þriðjudagur, október 31, 2006

Tæknileg aðstoð...anyone???


Jæja, þá er maður lasinn heima og getur aðeins eytt tíma í netið (sem er alveg agalegt náttúrulega) og að bæta þessa síðu mína.
Mig langar að setja linka inn á síðuna í aðra bloggara en get ómögulega fundið út úr því hvernig ég að að fara að því. Ég sem er nýbúin að útlista því hvers lags tæknitröll ég er orðin. Er einhver sem þekkir þetta template sem ég er með og gæti hjálpað mér með þetta?? I would be so grateful. Af teljaranum að dæma fæ ég þó nokkrar heimsóknir hér og það hlýtur einhver að geta komið með lausnina...

Lov, Hilla.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ dúllan mín, ég er nú ekkert tölvunörd og kann ekkert á blogger en langaði bara að senda þér batnaðarknús.
Heyri í þér fljótlega
Gulla

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku kerlingin mín,

Mikið var gaman að spjalla í gær! Nú sit ég hérna með rauðvínsglas, barnlaus og áhyggjulaus. Heldurðu að það sé notalegt??

Varðandi tækni vandamál þá er ég sú allra versta í þeim málum. Hins vegar veit ég að á lummulegu síðunnu minni á blog.central. er valtakki á síðustjórnarsíðunni þar sem manni er boðið að bæta inn tenglum. Kíktu á þetta hjá þér.
bæ luv
Svandís

Nafnlaus sagði...

kann ekkert á svona bloggdót, vildi bara sendi ykkur batnaðarstrauma. kram og knús ISS

Nafnlaus sagði...

heyhó !
ég skal skokka til þín þegar þið eruð orðin hress og sýna þér þetta, lítið mál. kannski getur þú sýnt mér í leiðinni hvað ég er að gera vitlaust í SPSS ??! ; )
látið ykkur batna sem fyrst,
kv. Lína.

Nafnlaus sagði...

hellú beibí.

Leitt að heyra með heilsufarið. Uss uss ussss!
Knús og kveðja, Elísa (líka lasin)

McHillary sagði...

Sælar allar dömur og takk fyrir góðar kveðjur. Það hafði nú heldur betur áhrif að fá góða strauma því simmsalabimm! maður bara reif sig í vinnuna í morgun og verður bara orðin 100% góður fyrir helgi vænti ég (góðir straumar til þín Elísa dolittle, við verðum að fara að heyrast bráðum). Líst vel á þig Lína, endilega kíktu yfir og sjáum hvað við getum SPSS-ast. Er heima núna alla daga e. 4!!
Luvvv til ykkar!!og hafðu það ógesslega notalegt ein, barnlaus og áhyggjulaus Svandís skvís.
Kv. Hilla