laugardagur, nóvember 04, 2006

Hversdagslegur laugardagur...

Í dag er ekta Edinborgarveður, frekar svalt en stillt og bjart. I love it. Svolítið eins og fallegur haustdagur í Reykjavík. Í morgun vöknuðum við snemma eins og flesta laugardaga til að koma Daníel í boltann. Hann er nú loksins orðinn hress eftir að vera búinn að eiga við þetta flensustand í fleiri vikur, ræfillinn. Á leiðinni heim frá skólanum kom ég við hjá Indverjunum, vinum mínum, í Bruntsfield News til að kippa upp The Scotsman og kom svo við í Peckhams til að ná mér í heimsins besta organic múslí. Ég elska hverfið mitt og þennan local fíling. Hverslagsleikinn í Bruntsfield verður það sem ég mun sakna mest þegar það kemur að því að ég við flytjum inn í íslenska lífið aftur.

Hvað er betra en þegar maður er hamingjusamur í hversdagsleikanum?? Ég bara spyr. Fólk sem veikist alvarlega sér yfirleitt alltaf mest eftir þessu hversdaglega. Í The Scotsman í dag er einmitt viðtal við tveggja barna móður á mínum aldri sem hefur barist núna um nokkurt skeið við ólæknandi sjúkdóm og saknar hversdagsleikans mest af öllu. Svo eru sumir sem geta bara alls ekki afborið hann og eru alltaf að reyna að flýja hann með ýmis konar ráðum. Þetta er skrítin tilvera. Þegar maður heyrir um fólk í erfiðleikum hellist yfir mann þakklætistilfinning yfir öllu því góða sem maður á í lífinu og maður heitir sjálfum sér því að lofa það dag hvern. Svo gleymir maður sér stundum í dagsins önn og fer að ergja sig yfir smámunum. Viðtalið var góð áminning svona í morgunsárið og ég var meðvitað jákvæðari en ella yfir verkefnum morgunsins; húsverkunum og að leysa úr ágreiningi afkvæmanna.

Ég komst í vinnuna aftur um miðja viku og hætti núna alltaf á daginn kl. hálf fjögur frá og með 1. nóv. Gvvuvð, hvað það er mikill munur. Dagurinn er svo skotfljótur að líða að það tekur því bara varla að fara í vinnuna. Segi svona. Það verður mikið að gera hjá mér næstu vikurnar að vinna úr rannsókninni sem við erum að vinna til að informera öryggisplanið fyrir börn. Ég hætti í lok nóvember rétt áður en ég útskrifast en þau herlegheit eru nú bara óðum að nálgast, þ. 29. nóv. Ég er búin að leigja slopp og tilheyrandi til að fá nú að vera með í ceremóníunni en þetta er allt voðalega formlegt og eftir miklum prótókollum. Og það þýðir ekkert að vera með íslenskan ‘allt reddast á síðustu mínútunni’ þankagang því þetta verður að vera allt frágengið í það minnsta 21 degi fyrir útskrift. Annars getur maður bara gleymt því að fá að mæta. Mér finnst það ægilegur stress factor að þurfa að hugsa fyrir þessu öllu með svona löngum fyrirvara. Í þessum skrifuðum orðum er kannski best að maður tékki á því hvort ég eigi útistandandi skuld á bókasafninu. Það væri slæmt að láta henda sér út, uppstrílaður í sloppnum, fyrir nokkra punda skuld. Og það er alveg hægt að bóka það að það verður alveg örugglega ekki hægt að greiða úr því þarna á staðnum.

Það er allt að verða jólalegt niður í bæ og um helgina er jólamarkaður við Princess Street. Við sennilega dólum okkur þangað í dag, kíkjum á markaðinn og fáum okkur heitt kakó og ‘meððí’ einhvers staðar. Í kvöld stendur nú bara ekkert annað til en að eiga ladies night out með þremur íslenskum kvinnum, allar in the early thirties (Er ekki ‘early thirties’ miklu viðkunnarlegra en að vera ‘á fertugsaldri’?? Mér finnst hitt svo miklu betur lýsandi, í það minnsta í mínu tilfelli, hahahaha. Legg til þessu verði breytt í íslenskri tungu..) Ungu konurnar sem vinna með mér hafa verið að gefa mér tips um hvert sé nú viðeigandi að fara miðað við aldur og fyrri störf. Það er því alveg tilvalið, fyrst körlunum í lífi mínu stendur til boða að mæta í strákapartý til Arnars í kvöld, að punta sig og bregða undir sig betri fætinum. Það er víst mælt með því að maður geri það öðru hverju. Svona til að gera hversdagsleikann aðeins skemmtilegri.

Óskir um góða helgi til ykkar allra.

Hilla McHversdags-Pilla.


Fyrir þá sem taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi í dag minni ég á vinkonu mína Söndru Franks en hún sækist eftir 3.-4. sæti á listanum. Heimasíða Söndru er www.123.is/sandrafranks. Hér átti að fylgja mynd af mér og frambjóðandanum, á augnabliki sem var allt annað en hversdagslegt í bandaríska þinginu í okt. 2004 (en það vill reyndar svo til að er kosið um þingsæti þar um helgina og ku það vera frekar eftirsótt) en þetta myndasystem neitar að hlýða mér einu sinni sem oftar. Ég tek því af stóískri ró og smelli myndinni inn við fyrsta mögulega tækifæri...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

sælar skvís
já hversdagsleikinn er bara svo ágætur, er alveg sammála þér. góða skemmtun mín kæra í aften gakktu hægt um gleðinnar dyr....kv ISS

Nafnlaus sagði...

Já þið vaknið í boltann á laugardögum sem er kl 5°°-9°° haha ha ég er enn að hlæja að þessu:D
hafið það gott
kv. Ásta

Nafnlaus sagði...

Ju hvað þú ert orðin tæknivædd! komin með tengla á síðuna og allt!
Nú verður þú að fara að kenna mér... hehe kv Ásta

McHillary sagði...

Hæ darlings.
Jii, maður var eins og kórstúlka þarna á laugardagskvöldið.
Já, nú get ég farið að miðla visku minni í bloggmálum. Maður skiptir bara yfir eitthvað google-dæmi and then it is all there. Ert þú annars með blogg honní?? Smelltu á mig slóðinni hið snarasta..