
Ég lærði nýtt orð í dag. Þannig er að það var að byrja ný stelpa á skrifstofunni hjá okkur sem er frá Englandi. Henni var sagt að koma yfir ' for a blether' og hún var alveg blönk, hafði ekki hugmynd hvað þetta blether væri, þetta hlyti að vera eitthvað skoskt. Humm, sagði ég, þetta hlýtur að vera blaður, alveg eins og á íslensku. Og það reyndist rétt. Svona eigum við margt sameiginlegt með Skotunum. Það eru einhver fleiri orð sem eru sérskosk og eru náskyld íslenskunni, ég bara man þau ekki í augnablikinu. Jú, ég man eftir að hafa heyrt deerer notað fyrir dýrara. Ég ætti nú að vera duglegri að skrifa hér einhverja menningarspeki.
Er annars alltaf að verða skemmtilegri og skemmtilegri í vinnunni. Og er bara farin að 'blethera' alveg helling við samstarfsfraukurnar sem eru flestar hinar hressustu.
Nú liggur fyrir að ég vinn fram í miðjan desember. Þar fór helmingur af desember fríinu mínu.
En maður leggur það á sig fyrir framann .... og smá auka aur.
Lov,
McHilla Blaður-pilla.

1 ummæli:
Hvernig er það, er búið að plana saumó meðan þú ert á landinu?
B
Skrifa ummæli