Gvvöööðð hvað maður er orðin integreraður í lífshlutverkið hérna í Bretlandinu. Fattaði það ekki almennilega fyrr en í dag þegar ég allt í einu staldraði við og hugsaði minn gang þegar ég var að "chatta" við samstarfskonurnar mínar. Þetta var nú bara ekki neitt hérna í gamla daga þegar maður tónaði " Yesss, that would be niiiiiccccee með miklu nefhljóði (þennan skilur enginn nema Edda). Núna er ég orðin svo væmin að það er algjör raun að því. Ohh, that is great, fantastic, superb, blablaba og svo thank you very much svona töttogu og fimm sinnum fram að hádegi. Djísús, vellan bara lekur af manni. Eins gott að maður að það fer að styttast í jólafríið á klakanum ískalda svo maður geti hvílt sig á aðeins á þessum kurteisis-og smeðjuheitum og komið bara til dyranna eins og maður er klæddur.
Svo er ég farin að gera matseðla 2 vikur fram í tímann og haga innkaupum eftir því, byrja að elda kl. 5 svo maturinn sé á borðum eigi síðar en 6. Te er hitað hér kl. 9 og drukkið fyrir háttinn og allir komnir inn í rúm um hálf tíu. Svo er ég farin að plana að hitta fólk með margra vikna fyrirvara. Þetta er nú bara hálf scary.
Ég dreg mörkin hinsvegar við það að maður miði við að hitta fólk svona á heila og hálfa tímanum (og mæti frekar bara svona stundvíslega 10 mín. of seint). Gísli er á leiðinni í afmæli næsta föstudag og þar er sko mæting kl. 6.16. Þá finnst manni það hljóti að vera alveg rosalega krúsíalt að mæta alveg á mínútunni. Djísús aftur.
mánudagur, nóvember 13, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

6 ummæli:
Sælar
Sit hér með te (og smá e-ð Better Choice kex, voða voða hollt)og varð einmitt hugsað til þín. Svona er tengingin orðin;Te=Hildur.Það var svo voða huggó hjá þér úti að fá sér smá te fyrir svefninn, það er e-ð svo propper. Svo er það víst mikið hollara en kaffið, ekki satt,
knús knús, Guðný
Allamalla.....
Jaa það er af sem áður var, segi ég bara. Skammt öfganna á milli hjá henni Hillu :-)
Er samt létt að þú hafir pínuáhyggjur af þessu ofurskipulagi, mín kæra.
Vona að þú verðir ekki óþekkjanleg þegar maður sér þig næst!
Hlakka til að sjá þig. Heyrumst fljótlega!!!
Hahahahah frábært. Mikið er ég fegin að lesa þetta. Nú getur Guðný bætt þér í hópinn til að gera grín að. Ég er nefnilega orðin svona uber skipulögð líka. Vaska mín föt á sunnudögum og brýt saman, bónusveldið er ávallt heimsótt á föstudögum með innkaupalista byggðum á matseðli komandi viku og svo er slottið alltaf þrifið stundvíslega f.h. á laugardögum.....Þetta gerir lífið bara svo miklu auðveldara.....nema þetta sé aldurinn bara. Hver veit. kv ISS
Vitið þið hvað? Mér finnst skipulagt fólk vera FRÁBÆRT fólk! Manni líður bara svo vel ef allt er í orden! En ég sætti mig samt bara við að dást að þessu fólki. Sumar kröfur get ég bara ekki gert til mín! Á maður ekki líka bara gera RAUNHÆFAR kröfur??? lol
Ég þori varla að kommenta á þetta því ég er að verða alveg anal með alltof marga hluti. Allt á réttum og proper tíma á réttum og proper hátt.
Segi því bara velkomin í hópinn - ætli þetta sé hluti af midlife crisis kvenna?
B
Gvvuð, þetta er örugglega aldurinn. Enn eitt merki þess að árin eru að færast yfir ofan á gráu hárin og fínu hrukkunum...sem fer fjölgandi.En maður á bara að taka þessu öllu fagnandi og vera ánægður með að maður er að develop-ast. Það er nú svo.
Skrifa ummæli