miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Hilla...

...milljónapilla!!!Haldiði að maður selji ekki síðan bara Frostafoldina, allt græjað á einu degi.....júhúúúúú....
Þá er því af manni létt.

Lesið endilega þessa hérna: http://news.scotsman.com/index.cfm?id=1112102006
Þessi gella segir það útilokað að maðurinn hennar hafi tekið þátt í svalli því það hafi hvergi komið fram að hann sé loðin eins og górilla. Sem er víst svo rosalegt að hún segir að þær sem kjöftuðu frá hefðu ekki getað annað en gert það opinbert. Lítur meira út fyrir mér eins og hún sé að flengja hann in public fyrir óþekktina...þetta er víst komið fyrir rétt og eitthvað vesen. Takið annars vel eftir myndinni sem var tekin þegar þau mættu hjónin fyrir réttinn, dálítið kómísk.

Lov, McHilla

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nó vei... kúúúúl stelpa mín. Congrat! Nú er ég í huganum stödd á Montpeliers að skála við þig í vel kældu hvítvíni. SKÁL!

McHillary sagði...

Takk darlingurinn minn! og húrra fyrir þér að halda uppi kommentunum á þessari síðu. Teljarinn gengur og gengur en ég fæ ekkert feed back hérna orðið...En jæja, ég er ekki búin að skála ennþá fyrir sölunni, gvvuð hvað það væri nú gaman að taka eitt smart hvítvínsglas uppi á horni til að fagna þessu. Heldurðu að ignorant þjónninn hafi ekki bara geymt fyrir mig baðbomburnar því ég gleymdi þeim á barnum kvöldið góða, en hann var jafn sviplítill eftir sem áður þegar hann rétti mér pokann...jæja, er bráðum að fara að tygja mig í ammmæli ..sí jú leitör ...

Nafnlaus sagði...

Muuuuhahahaha ... sé þjónagarminn í anda. Hann minnir mig á "áhugalausa föndrarann" sem Karl Ágúst Úlfsson túlkaði svo innilega hér forðum daga. Ciao bella.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að hafa selt íbúðina skan:) Ætla að vera rulluf í kvöld. Mun drekka eitt skot þér og íbúðarsölunni til heiðurs. Skál!

McHillary sagði...

Blessuð Edda mín. Endilega fáðu þér nú skot fyrir mig út á íbúðina. Ég fagnaði í gær heldur of hressilega í afmælinu og datt ofan í einhverskonar brasilíska útgáfu af tekíla með salsadansi og tilheyrandi. Eins gott að vera stilltur næstu daga og í kvöld er það bara sængin og nýtt Marie Claire. Skemmtu þér vel í aften darling!!