
Þann 29. mars sl. lést ástkær Haukur frændi minn aðeins 47 ára að aldri eftir stutta baráttu við illvígan sjúkdóm. Haukur frændi hefur verið órjúfanlegur hluti af fjölskyldunni okkar alveg frá því ég man eftir mér. Hann var heldur enginn venjulegur frændi. Hann var einstakur maður, óendanlega fyndinn og skemmtilegur og frábær vinur og félagi.
Þessi mynd er af okkur Hauki að undirbúa pylsuveislu fyrir bekkjarafmælið hans Danna í júní 2004. Hún er í sérstöku uppáhaldi hjá mér því hún lýsir honum svo vel. Kraftur og gleði. Þannig var Haukur frændi. Hans verður sárt saknað.

9 ummæli:
Elsku Hildur mín. Ég vil senda þér innilegar samúðarkveðjur. Að missa nákominn er alltaf erfitt en eitt er gott að muna: það er að upplifa tilfinninguna þó það sé sárt frekar heldur en að ýta þeim frá sér. Þetta er eitthvað sem við eigum að upplifa og það kemur alltaf að því að tilfinningarnar koma á yfirborðið og það er því betra að reyna að taka þær út strax heldur en að gera það bara seinna. Ástar og hlýhugs kveðjur Hildur Birna
Ég samhryggist þér og þínum innilega Hildur mín. Ef það er eitthvað sem ég get gert þá veistu hvar ég er. Hugsa til ykkar.
Birgitta
Mínar innilegustu samúðarkveðjur elsku Hildur mín. Guð veri með ykkur. kv. Ásta
Samhryggist ykkur innilega elsku Hildur mín.
Knús, Harpa.
Elsku Hilla mín.
Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra.
XXXXXX
Mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra Hildur mín. Guð verði með ykkur
kv. Bryndís
Ég held ég hafi sjaldan hlegið eins dátt og þegar Haukur sagði sögurnar af bláhærðu konunum í einhverri afmælisveislunni. Jú kannski þegar þú rifjaðir það upp einhverntíma seinna. Ótrúlegir frásagnarhæfileikar. Sendi ykkur öllum knús og samúðarkveðjur.
xxx
Elsku Hildur mín.
Mann setur hljóðann. Sendi ykkur öllum hugheilar kveðjur ISS
Elsku vinkona.
Guð geymi þig og fjölskyldu þína á þessum erfiða tíma. Knús og kveðja, Elísa
Skrifa ummæli