Ég ákvað nú að grafast aðeins fyrir um hann Dúdda á Skörðugili og kemur þá ekki í ljós að það hafa nú fleiri leitað í gullkornasmiðju hans: http://www.eidfaxi.is/pistlar/index.php?pist_id=59. Svo að það sé nú ekki nóg komst ég líka að því að Karlakórinn Heimir tileinkaði Dúdda á Skörðugili lag á plötu sinni Fram í heiðanna ró og geri ég ráð fyrir því að um sama Dúddan sé að ræða. Þetta er greinilega mikill merkismaður.
En jæja, auk þess að vitna í spakmæli Dúdda þá hef ég undanfarið verið að panta mér bækur af Amazon sem allar eiga að stuðla að jákvæðu lífsviðhorfi og hífa upp andann. Varla þarf að tíunda hversu mikið ég er nú tilbúin til að meðtaka það svona rétt áður en ég helli mér út í mastersverkefnið. Þegar ég fékk fyrstu sendinguna var ég svo æst að ég bara missti skrudduna ofan á lyklaborðið mitt og braut L-takkann sem er núna frekar laskaður. Ekki nógu gott mál. En bókin var þess virði því hún er bara hin besta lesning. Hún heitir því einfalda nafni The Rules of Life og leiðir mann í gegnum 100 reglur sem maður á að tileinka sér í lífinu til að hámarka hamingju sína. Ég ætla strax að brjóta fyrstu regluna sem segir fyrir um að maður á ekki að básúna þessi nýju sannindi því það sé jafn óþolandi og fyrrum reykingafólk sem verður fanatískt og reynir að kristna hina syndaselina. Það verða nefnilega allir að meðtaka fagnaðarerindið á sínum eigin tíma, segir höfundurinn. Ég ætla hins vegar að gerast svo djörf að birta hérna bara smá útdrátt á sjálfu internetinu. Ég veit að þetta er óttalega væmið og engin ný sannindi en látum það fljóta:
Regla 5: Know what counts and what doesn't
There are some things in this life that are important and a whole lot of things that aren´t. It doesn´t take too much discrimination to work out which are which...Having time for loved ones and friends is important, watching the latest soap isn't. Repaying a debt is important, what brand of washing powder you use isn't. Nurturing your children and teaching them real values is important, dressing them in designer clothes isn't.
You get the idea. Think about what you do that counts- and do more of it.
Þetta er reglan í styttri útgáfu. Ég tek sjensinn á því að höfundurinn sjái ekki textann sinn hérna á netinu og lögsæki mig. Þetta finnst mér nú bara vel mælt, nema kannski helst þetta með þvottaduftið því það getur nú skipt máli en við skulum nú ekki hengja okkur í það heldur hugsa frekar um boðskapinn.
Góðar stundir, Hilla.
miðvikudagur, apríl 26, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

10 ummæli:
Ég sá nú einhvern vitna í hann Dúdda á spjallborði nokkru og spurði viðkomandi strax hvort að það væri hugsanlegt að við læsum sömu bloggin. Ég fékk aldrei svar.
Var þetta einhver héðan?
Þú segir nú nokkuð Eddan mín kæra. Nú er ég forvitin, hvaða spjallborð var þetta og í hvaða gullkorn var vitnað? var það þetta með vitið og gíða skapið, kannski er bara til hafsjór af gullkornum Dúdda... Eða er þetta leynigestur á blogginu mínu sem veit ekki af því að það eiga ALLIR að skrifa mér komment sem lesa...múhahahahahahaha
P.s. hvað segirðu annars um símafund og rauðvínsglas um helgina???
þetta átti að sjálfsögðu að vera góða en ekki gíða skapið...
Mæ mæ þetta er nú bara doltið athyglisvert. Eru hinar reglurnar eins spennandi. Frábært hjá þér að vera svona dugleg í sjálfsræktinni.
Miklósaumó í gær og það var náttlega bara gaman, mikið spjallað og mikið hlegið.
kvISS
Þetta var spjallborðið sem ég stunda hvað mest...og eru þau þó nokkur. En já, það var nákvæmlega sama gullkornið og þú settir inn og bara einhverjum tveim dögum síðar þannig að mér fannst þetta liggja ljóst fyrir. Nema auðvitað að hann sé svo mikið celeb að hann sé bara þekktur út um allt þó að ég hafi aldrei heyrt á hann minnst.
Ég er mikið til í símafund. Svolgra kannski í mig einum bjór bara. Ég er svo nísk að ég tími ekki að opna heila léttvínsflösku fyrir sjálfa mig þar sem að ég klára þær sjaldnast þegar ég er á kojunni.
Görlís... bara símakenderí í uppsiglingu! Have fun...
Já, ju minn.. það var voða gaman í miklósaumó í gær. Mikið hlegið, mikið etið, mikið skrafað. Ég var andvaka í nótt af áti, drykkju og miklu kjafteríi.
Knús og kveðja.
Ó hvað ég vildi að ég hefði joy-nað ykkur í Miklósaumó. Ég er nú akkúrat tilbúin til að hleypa vorinu inn í líf með hlátri og áti. Það næst besta er símafundur með léttvínsívafi. Maður verður að sætta sig við það enn um tíma.
Eigiði nú alveg hrikalega góða helgi allar saman, löng helgi, I love it!
P.s. Muniði eftir þessu: Finally, you come a long, the way I feel about you just can´t be wrong....úúúú Ce Ce Peniston klikkar ekki, (nú byrjar maður sko alla morgna á því að spila eins og tvö gömul danslög til að setja tóninn fyrir daginn)
amen!!!!!!!!!! á eftir efninu.. er þetta ekki bara það sem allri þurfa að pæla í þ.e. reglu 5 hebbði nú haldið það.
Rosalega er gaman að lesa bloggið þitt ég athuga á hverjum degi hvort að eitthvað nýtt sé komið :)
kv HillaB
Hann er mikill spekingur, hann Dúddi, og ekki minni en þeir sem gefa ráð í bókum (þó þeir séu ágætir líka). Hafið það gott um helgina, elskurnar mínar.
Mamma
juuuu minn eini. Var að dóvnlóda þessari spariútgáfu af skype-inu. Ég verð að prófa að skála við þig í beinni við tækifæri!
Skrifa ummæli