laugardagur, apríl 15, 2006

Gleðilega páska!



Innilegustu þakkir kann ég öllum þeim er hafa sent okkur samúðarkveðjur og sýnt hlýhug við fráfall Hauks frænda. Það er mikilvægt að eiga gott bakland. Og það á ég svo sannarlega.

Fljótlega mun ég semja hér stuttan pistil um förina okkar til Möltu sem var með öllu alveg dásamleg ef frá er talin matareitrun undirritaðrar sem hefur legið meira og minna í bælinu síðan við heimkomu.
Þangað til næst óska ég öllum nær og fjær gleðilegrar páskahátíðar.
Ykkar, McHilla.

Engin ummæli: