
Lillinn minn er orðinn 10 ára. Það er bara kominn áratugur síðan hann kom í heiminn að kveldi dags. Mér finnst það nú dálítill áfangi þegar öll (eða bæði!) börnin eru komin með tveggja stafa árafjölda. Hér er enginn smá töffari á ferð eins og myndin úr afmælisveislunni ber með sér. Þetta er annar afmælisdagurinn hans í Edinborg og í þetta skipti var haldið afmælisboð og fengum við góða gesti. Skellum hér inn nokkrum myndum en þetta myndasystem virðist virka núna.
Einhverra hluta vegna hef ég ekki getað sett inn myndir nema stöku sinnum síðustu vikur.Skelli inn annarri færslu fljótlega.
Au revoir, Hilla.

9 ummæli:
Til hamingju með "litla" drenginn. Vá hvað tíminn líður hratt. Ekkert smá girnilegar veitingar hjá þér. Má nú til með að segja frá því að ég fór í brunch á Nordica hótel í gær og mæli með því við sælkera-borðaði ekki meira þann daginn ;). Svo verð ég líka að mæla með myndinni Börn, VÁ og mögnuð og erfið að horfa á en algjör must að sjá.
Endilega skelltu inn nokkrum myndum af nýju íbúðinni. Það sem ég sé á þessum myndum lofar virkilega góðu. Hafið það nú gott. Já og Miklóstelpur hvenær á að hittast??? ISS er hnipp í þig eða?
Ciao
GH
Hæ Gullary mín.
Takk fyrir kveðjuna. Ég er bara að netast heima. Afmælisbarnið er bara eftir sig í dag og sefur enn og óvíst hvort ég kemst í vinnuna. Fórstu á hádegisverðarhlaðborðið á Nordica? eða er kannski morgunverðarhlaðborð þar líka? Hef farið í lunchinn og það var bara æði. Nóg af sushi og Creme brúlei. Love it. Kannski getum við farið í eitt svoleiðis um jólin??? Veit ekkert hvaða mynd þú ert að tala um, en greinilega eitthvað sem ég þarf að sjá. Er búin að vera að hlaða inn myndum á barnanetið en á eftir að setja inn fleiri september myndir og svo úr afmælinu maður. Hafðu það gott í vikunni darlingur. Já og Ásta mín, ef þú lest, sá að þú varst að reyna að ná á mig á msn, ætla senda lykilorðið á barnanetinu bara núna á þig alveg simmsalabimm, ef einhverjum fleirum vantar lykilorðið endilega látið mig vita.
Adios amigas, Hilla.
Hæ elskurnar mínar. Til hamingju með daginn, það er nú enginn smá áfangi að vera orðinn 10 ára. Flottar myndir úr veislunni og veitingarnar girnilegar, vildi bara hafa verið komin í selskapinn. En það styttist í að við sjáumst, bara 2 vikur, hlakka mikið til. Ástarkveðja úr Bogahlíðinni.
Mamma
Já hann sprettur upp drengurinn, ekkert smá flottur strákur. Mér finnst eins og það hafi verið í gær þegar fregnir bárust að Gíslalingur væri kominn í heiminn.
Til lukku Gísli minn. Heyrumst fljótt.
Gulla, ég hóa í ykkur fljótlega í Miklóhitting. Kv ISS
Var að kíkja á myndirnar, rosalega lýst mér vel á íbúðina. Fer ekki vel um ykkur?
Hjartans hamingjuóskir með "lillann" elsku Hillí mín! Ég ætla að taka rúnt á myndasíðuna þegar ég er búin hér.
Mér líst mega vel á nordica hitting. Ég hef heyrt svaðalegar sögur af þessu hádegishlaðborði. Ég er allavega alltaf til í eitthvað grín og glens.
Ég bíð eftir kallinu Inga mín. Hlakka til að hitta ykkur.
Hae darlings, ju thad fer rosa vel um okkur i nyju ibudinni, thad er ekki haegt ad segja annad. Haldidi ad tolvutudran min hafi ekki bara crashad i gaer. Arggg og garggg...blogga ekki mikid a medan..eigidi godan dag elskurnar.
Já þetta var sko fínindis veisla, maður er bara enn eftir sig ;) En leiðinlegt að heyra með tölvuna...þessar bévítans tölvur :/
Sí jú :)
Til hamingju með drenginn! Handsome og á ekki langt að sækja það til þín Hildur mín! Takk fyrir lykilorðið opnuðust nýjir heimar að skoða þetta það er svo langt síðan ég hef kíkt. Já Miklógirls, var ekki komið eitthvað stafrófsprógramm á þetta?? Hvar erum við í því?
Hafið það gott í Edinborginni áfram dúllufjölskylda. kv Ásta
Skrifa ummæli