinna þessa slysarannsókn er ég alveg að verða tilbúin að hvíla það dæmi í bili. Og svo verður maður bara að sjá hvað vorið ber með sér, hvort maður verði í Íslandsgírnum eða hvað...

En talandi um gír, jólaundirbúningurinn verður hér settur í 5. gír um næstu helgi, en þá verða jólagjafir keyptar á þvílíkum methraða að annað eins hefur ekki sést. Humm og já, kortunum reddað líka. Skil ekki hvað ég er eitthvað róleg í þessu eins og Bretarnir eru skipulagðir. Maður kemst ekki einu sinni í bíó orðið nema panta með einhverjum fyrirvara. Búðirnar hérna eru margar að verða alveg eins og eyðimörk og það eru ennþá rúmar 2 vikur til jóla. Sumt er maður bara ekki að skilja.

Já og eitt enn. Umsókninni minni um debetkortið ógurlega var HAFNAÐ!! Er ekki að djóka. Snillingarnir hérna í bankanum sögðu að ég skildi endilega reyna að sækja um aftur eftir 3 mánuði og voru svo góðir að senda mér tékkhefti og ég er bara overwhelmed yfir því trausti sem mér er sýnt með því. Ég er hinsvegar alveg komin með upp í kok af þessu bankabúhúi og er búin að tilkynna þeim að ég hyggist færa mín mikilvægu viðskipti annað. Kate, sem vinnur með mér, segir mér að þó það sé slæmt hérna þá sé það ennþá verra í Kanada. Þar tíðkast víst þvílíkt rán í bankakerfinu að skosku bankarnir eru víst bara eins og sunnudagaskólar í samanburði. Það eitt er nóg til þess að ég mun aldrei svo mikið sem íhuga að setjast að þar. Og hananú.
Luvvvvv þangað til næst.

Hilla slaka jóla-pilla.

6 ummæli:

Magga sagði...

Já þær eru orðnar hálftómar búðirnar hérna, þetta hentar engan veginn svona "do-it-in-the-last-minute" fólki eins og okkur :)

Unknown sagði...

Ju minn eini krúslan mín. Var það Gulla sem náði að tæma búðirnar um helgina? allamalla...!
Til hamingju með framlengingu á samningi. Bjútífúl að heyra að þér líki svona vel. Snilldin ein.
Ég hlakka mega mikið til að hitta þig krúslan mín.
Hér er ég með ragettu í ... að skrúra , skrúbba og bóna. Best að nýta stuðið sem ég er komin í.
Knús og kveðja í kotið!

Nafnlaus sagði...

já þeir eru nú alveg magnaðir skosku bankarnir. fyrsta atlagan er náttúrulega að koma fæti inn fyrir dyrnar. reyndar gekk þetta lygilega vel hjá mér, launalausri kindinni, en við erum algjör undantekning ef miðað er við reynslu fólks í kringum mann. mætti bara með rafmagnsreikning og leigusamning og barnið fríða sofandi í vagni og það small. síðan lögðum við skólagjaldalánin hans DÓ á reikninginn og blíng, viti menn, debetkortið kom viku seinna í pósti! þú ert greinilega ekki nógu rík ha? svona eins og við?? ; )

Nafnlaus sagði...

Er eitthvað því til fyrirstöðu að vera bara með íslenskan launareikning?

Nafnlaus sagði...

Ég er reyndar búin að lesa þetta tvisvar... En er ég að lesa rétt? Var það GULLA sem fékk ÞIG til að fara í Parísarhjólið????????????? Ertu alveg viss um að það hafi ekki verið öfugt??
Já Gulla hefur aldeilis verslað!
hlakka til að sjá þig dúlla, kv. Ásta

Nafnlaus sagði...

Verð að viðurkenna að það er ekki mér að kenna að búðir í Skotlandi séu tómar. Tæmdi þær kannski í London mánuði áður en við Hilla pilla eyddum góðum tíma í sloppunum með te í hönd inni í eldhúsi og verslaði ég alveg ótrúlega lítið svona m.v. meðal Íslendinginn. Fórum meira að segja í bíó. En Ástan mín, trúðu mér, ég manaði Hilluna í hjólið. Maður er stöðugt að ögra sjálfum sér og vinna litla sigra og það er voða gott. En ekki vorum við samt mjög hugrakkar efst uppi í hjólinu, eiginlega bara skíthræddar en líðanin var góð þegar ferðinni var lokið-eins og með flugið :)
Gulla