þriðjudagur, ágúst 01, 2006

Dekur og dútl...

Ég kveið því nú svolítið að stelpurnar færu og verða ein eftir í kotinu í heilar þrjár vikur. Þær áhyggjur voru nú óþarfar því það kemur nú bara í ljós að ég fíla mig bara hreint ekkert illa. Nú kúri ég aðeins á morgnana, vinn svona til 7 í ritverkinu og maska mig og baðbombast á kvöldin, hef sjónvarpið alveg fyrir sjálfa mig og les bara Marie Claire og vísindaritin til skiptis fyrir háttinn. Hef eiginlega verið svo bissí við að láta mér líða vel hérna heima að ég bara tími varla að fara neitt út en ég hef nú líka aðeins kíkt á smarta restauranta og bari því það er nú víst nóg af þeim. Ekki svo að skilja að ég komi ekki til með að fagna því að fá litlu karlana mína heim aftur, en það eru núna tvær vikur í það og ég get skellt mér í nokkrar bombur þangað til.

Veðrið hefur verið dásamlega gott alveg þangað til í dag og það hefur satt best að segja verið frekar erfitt að sitja inni við í þessu brilljant veðri. Svo er borgin að fyllast af fólki því nú er festivalið að byrja. Ef ég verð nú hér á næsta ári á sama tíma þá vil ég endilega benda fólki á að það er rétti tíminn til að koma í heimsókn. Fullt af viðburðum og entertainment. Maður kannski nær að njóta þess aðeins, svona á milli þess sem maður glamrar.

Annars er svo sem ekki mikið að frétta, ég hef aðeins verið að fylgjast með fréttunum og George Michael er ennþá að gera usla með því að krúsa um London. Karlgreyið, þvílíkt að það skuli ekki vera hægt að láta hann bara í friði með þetta. En jæja, hann heldur nú að karlinn sinn geti bara haldið kjafti, nýbúinn að fá 1 milljón pund í 10 ára brúðkaupsafmælisgjöf. Hananú og habðu það kallpungur. Þetta var eitthvað svo ægilega óskammfeilin yfirlýsing þrátt fyrir að margir eflaust láti sig hafa annað eins fyrir minna. Milljón pund. Manni finnst það alveg rosaleg upphæð. En kemur svo ekki bara í ljós að bankastjóri á Íslandi er ekki nema rúma 5 mánuði að vinna sér inn sama aur og spúsinn hans Georgie boy fær fyrir að umbera krúsið í áratug.
Og það bara í mínum viðskiptabanka. Stundum verður manni hálf óglatt að lesa fréttirnar af svínunum í Animal Farm sem virðast hafa tekið sér fasta bólfestu á Íslandi.

En jæja, svona er þetta nú, hvað getur maður svo sem gert? Þeir hjá SUS eru nú að reyna að fría mann frá því að vera upplýstur um þessi ósköp. Manni væri kannski bara stórgreiði gerður með því. Einhvern veginn finnst mér nú samt að þetta ágæta fólk gæti gert eitthvað betra við sinn tíma en að hlaupa með álagningaskrár með sér inn á salerni niðri á Skattstofu. Ekki nema að þau skeindu sér bara á þessum ógeðfelldu upplýsingum. Það væri táknrænt það eina rétta.

Ég ætla að fórna tveimur dekurkvöldum í þessari viku og eiga upplífgandi hitting við Kendru og Tölu vinkonur mínar sem ég hef ekki séð um langan tíma, en þær eiga báðar afmæli í þessari viku. Þar verða nokkrir Líbanir sem eru með okkur í skóla og víst má telja að þeir hafi um meira að hugsa en tugmilljóna mánaðarlaun bankastjóra.
Það má jú víst horfa á það þannig, að maður getur þakkað fyrir meðan það er ekki verra...
Góðar stundir,
McHilla ekkiMilljónaPilla.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ju hvað ég skil þig vel... það er ekki leiðinlegt að krúsast aðeins ein í kotinu. það er ekki oft sem það tækifæri gefst.
Ég sé mig nú alveg í anda hjá þér á næsta ári á festivalinu. Ég held okkur þyrfti ekkert að leiðast.
Kremaðu þig vel og bombaðu.
Þú ert dullegust af öllum og flott hjá þér að taka smá "mí" time!
Knús og kveðja.