föstudagur, nóvember 17, 2006

Casino Royale..




Fórum að sjá nýja Bond í gærkveldi. Myndin er hin ágætasta þó ekki sé ég nú mesta Bond-fanið í bænum. Þessi Daniel gaur er samt ekki að gera sig i hlutverkinu finnst mér. Alltof rough-looking. Ég var ekki alveg að kaupa það að þær væru allar brjálaðar í hann þessar bjútídísir. Minn ideal-Bond er ögn fágaðri, svona meira í ætt við hinn gamla Roger Moore. Það hefur nú enginn slegið honum við. Hvað finnst ykkur, hver er ykkar uppáhalds??
Að öðru ekki síður mikilvægu, sem Birgitta vék að í síðasta kommenti.
Er saumaklúbburinn búinn að finna dag til að mála bæinn rauðan??
Er sem stendur ekki búin að bóka marga hittinga svo reynum endilega að finna eitthvað hentugt sem fyrst. Takiði þetta nú fyrir á næsta fundi.




5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Næsti fundur er nú bara í kvöld svo ég set þetta sem fyrsta mál á dagskrá :o).
Bærinn er orðinn eitthvað svo dapurlega grár og það veitir ekkert af því að mála hann rauðan.
B

Unknown sagði...

hva... það er aldeilis að stelpan datt í blogg gírinn aftur!
Bondinn fær alveg ljómandi góða dóma. Fólk heldur ekki vatni honum blessuðum. Ég ætla nú fyrst að sjá Borat. Hún er víst algjör snilli.

Saumó í kvellen. gaman gaman.... Vantar bara skosku flikkuna!

Nafnlaus sagði...

Hér er allt á kafi í snjó láttu þér bara hlakka til ! Ætli hann verði svo ekki farinn fyrir jól svo maður geti nú haft þau rauð? Vonandi hann fari og komi svo bara aftur á Þorláksmessu:)

Nafnlaus sagði...

Til að gefa atkvæði í Bond umræðunni þá held ég maður verði nú að kjósa hinn frábæra skoska Bond - Sean Connery - á reyndar eftir að sjá Casino Royale en finnst þessi Daniel ansi myndarlegur... skelli mér kannski á "matinee" í vikunni!

ciao, Kolbrún

Nafnlaus sagði...

Ég held að flestir tengi Bond við þann leikara sem var í hlutverkinu þegar þeir kynntust honum fyrst. Í mínu tilfelli Roger Moore, eins og þínu. Fyrir mér er hann ekta...hinir eru meira svona uppfyllingarefni eitthvað.