sunnudagur, október 08, 2006

Extravagant helgi...

Annar í afmæli var í dag. Við vorum bara grand á því og buðum 11 krökkum úr bekknum hans Gísla í bíóferð og pizzuveislu á eftir. Þetta gekk bara alveg prýðilega.. doldið gírað á köflum en reddaðist allt.

Ég er nú ekki eins dugleg að blogga og ég ætlaði. Mér dettur oft í hug eitthvað sniðugt til að skrifa um á morgnana þegar ég er að koma mér í vinnuna en er svo alveg andlaus þegar ég kem á daginn. En hvað er helst svo sem að frétta? Vinnan gengur vel og samskipti mín við samstarfsfólkið hafa tekið miklum og jákvæðum stakkaskiptum síðustu vikurnar. Þetta er sennilegast alltaf bara dálítið erfitt til að byrja með. Það var það nú svo sem líka þegar ég byrjaði í skólanum í fyrra og maður var svona að meta hvernig landið lægi. Það lítur allt út fyrir að ég fái ráðningarsamninginn framlengdan út nóvember og directorinn er búinn að lýsa því yfir að hann vilji að ég haldi áfram hjá þeim ef þeir fá fjármagn í fleiri verkefni í vetur. Ég gæti vel hugsað mér það og það væri alveg ídealt ef það gengi eftir. Planið er samt að vera í fríi frá því að ég útskrifast 29. nóv og fram í janúar. Við ákváðum á endanum að koma heim í jólafríinu þó upphaflega hefðum við verið ákveðin í að eyða jólunum hér. Við komum 21. des og förum aftur 9. jan. Nægur tími í chill og tjúttheit :-)

Nokkrir vinir mínir úr skólanum heimsóttu mig í vikunni sem leið. Við erum semsagt nokkur sem ákváðum að vera hérna áfram. Flestum úr prógramminu okkar hefur gengið nokkuð vel að finna vinnu. Þau sem eiga í erfiðleikum eru þau sem hafa ekki visa til að vera áfram í Bretlandi og eiga erfitt með að fá visa nema vera með vinnu en þurfa samt helst að vera með visa til að fá starf in the first place. Sem sagt svolítið snúið. Guði sé lof fyrir Evrópska efnahagssvæðið segi ég nú bara. Kendra hin brasilíska vill vera áfram en hefur bara visa fram í janúar. Hún hætti með skoska leigubílsstjóranum, en ég var nú á sama tíma í fyrra að sjá einhverja rómantík í því sambandi. Hann reyndist hinsvegar vera hringlandi klikkaður og hefur síðustu mánuði brunað á leigubílnum um allan bæ til að sitja um Kendru á ólíklegustu stöðum, klippir út stafi úr dagblöðum og límir saman og sendir henni í pósti, svona eins og maður sér gjarnan í bíó. Þótt hægt sé að gera grín að þessu er þetta nú ekki búið vera neitt gamanmál og lögreglan hefur verið kölluð til oftar en einu sinni. Kendra fór fljótlega að vera með Martin, breskum strák sem var með okkur í prógramminu og nú veit ég ekki alveg hvað þau gera ef hún fær ekki visanu framlengdu. Hann er í doktorsnámi og er ekkert alveg að fara að flytja til Brasilíu held ég. Hin jórdanska Tala fékk styrk frá breska utanríkisráðuneytinu til að fara í spennandi prógramm í London School of Economics og býr núna gratís í Kensington fram í janúar þangað til hún fer til Jórdaníu aftur. Hún þeytist síðan heimshornana á milli til að sitja ráðstefnur; í Egyptalandi, Ástralíu, Indlandi og jú neim it. Og stendur alltaf í stappi til að fá visa vegna þess að hún er middle east woman. ‘Your life is worth the passport you hold’ sagði hún einu sinni þegar við vorum að ræða heimsmálin. Það eru mikil sannindi.

Ég er ennþá að lenda í vandræðalegheitum við fótboltaþjálfarann hans Gísla. Þetta er eiginlega með ólíkindum. Hann heldur að ég sé algjörlega lost in translation. Gísli er búinn að vera í pásu frá boltanum en þjálfarinn hafði samband og vildi endilega að hann tæki þátt í móti í gær. Ég sendi honum sms fyrir helgi og sagði honum að Gísli vildi taka þátt og ég vildi endilega join-a. Náttúrulega með á mótið. Hann sendi mér skilaboð um hæl: That’s good to hear both Gisli and you want to join the team again. Which position do you usually play, Hildur? You are welcome”.....Gísli fékk alveg embarrassment kast þegar ég las þetta upp fyrir hann. Svo að þetta væri nú ekki nóg hafði ég einhvern veginn skilið skilaboðin þannig að það væri æfing á undan mótinu og ég stormaði af stað niður á Meadows sem er nú alveg hálftímagangur með Gísla og Elvar Orra í kerru árla morguns. Og hvergi sáum við liðið. Ég neyddist til að hringja í þjálfarann. “ Við erum búin að mæla allt hérna fram og til baka og sjáum ykkur bara hvergi” sagði ég. ‘Thatsss because we arrrrr all away’ sagði hinn harðmælti Mitch. Það átti semsagt að hittast á Meadows og fara saman á mótið, sem var haldið nota bene í hæfilegri göngufjarlægð frá Montpelier Park. Við hefðum getað komist þangað á 10 mín. ef við hefðum bara farið þangað beint að heiman. Ég átti ekki annarra kosta völ en að snarast upp í næsta leigubíl með Elvarinn og Gillann og við komum rétt í tæka tíð áður en flautað var til leiks. Mitch sem er orðinn öllu vanur snaraði Gísla bara í liðið sitt og ég nennti ekkert að vera að afsaka mig neitt.

‘You are so extravagant, Hildur’ sagði Natasha, Center Parks vinkona mín, þegar við komum út úr leigaranum eins fínt fólk. Þeir eiga erfitt með að skilja svona bröððl Skotarnir. Svo hlógum við eins og fífl að þessu rugli á milli mín og Mitch. Til allar guðs lukku hefur maður nú húmor fyrir sjálfum sér.

Eigiði nú góða vinnuviku framundan.
Lov, Hilla Extravagant-Pilla.

P.s. Ætlaði að líma þessa fínu mynd af Gísla og Elvari sem tekin var í leigubílnum í gærmorgun en get núna ekki sett neinar myndir inn. Þetta er mjög dularfullt hvað það er erfitt fyrir mig stundum að líma inn myndir. Ef einhver kannast við þetta vandamál, endilega skellið á mig kommenti. Mér finnst þetta svo ægilega frústrerandi.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Maður verður nú að leyfa sér smá svona stundum ;).
Hvernig er lífið svo í gáfulegustu borg Bretlands?
http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1227751

kv,
B

Nafnlaus sagði...

Svei mér hvað það hefur verið leiðinlegt í þessum fótbolta þar til þú lést til þín taka! Endalausir brandarar! frábært. Hlakka til að sjá þig um jólin! Vildi helst skella mér með Gullu samt!
kv.Ásta

Nafnlaus sagði...

What....Gullu. Er Gulla á leiðinni út? og nú verð ég græn af öfund.

Ég verð að hætta að lesa bloggið þitt í vinnunni, ég sit alltaf hérna ein inni á skrifstofu og flissa. Rather svona vandræðalegt.
Knús á ykkur ISS

Nafnlaus sagði...

Juuuu minn eini hilla mín. Þú toppar þig sífellt í gríni og glensi! Snilldin ein!!!
Ohhh ég er mega spæld núna. Sá þig á MSN, ætlaði að skutla krílunum inn og bjalla á þig en þá ertu farin. Reyni aftur næstu kveld.
Mega gaman að þú komir heim um jólin. Gerum eitthvað kósí kós.

Hvað með Mikló? Er ekki hittingurinn að bresta á?

McHillary sagði...

Hæ darlings!
Takk Birgitta fyrir að benda á þessa frétt. Það er nú ekki amalegt að búa í gáfulegustu borg Bretlands. Kemur ekki á óvart reyndar. Og ég trúi að vísitalan hafi bara hækkað síðasta árið ef eitthvað er. Múhahahahah...Jújú, nú er Gullan á leiðinni, ætlar að eyða afmælishelginni sinni hér í des. Lovlí. Og nú fer maður að plana ladies things. Gaman annars að ég get skemmt ykkur aðeins með þessu röggli í manni. Endilega reynum að hittast á msn lísa skvísa. Er alveg brjálað að gera hjá þér í vinnunni???

Nafnlaus sagði...

hellú.
Ég ætla nú að bjalla á þig. Þú veist, ring ring.
Vinnan er kúl.. frekar mikið að gera og felst sú vinna aðallega í að finna hið gullna jafnvægi milli vinnu og heimilis. Ji minn eini hvað þetta var nú allt miklu einfaldara þegar ég var heima! Svo er sportið allt á skólatíma. Hvernig fer fólk að þessu? ég bara spyr. En það er gaman gaman hjá mér.
Vá, hvað það verður gaman hjá ykkur Gullu í des! Flott hjá þér Gulla mín að skella þér. Mikið langar mig að hitta þig.
Mergjað að heyra Hilla mín hvað vinnan gengur vel. Þetta er flott innlegg í reynslubankann.