
Í dag tek ég á móti nýju ári í lífi mínu. Mér finnst 33 smart tala. Ég var að lesa hvað ég skrifaði í fyrra á þessum degi og þá var ég svo ánægð með mig, nýbúin að skila ritgerðunum og komin í jólafrí. Nú það sama á eiginlega við núna, ég kláraði minn hluta í verkefninu sem ég er búin að vera að vinna í síðustu mánuði á föstudaginn og við tók jólafrí!!! Mér leið pínulítið eins og ég hefði verið að klára próf, svei mér þá. Við fórum um helgina í jólapartý hjá Íslendingafélaginu og svo er maður búin að vera bara að spænast fram og tilbaka í jólastússi svo að allt sé nú reddí fyrir morgundaginn. Í gærkveldi áttum við svona semi jólakvöld höfðum
þennan fína kalkún og með því hjá Arnari. Strákarnir eru í skólanum í dag og ég ætla að njóta þess sitja á sloppnum og drekka te aðeins í einrúmi. Ég er búin að opna afmælispakkann minn og fékk voða fallega styttu í afmælisgjöf frá Arnari, Möggu og Elvari Orra. Þetta er semsagt ég með guttana mína. Gat ekki verið betra.
þennan fína kalkún og með því hjá Arnari. Strákarnir eru í skólanum í dag og ég ætla að njóta þess sitja á sloppnum og drekka te aðeins í einrúmi. Ég er búin að opna afmælispakkann minn og fékk voða fallega styttu í afmælisgjöf frá Arnari, Möggu og Elvari Orra. Þetta er semsagt ég með guttana mína. Gat ekki verið betra. Á afmælisdeginum í fyrra var ég líka að segja frá jólapartýinu hjá Lindsay og Barböru. Það er búið að bjóða okkur í partýið í ár en það er næsta föstudag og því miður missum við af því. Ég hefði mögulega getað losnað við smá af vömbinni svona rétt fyrir jólin með því að stíga nokkra létta þjóðdansa við Lindsay, eins og það eru nú ekkert lítið átök.
Að öðru leyti er allt með svo kyrrum kjörum hér að manni finnst næstum ekkert vera að koma jól. Ég er eiginlega stressuð yfir því að vera að missa af jólastressinu. Stressið er svo stór hluti af þessu stússi öllu, því annars finnur maður ekki léttinn þegar þetta er allt over and done with. Eða ég held ekki.
En jæja, best að vinda sér í að fara að pakka. Mig langar að fara með strákana í bíó seinnipartinn og kannski bara eitthvað huggulegt út að borða. Ég hlakka geggjað mikið til að koma heim á morgun í íslensku jólin og hitta ykkur öll.
Hilla McSmilla.

10 ummæli:
Elsku Hildur !!!
Til hamingju með árin 33. Eigðu góðan dag. Hlakka til að hitt þig =)
Kv Ingunn
til hamingju með daginn! vonandi hefur þú og þínir það sem allra best í dag og um jólin.
við hittumst bara á nýju ári, Rófan er búin að vera veik síðan á jólaballinu og lítið hefur verið farið út.
bestu kveðjur frá öllum í Brædonstrít!
Til hamingju með afmælið, elsku kellingin mín!!! Hittumst við ekki á föstudaginn næsta???
kv
SNJ
Til hamingju með daginn gamla mín ;) Knús og kossar frá Blantyre liðinu :*
p.s....gangi þér vel með pakkelsið, jííhaaa!
Til hamingju með daginn ljúfan mín!
Kv. Harpa Hjartar.
Sælar skvís til lukkku með árin 33, mér finnst þetta agalega smart aldur. Heyrðu sláðu endilega á þráðinn þegar þú ert lent, vorum við ekki búnarað plana brunch....þarf aðeins að rifja það upp. Gvvvuuuðððð hvað mig hlakkar til að sjá ykkur. knús Inga
Till Hamingju Með amilið mamma
reyndu að chilla því þú ert 33gja
Dan The Man
Takk fyrir kveðjuna alle sammen. Til hamingju með afmælið þitt í gær Harpa mín. Við skulum endilega reyna að hittast á föstudaginn Svandís og Inga mín, við vorum að plana brunch. Hringi í þig á morgun þegar við erum komin.
En jæja, chilla in the afternoon var víst meiningin.... yeee right.
Er rétt að klára að pakka og klukkan er hálf ellefu. Fór svo í síðustu ferð á Princess Street í dag og keypti handa mér afmælisgjöf. Allamalla, ég er geðveik pæja.
Hverja haldiði svo að ég hafi rekist á í strætó í dag aðra en hina alræmdu Kennedy barnfóstru!!! Hef ekkert séð hana síðan hún fór út með kremin í denn. Nema hvað, það er bara allt annað að sjá hana, ég ætlaði ekki að þekkja hana fyrst. Kremin hafa gert sitt gagn því hún hefur yngst um 10 ár, lýg því ekki. Þetta var bara svo sláandi að ég sendi henni ekki einu sinni slæma strauma. Og starði ekkert illilega á hana heldur. Sannur jólaandi.
Get ekki beðið með að sjá ykkur.
TIl hamingju með daginn elsku Hillí mín! Hlakka svaka mikið til að sjá þig fljótt. Heyrumst þegar þú ert komin á kaldann klakann.
Juu hvað þú ert ÚNG! lol
Innilega til hamingju með daginn í gær og velkomin heim á klakan krúsin mín. Hlakka til að sjá þig.
kv Ásta
Skrifa ummæli