
Ég trúi því ekki að ég missi af því að hlusta á Paul Rusesabagina, úrræðagóða hótelstjórann og þjóðhetju í Rwanda. Ferfalt arggggg, hann er á bóka festivalinu og ég frestaði því um nokkra daga að panta miða. Nú langar mig bara að fara að skæla, uhhhuhhhh....ekki alveg til að bæta mitt geð sem sit föst inni sem fyrr yfir ritgerðarfj.........og held ég hafi þar að auki brotið á mér tá áðan þegar hilla úr ísskápnum hrundi yfir táslunar mínar....not my favorite day.
Hilla súra pilla.

11 ummæli:
One of those days! Bara fara snemma að sofa og vona að þetta líði fljótt hjá. Nú, svo er reyndar um að gera að skreppa á bráðavaktina ef táin er að drepa þig.
Hugsa til þín HillaPilla mín.
Og hvernig líður þér svo í lillu tásunni krúslan mín?
Meina sko baugs-tásunni... :)
Hæ darling. Táslan er öll að koma til og geðið er aðeins betra...
Hér skín sólin og allt er í gúddí..hvernig var Rock Star supernova?
Elsku Hillý mín
Mikið er ekki gott að heyra þetta. gangi þér vel með ritgerðina, veit að það getur verið strembið að sitja svona dag eftir dag. Þú ert svo mikið dugleg.
knús Inga
Hæ Ingan mín. Mikið gaman að heyra frá þér darlingur...er að skrifa eins og mófó og svo er ég að fara að skoða íbúð núna á eftir. Það er ein laus í Montpelier Park sem lítur vel út á myndum. Þá mun ég búa í Montpelier Park og fara á Montpeliers til að lyfta mér upp... getur ekki orðið meira local en það, múhahahahah, eigiði nú góða helgi dúllurnar mínar...
Þú ert alltaf svo bissí að ritgera að mar þorir ekki að trufla en þú mátt endilega smella hérna inn upplýsingum um nýja húsnæðið og framtíðaráformin :).
B
Hæ darling Brigitte, var einmitt að lesa bloggið þitt, alveg óhætt að tröfla, ætlaði einmitt að reyna að ná á þig en þá ert þú away að glápa, er alveg að fara að setja inn nýjar fréttir,heyrumst endilega á msn-inu..vona að allt sé gott þín megin.
Ciao ciao
Hæ hæ Hildur mín. Ég er að forvitnast um þig hérna á netinu...en er búin að gleyma lykilorðinu inn á barnanet síðuna....ferlega spæld...þú kannski gefur mér það upp aftur plíííís!!! Hafið það gott og ég kíki aftur seinna með von um svör.
Hæ María darling, gaman að heyra frá þér. Lykilorðið er edinborg. Það er nú ekki leynilegra en það.Vona að þið séuð í banastuði á Spáni, kíki á myndirnar ykkar og síðuna og fylgist með.
Bestu kveðjur,
Hellú beibí.
Til hamingju með að vera að fá guttana heim!
Knús og kveðja frá mér.
Skrifa ummæli