fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Hvar hafa dagar....

bloggs míns lit sínum glatað???

Það er af sem áður þegar maður rúllaði hér upp 20 kommentum eins og ekkert væri (jæja, átti nokkur sjálf en samt...) Humm, ég velti nú fyrir mér hvort ég sé ekki næstum því eins skemmtileg og ég var vön að vera. Það verður nú víst að viðurkennast að bloggandinn kemur ekki jafn áreynslulaust yfir mig eins og áður.

En jæja, nú er ég búin að endurformatta þetta allt og með aðstoð Línu gat ég komið síðunni aðeins upp úr þessu frumstæðari horfi og er bara komin með tengla og alles. Legg ekki meira á ykkur. Nú verður vonandi ekki jafn mikið mál að smella inn myndum.

Vegna þess að nú nálgast jólin óðum og næstu áramót fór ég að rúlla yfir þau fyrirheit sem ég gaf sjálfri mér um síðustu áramót og birti hér í byrjun árs. Til glöggvunar fyrir ykkur lesendur góðir birtast þau á undan núverandi stöðu:

1) Minnkuð sykurneysla. Þori ekki að kalla þetta sykurneyslustraff þar sem ég mun ólíklega hafa sjálfsaga í það. Hins vegar ætla ég að huga betur að mataræði og heilbrigðum lífsmáta og reyna að vinna á mikilli lakkrísfíkn minni.

Sykurneyslan já. Nokkur framþróun hér þegar fór að síga á árið. Byrjaði að raða í mig þurrkuðum ávöxtum sem ég keypti í heilsuverslun og áttaði mig of seint á því að þeir voru hunangsbaðaðir fyrir þurrkun. Blés út eins og blaðra og var orðin þéttari en ever before um páska. Þetta var nú tekið svo nokkuð föstum tökum um tíma og sennilega var mesta framþróunarskref stigið þegar ég hóf mikla tedrykkju sem ég er farin að trúa að sé allra meina bót. Er algjörlega húkt á herbaltei og snerti ekki hunangsávextina. (Mæli eindregið með Yogi Teas sem fást í heilsuhúsinu, Detox er algjört dúndur). Þannig að ég gef sjálfri mér 7/10 hérna.

2) Samhliða þessu hef ég í hyggju að rækta andann enn betur og reyna að minnka streituna. Mér hefur verið bent á bók, Slowing down to the speed of life sem ég ætla að panta og lesa á kvöldin fyrir svefninn.

Ég get nú bara verið nokkuð ánægð með mig hérna. Ég hef svo sannarlega ræktað andann og tel reyndar að um þessar mundir sé hann sé betur ræktaður en nokkru sinni fyrr. Ef það væri meira væri það bara verra, hahaha. Ég get nú ekki sagt að mér hafi tekist að minnka streituna fyrr en nýlega. Þetta var eiginlega mikið streituár og eiginlega alveg bara þangað til að ég minnkaði vinnutímann minn um eina og hálfa klukkustund á dag í síðustu viku. En jæja, það er allt á uppleið. 9/10 fyrir andann og 6/10 fyrir streituna.

3) Hætta að fara með skólabækurnar upp í rúm og leyfa mér að lesa eitthvað spennandi fyrir svefninn...

Þetta var algjör feill fram eftir árinu. Las nánast ekkert nema skólalestur þangað til í september. Er ekki komin búin með nema 2 kafla í bókinni sem á að leiða mann að því að hægja á hraða lífsins, svei. Er að bæta upp fyrir það núna og er núna að lesa Hrafninn hennar Villu. Ætla að skrifa meira um bókalesturinn minn í næstu færslu. 6/10 hérna.

4) Verða ennþá skemmtilegri en ég er vön að vera..(það verður erfitt, múhahahahaha) en heit 1-3 ættu reyndar að stuðla að þessu.

Ja, hér get ég varla dæmt mig sjálf. En sé tekið mikið af því hversu viðbrögðin við skrifum mínum hér hafa farið minnkandi get ég ekki annað en efast. Kannski er negatívt samband á milli skemmtilegheita og andlegs jafnvægis, hummm...Einkunnagjöfin verður því ekki nema 4/10.

5) Nú skulu fjármál heimilins tekin föstum tökum. Greiðsluþjónustunni hefur verið sagt upp, nú ætla ég að sjá um þetta sjálf og hagsýn skal verða mitt middle name.

Og að síðustu fjármál heimilisins. Er nú bara í þokkalegustu málum þar en veit ekki hvort þakka ber þar hinni nýju hagsýnu mér. Geri oft vel við okkur hérna og eyði ennþá of miklu í krem og snyrtidót. Ég hef nú einhvern tíma sagt að ef það er eitthvað sem ég ætti að tryggja hérna sérstaklega væri það snyrtikerran ógurlega. Æji, maður verður að eiga eitthvað thing. Þetta er mitt. Veit ekkert hvað ég á gefa mér í stig hérna...segjum bara status quo.. 5/10.

Þegar ég fer að fara yfir þetta sé ég nú að þetta er nú bara ekki svo slæmt. Nú þarf maður bara að vinna sig upp í skemmtilegheitunum og á þá er allt á uppleið!!

Kossar,


McHillan

9 ummæli:

Unknown sagði...

juuuu dúdda mía kellan mín. Því fer svo víðst fjarri að vinsældir þínar dvíni. Þú ert jafn skemmtileg og alltaf... ef ekki bara skemmtilegri. Allavega hefur nýjum meðlimum í saumó fjölgað svo um munar eftir að það fréttist að þú værir í honum. Stefnum við á hópferð til þín hið allra fyrsta. Áttu 19 dýnur? muuhahahahaaa....

Ég er stödd í tryllingi dauðans. Bilað að gera í vinnunni... vonandi er þetta þetta ekki það sem koma skal.


Markmið smarkmið. Þú sniðug að skrifa þau niður. Það væri nú aldeilis niðurrifstilraun ef ég ætlaði að skoða mín áramótaheit. Ég sem betur fer gleymi þessu svona á fyrstu vikum ársins. En mér sýnist þú standa sig ljómandi vel ljúfan mín!

Knús og kveðja frá lísulottu.

Magga sagði...

Assgoti er þetta orðið tæknilegt, tenglar og alles ;) Og já, blessuð markmiðin...mér finnst þú nú bara hafa staðið þig ágætlega í þeim efnum, náttúrulega mjög sterkur hjá þér leikur að skrifa þau niður og meta svo stöðuna þegar líða tekur á árið. Það er nú meira en ég hef nokkrum sinnum gert, í mesta lagi hafa flögrað hálfkláruð markmið um hugann í öllum sprengjulátunum á miðnætti...sem gleymast alltaf fljótt ;) En...you live and learn og svo lengi sem maður hefur löngun til að bæta sig er maður í góðum málum.

Knús og koss frá barnlausu Blantyre Terraca (vonandi er sá stutti ekki að gera allt ga-ga;))

Nafnlaus sagði...

Mér þykir þú hafa staðið þig með sóma og held að það verði að segjast að árangur þinn er mjög glæsilegur.
Held það sé varla hægt að búast við að ná öllum markmiðum strax í fyrstu tilraun ;).
Hef ekki útskýringu á commentafækkuninni en segi fyrir mitt leyti að mér þykir alltaf jafn gaman að lesa hérna hjá þér og kíki við daglega og vonast eftir nýju efni :o).
Knús og kram,
Birgitta

Nafnlaus sagði...

Þú ert órjúfanlegur hluti af bloggrútninum alltaaf fyrst á listanum....eina sem er gallin að ég þarf helst að vera í einrúmi og allllssss ekki í vinnunni...ég byrja alltaf að flissa og hneggja fyrir framan skjáinn.
Heyrumst fljótt skvísa. Knús ISS

Nafnlaus sagði...

Hey já gleymdi einu, hvað er málið með saumó? Er allt bara að verða vitlaust, mamamammmaður veit bara ekki hvað skal segja. Ég fékk alveg sjokk þegar það koma bara mail með einhverju bláókunnu fólki.

Nafnlaus sagði...

æi gleymdi einu enn.......hérna....mummmuu....já flott myndin af þér, hver er þarna með þér? Þú ert eitthvað svo framakonuleg?

(stend ég mig ekki vel í vommentunum ;)

McHillary sagði...

Gvud, hvad thad var gaman ad opna siduna i morgunsarid og bara 6 comment!!! Inga min thu stendur thid gedveikt vel darling. Ja framakonan eg, thu ert vaentalega ad visa i myndina af mer og Sondru vinkonu minni Franks. Tharna vorum vid uppstriladar ad spoka okkur i thinginu i Washington. Ef thad var ekki retti timinn til ad vera framakonulegur tha veit eg ekki hvad.
Annars bestu kvedjur til ykkar hinna, you never let me down. Hlakka gedvekt mikid til ad hitta ykkur um jolin. Her er sol og milt vedur, hvernig vidrar i Reykjavikinni i dag???

Nafnlaus sagði...

Sælar skvís, maður þarf að fara að setja niður svona fyrirheit. Af nógu er allavega að taka, that´s for sure. Nýlent frá London en varla lent í raunheimum. Algjörlega frábær ferð. Svo styttist í heimsóknina til þín. Hlakka mikið til. Heyri nú í þér bráðlega.
Knús
Gulla

Nafnlaus sagði...

Hæ dúllos míos. Já nú þarf ég að taka mig á í heimasíðumálum og gera tengla, gengur ekki þarf nauðsynlega að hafa McHillary á tenglalistanum mínum þó ekki væri nema bara hann! Nú talandi um markmið... ég setti mér eitt árið 1998 að biðja mannsins míns fyrir 8.feb 2005 en það tókst ekki EN... ÉG GERÐI ÞAÐ Í GÆR!!! Og hvað heldurðu hann sagði JÁ :) Það sannaðist að betra er seint en aldrei! :D