sunnudagur, október 22, 2006

(M)ömmukrakkar...



Ég er alveg glötuð orðin í þessu bloggi. Ég sé að ég hef bara ekkert skrifað í rúmar tvær vikur, ja sveii.
Það er nú ekki búin að vera lognmollan hérna svo sem, vinnan og allt á fullu en drengirnir hafa reyndar verið í 10 daga haustfríi. Og hver kom ekki hingað önnur en amma gamla til að passa lillana á meðan fríinu stóð. Árni brósi kom líka frá London til að vera hérna með okkur í 4 daga og þetta var alveg hin besta vika. Ég ætla nú ekkert að fara að telja allt upp sem við höfum haft fyrir stafni undanfarið en myndir af okkar ‘activitetum’ má sjá á myndasíðunni á barnanetinu sem ég er búin að vera að uppfæra. Við létum t.d. loksins verða af því að skoða Rosslyn kapelluna, en þangað er hægt að komast með hálftíma ferðalagi í strætisvagni. Mamma fór svo aftur til Íslands í gær og ég var í fríi í vinnunni í dag. Strákarnir fara í skólann á morgun og þá er víst sælan búin í bili. Daníel er reyndar búin að vera hálfræfilslegur síðustu 2 dagana og er þetta í annað skipti á stuttum tíma sem hann leggst með einhverja pesti. Það má reikna með því að nú fari mannskapurinn að leggjast eins og í fyrra þegar byrjaði að kólna eins og húskuldinn er nú hérna. Nýja íbúðin er samt ekki eins köld og sú gamla og það er nú vonandi að við liggjum nú ekki eins og skötur næstu vikurnar.

Nú á ég einn mánuð eftir í vinnunni. Ég hætti 24. nóv og ég ætla ekkert að leyna því að ég hlakka ósköp til að fá desember fríið mitt. Finn að ég þarf svolítið á því að halda. Þetta var fullmikill sprengur að æða í vinnu um leið og ég var búin í ritgerðarhavaríinu. Það er víst gott að anda aðeins á milli og ég ætla að anda alveg rosalega djúpt í desember. Mamma kemur aftur til að vera við útskriftina mína og við ætlum að eiga alveg súpergóða mæðgnaviku hérna um mánaðarmótin nóv.-des. Svo ætlum við Gulla að skemmta hvor annarri á afmælinu hennar Gullu þ. 8. des. en þá ætlar hún að smella sér hérna yfir þessi elska. Það er víst alltaf nóg á dagskránni og manni leiðist ekki á meðan.

Annars er lítið að frétta svo sem. Fjölmiðlar hér hafa verið uppfullir af fréttum af Madonnu og litla drengnum sem hún hyggst (eða er búin að) ættleiða. Þetta er nú meiri sirkusinn í kringum þetta og það er skammt öfganna á milli. Einn daginn er sá litli bláfátækur og móðurlaus í Malawi og þann næsta er heimspressan farinn að borga milljónir á milljónir ofan fyrir fyrstu myndir af honum. Hann var framan á öllum blöðum hér í síðustu viku. Madonna sjálf tók sér ekkert frí frá gymminu, barnfóstran fylgdi barninu heim og var síðan send út í barnafataleiðangur meðan Madonnan púlaði í pilates daginn eftir að drengurinn kom til landsins. Ekkert verið að taka sér pásu frá því svona meðan krakkinn er að tengjast hinu nýja umhverfi. Ég hef ekkert við það að athuga svo sem að Madonna ættleiði barn en þetta trend að vera ríkur og ætla sér að bjarga þriðja heiminum með því að ættleiða þaðan er truflandi. Þar eru allir svo real, allt annað en í henni Ammríku segir Angelina Jolie og gistir á sjö stjörnu hótelum í fimmtán svítum fyrir sig og fylgdarliðið þegar hún er á ferðinni í fátækustu ríkjum heims. Nýjustu fregnir hér herma að hún hafi talað um fyrir Madonnu og Guy en þau ætluðu sér víst upphaflega að fá barn frá Bandaríkjunum. Það hefði náttúrulega ekki verið næstum jafn merkilegt. Litli malavíski drengurinn elst nú upp við allsnægtir í efnisheiminum og sjálfsagt er Madonna bara ágætis mamma. Besta niðurstaðan fyrir hann hefði kannski verið samt bara millivegurinn. Að fá bara venjulega foreldra, sem hefur dreymt um lengi að eignast barn og hafa ekki kost á því að velja það eins og úr catalog. Foreldra sem geta farið sjálf út og valið eitthvað smart á litla ungann og geta tekið sér frí úr gymminu rétt á meðan hann er að ná áttum í nýrri heimsálfu.

En talandi um Malawi, það vill nú bara þannig til að styrktarbarnið mitt, Maria Kunkhadze er einmitt þaðan en hún býr í höfuðborginni Lilongwe í SOS barnaþorpi. Hún verður 12 ára gömul núna í nóvember en ég er búin að fylgjast með henni sem styrktarforeldri síðan hún var nýfædd. Aðstæður hennar voru ekki ólíkar og hjá dreng litla Madonnusyni. Maria var fædd sem tvíburi, en mamma hennar og tvíburasystir dóu þegar þær systur fæddust. Pabbi hennar kom með hana í barnaþorpið þegar hún var hvítvoðungur og þar hefur hún verið síðan. Þar hefur hún dafnað vel og er myndarstúlka en dálítið óþekk í skólanum skilst mér. Ég vildi að ég ætti nú mynd af henni á rafrænu, þá myndi ég smella henni hérna inn. Það verður síðar.

En jæja, nóg um þetta allt. Vona að fólk sé að koma sér í tjúttgírinn. Það þýðir sko ekkert annað fyrir jólafríið ógurlega.

Lov, Hilla

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæt!
Er alveg brjálað að gera hjá minni? Bara eiginlega ekkert bloggað. Slæ nú á þráðinn fljótlega. Hringi þegar saumó verður búinn í vikunni með nýjasta slúðrið.
GH

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Ég er glöð og ég er góð, nettengingin er komin á!
Ýmsar fréttir héðan sem þarf að miðla, heyrumst innan tíðar!
Knúskveðja
V.

Nafnlaus sagði...

Fjúkk að það sé komið færsla, hélt kannski að þú værir bara drukknuð í skoskum rannsóknaverkefnum ;)

Verð með miklósaumó annað kveld, sem verður án efa sama fjörið og vanalega.

Later skvís ISS