mánudagur, júlí 24, 2006

Allt tekur víst enda...


...og ég horfði með trega á eftir vinkonum mínum hverfa á braut um hádegisbilið í dag. En gvvvuð hvað það var gaman hjá okkur, wining og dining öll kvöld, chillað og bobbiast fram og tilbaka og okkur fannst við ekkert smá skemmtilegar, svona hrukkulausar og fínar. Stelpuhelgi eins og hún gerist best.

Ég fór í nudd seinnipartinn og kom við upp í Good Food til að kippa með einum kínó svona af því að ég get ómögulega byrjað í hollustunni fyrr en á morgun. Bekkirnir fyrir utan Montpeliers voru þéttskipaðir en það vantaði alveg tilfinnanlega hinar fjóru huggulegu dömur er hafa ekki látið sitt eftir liggja þar síðustu daga...
Takk fyrir komuna elsku stelpur mínar, þetta var bara æði. Vona að þið hafið gert umfangsmikil bobbikaup á leiðinni heim.

Hamingjuóskir fær svo Árni brósi minn í London en hann á afmæli í dag!!
Ykkar, McHilla

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ó MÆ GOD.... I had the time of my life. Þetta var svo svakalega rosalega hrikalega mega skemmtileg helgi og ég á svo sannarlega eftir að lifa lengi á þessu! Þú ert svo góð vinkona Hillí Snillí og það var svo gaman að fá að koma til þín.
Ég ætla að bobbíast seinna... og nota hinn bobbann á meðan. (þetta er ekki dónatal heldur er hér verið að ræða um augnskugga, þið hin sem eruð að lesa! :)
Ég á eftir að leggjast á koddann í kveld og hugsa um Montpeliers, tjillí-stundirnar okkar, grínið og glensið og hláturinn og masið en mest á ég eftir að hugsa um hvað ég er æðislega heppin að eiga svona frábærar og góðar vinkonur. Takk fyrir æðislega daga og flottar minningar.

Nafnlaus sagði...

Elsku Hillý mín
Þetta var yndislegt, alveg frábært. Takk kærlega fyrir mig. Lifi á þessum minningum vel og lengi. RISAknús. Þín vinkona alltaf og alltaf Inga

Nafnlaus sagði...

Flottar myndir af ykkur darlíngs:) Rosa hefur verið gaman!

Nafnlaus sagði...

*Orkustrrrrrrraumur* til þín elsku Hillí gillí mín!

Gangi þér mega þrusuvel í ritgerðarstússi. Ég hugsa til þín oft á dag!

Nafnlaus sagði...

vá hvað það var gaman hjá ykkur. Agjört æði og þið sniðugar að láta verða af þessu. Algjörar dúllur.