
Eitthvað það lágkúrulegasta prógramm sem ég hef séð í sjónvarpi um langan tíma er sýnt hér á föstudagskvöldum á eftir American Idol og ber hin vafasama titil “Test drive my girlfriend”. Þátturinn gengur út á það að einhver gosi sem er víst frægur úr einhverri sápu án þess að ég viti á honum frekari deili , “reynsluekur” tveimur stúlkum sem hann velur úr hópi kandidata sem þreyta próf fyrir ósköpin. Nú að reynsluakstri loknum velur hann síðan aðra til að fara á stefnumót með einhverjum lúða. Ég veit eiginlega hvaðan drengirnir sem óska eftir þjónustunni koma, þeir eru hver öðrum ólánlegri, greyin. En það munar ekki um kröfurnar sem þeir gera til gellunnar sem er svo “heppin” að komast á stefnumótið; langir leggir, stór barmur og sexy bum, vel lyktandi, listrænar, handlagnar og eiga jafnvel að getað spilað á hljóðfæri. Nú jæja, svo í áheyrnarprófinu lætur sá sem sér um reynsluaksturinn þær skekja sig allar fram og til baka, lyktar jafnvel af þeim, lætur þær gaula á blokkflautu eða nudda sig og gefur þeim síðan einkunn fyrir frammistöðuna. Reynsluaksturinn sjálfur er svo ekki jafn dónalegur og ætla mætti en hann felst í stefnumóti í dýragarði eða skautaferð eða einhverju álíka.
Þegar við sáum þetta fyrst sat ég svoleiðis fussandi og sveiandi svo að það færi ekki framhjá drengjunum mínum um hverslags ósóma væri hér um að ræða . “En þær taka þátt í þessu” sagði þá Daníel. Góður punktur. Hvað er málið með ungar stúlkur? Sem eru m.a.s. bara mjög huggulegar og svoleiðis mörgum klössum útlitslega fyrir ofan þessa pésa sem þær fara síðan út með. Þær virðast vera rosalega spenntar yfir því að fá að komast í reynsluaksturinn, láta þennan vitleysing þefa af sér og hvaðeina og flissa svo bara yfir öllu saman. Ó mæ god. Heimur versnandi fer.
En jæja, vona að þið eigið góða helgi. Hér er veðrið alveg yndislega gott, vor í lofti, sól úti, sól inni og sól í sinni. Það helsta sem ég hef afrekað það sem af er helgar, eru þrjú símamaraþon við Eddu, Gullu og Ingunni. Það eru hæfileikar að geta talað mikið og lengi í síma og það er ekkert að draga af mér í úthaldi hvað það varðar. Maður bara eflist ef eitthvað er...
Lov, McHilla símapilla.

3 ummæli:
Gvöööð hvað þetta sjónvarpsefni hljómar eitthvað lowclass...uss uss. En það er nú reyndar ansi margt af því sem manni er boðið upp í tíví-inu þessa dagana...og samt horfir maður ;)
Vonandi hafið þið það gott í skoska vorinu.
Bestu kveðjur
Talandi um breska raunveruleikaþætti...hvað varð um "I'm a celebrity! Get me out of here!" sem einhverntíma fór hátt í bresku sjónvarpi? Ég las alltaf reglulega um þetta í soravikupésunum bresku sem kosta undir pundinu í Bretlandi en maður pungar út hátt í fimmhundruðkalli fyrir í Pennanum, en hef ekkert séð á þetta minnst nýlega.
Sjæse hvað ég hlakka til að koma til þín og kaupa mér einn sorapésa á dag lágmark á engan pening. Þegar maður er í skóla og lepur dauðann úr skel eins og ég þá leyfir maður sér þetta hámark einu sinni í mánuði.
Sæl skvís og tak for sidst. Ég lofaði nú að vera duglegri við að kommenta svo here we go. Alltaf gaman að taka smá símaþon, þetta msn er svo ægilega takmarkað finnst mér. Við gætum nú alveg tekið annað símtal sem væri bara um sjónvarpsþætti. Það snýst allt um að toppa síðasta þátt í sora, lágkúru ofl. og svo glápir maður og fussar og sveiar.
Hafið það gott í sólinni. Ég er ekki frá því að vorið sé mætt á klakanum líka, 7-9-13.
GH
Skrifa ummæli