
Jæja, hvað er maður svo að gera þessa dagana? Mamma og pabbi fóru heim sl. fimmtudag og nú er Árni brósi í heimsókn hjá okkur til miðvikudags. Svo verðum við aftur ein í kotinu. Það er búið að vera ósköp gott að hafa fólkið okkar hér. En það er vor í lofti og svo eru Edda og Björg Jessica væntanlegar í byrjun júní. Alltaf nóg að hlakka til.
Þessi vika hefur farið í að græja CV-ið því nú tekur alvara lífsins víst við. Við systkinin splæstum í bækur til að mennta okkur enn frekar í CV fræðum og mín ber nú bara nafnið Killer CVs and hidden approaches. Það er nú bara ekkert annað. Leiðin liggur nú bara upp ef
tir þetta, vænti ég.Í dag fann ég svo vinnutitil á mastersritgerðina mína: New Leadership: Can Scottish Educational Reforms be a lesson for Icelandic Policy Makers? Hljómar vel, eller hva?
Myndirnar eru af okkur systkinunum með Gillanum þegar við gengum upp á Arthur's Seat í gærdag en þaðan er útsýni yfir alla borgina.
Luv, McHilla CV-pilla.

7 ummæli:
Titillinn hljómar mjög vel. Nú verð ég bara forvitin ertu komin með einhverjar ný cv sannindi?? Spennó.....
Mikið gasalega lítið þið mæðginin vel út... og stelpan bara svona þjóðleg! ´líst vel á titilinn... voða svona spekingslegt!
Knús og kveðja Hillagilla mín.
Halló halló. Bið að heilsa öllu genginu í Skotlandi. Veit það að mamma og pabbi hefðu nú bara betur verið áfram hjá ykkur en að dröslast heim í snjó og vetrarríkið heima. Kær kveðja frá miðjubrósanum í sumarblíðu í Kosovo ;-)
O hvað það var gaman að skrölta fram úr og sjá kommentin ykkar.
Inga mín, það kom mér nú bara á óvart hvað þessi ferilskrá er mikil vísindi. Kannski ég taki helstu atriðin úr bókinni góðu saman í einn góðan pistil. Ji minn eini, tók mitt bara allt í gegn og nú er bara að sjá hvort afraksturinn verði algjör killer...
Elísa: Jú þakka þér, tók reyndar eftir því þegar ég var búin að líma myndina að Gísli minn er einkennilegur á svip..heyrðu, mér var svo hugsað til þín í gær, ég var að panta geðveikan geisladisk, Floorfillers, 3 diskar með öllum gömlu djammlögunum okkar Pump up the Jam, Power með SNAP og margt fl. Nú verður heldur betur dansað í stofunni ef þú kemur í heimsókn mín kæra...
Arnar minn! Gott að heyra að þú ert kominn til Kosovo og ert í góðu stuði. Er veðrið svona svakalega gott? Gangi þér nú vel þarna úti með flugherminn og við heyrumst nú vonandi á msn.
Ciao Ciao
Hádí hó in ðe snó...sem er nú betur fer að bráðna ;)
Mér finnst þetta allsvakalega efnilegur titill á masters-ritgerðina, ertu byrjuð að vinna á fullu í henni ?
Bestu kveðjur frá okkur Elvar nefkirtlausa-röreyra sem er hress sem aldrei fyrr :)
Hæ Magga, nú var Árni einmitt að fara í morgun. Þessi vinna við ritgerðina er nú ennþá frekar mikið fljótandi..maður er svona að velta þessu fram og til baka en þetta er nú samt allt að skýrast.
Gott að heyra að litli kútur er hress eftir aðgerðina, nú hlýtur heilsufarið að vera allt á uppleið!
ciao ciao
Ó MÆ GOD! "Pump up jam pump it up... get things going on the dancefloor!" (eða eitthvað sjóleiðis!)Allamalla... ég kem með næstu vél! áttu sing star? ef ekki kem ég með sing star eightees! Ó jeeeeeee......
Skrifa ummæli