Malta er sérstakur staður. Maltnesku eyjarnar eru fimm talsins, lítill eyjaklasi suður af Sikiley. Þrjár eru byggðar og telja samtals um 400 þús. íbúa. Malta sjálf, stærsta eyjan, er aðeins 15x27 km að stærð. Svo þröngt mega sáttir sitja.Mér til undrunar komst ég að því að Malta hefur langa og ótrúlega merkilega sögu. Fyrstu landnemarnir komu til Möltu um 5000 f. Krist. Vegna staðsetningarinnar, svona mitt á milli Evrópu og Afríku hafa margir sýnt yfirráðum á Möltu áhuga í gegnum tíðina. Fyrstu landnemarnir eru taldir hafa komið frá Sikiley og Fönikar úr austri námu eyjuna fyrir daga Krists. Í gegnum tíðina hefur Malta verið hernumin af Rómverjum, Aröbum, Víkingum, Riddurum Heilags Jóhannesar, Napóleon að ógleymdu breska heimsveldinu í þessari röð. Miklar sprengjuárásir voru gerðar á Möltu í seinni heimsstyrjöldinni og enn má sjá merki þess í höfuðborginni Valletta. Frá 1964 hefur eyjan verið sjálfstætt ríki og gekk í ESB árið 2004. Þrátt fyrir þessar sögulegu sviptingar eru Maltverjar langt frá því að vera með eitthvað kramda lund, heldur eru bara með hæsta hamingjustuðul í heimi, samkv. nýjustu mælingum. Allir tala ensku en Maltverjar eiga engu að síður sitt eigið tungumál; maltnesku, sem eru samblanda forn-arabísku, frönsku og ítölsku og töluvert enskuskotin. Hljómar og sýnist frekar flókið tungumál.
Á Möltu mætist nýr og gamall tími. Ferðamannaiðnaðurinn er þróaður og mjög fagmannlegur verður að segjast. Hvergi hef ég rekist á annars eins úrval af varningi sem stendur ferðamönnum til boða. Vinsælasta framleiðsla heimamanna er án efa silfurvarningur hvers konar, knipplaðir dúkar og önnur handavinna að ógleymdri glervörunni en gler er blásið samkvæmt gamalli list er nær aftur til tíma Fönikanna. Mikið úrval er af skoðunarferðum hvers konar og getur maður farið á ótal söfn og staði sem eru hver öðrum meira spennandi. Húsunum er hins vegar ekkert sérstaklega vel við haldið, eru hálf ræfilsleg mörg hver, innan um 5 stjörnu
hótel og nýjar verslunarmiðstöðvar. Maltverjar eru hinsvegar ekki búnir að uppgötva súpermarkaði og matvara er að mestu keypt á mörkuðum. Enn er notast við strætisvagna er fengnir voru í arf frá Bretum og voru upphaflega notaðir á Bretlandi, fyrir gvuð má vita hversu mörgum árum. Þeir skrölta áfram með herkjum og til að dingla þarf maður að toga í reipi sem gengur í bjöllu fremst í vagninum. Það er hinsvegar billegt að ferðast á þennan máta og bara nokkuð sjarmerandi, þegar maður fer að venjast því.Eyjan Gozo er nokkurs konar forðabúr fyrir eyjarnar, 6 km. norður af Möltu. Yndislega græn og falleg og manni virðist tíminn hafa staðið kyrr þar í áratugi. Þar eru elstu frístandandi steinminnisvarðar veraldar, síðan um 3600 árum fyrir Krist og fullt af eldgömlum
ótrúlega fallegum smáþorpum. Rétt við eyjuna er hinn magnaði Fungus Rock, sem var í miklum metum hjá riddurunum (sem tóku völdin á Möltu 1530 og þangað til Napóleon yfirtók eyjarnar 1798). Þeir trúðu því að ofan á klettinum yxi jurt með lækningamátt, fungus, sem þeir notuðu til að leggja á sár og sendu til konungdæma í Evrópu. Því miður hefur síðan komið í ljós að jurtin hefur engan yfirnáttúrulegan mátt. En kletturinn er fallegur engu að síður og sjórinn svona dásamlega blár.Og hvað er svo meira skemmtilegt að sjá? Eitt af því sem stendur upp úr í ferðinni er heimsóknin í Stjána Bláa þorpið en það stendur enn síðan myndin um Stjána Bláa með Robin
Williams í hlutverki Stjána var tekin upp á Möltu 1979. Það stendur í fallegri vík og á sólríkum degi er ekkert dásamlegra en að eyða deginum þar með Stjána Bláa, Gunnu Stöng og fleiri góðum.Einnig er afar huggulegt að labba um höfuðborgina Valletta og sitja á útikaffihúsum og njóta sólarinnar. Gamla höfuðborgin Mdina er ómissandi áfangastaður. Aðeins er hægt að komast inn í borgina um þrjú hlið, göturnar eru þröngar og hlykkjóttar, hannaðar til að fela sig fyrir óvinum. Vegna þrengsla er ekki mögulegt að vera á farartækjum í borginni nema að mjög takmörkuðu
leyti og hefur hún því verið nefnd the silent city. Þetta er allt svo fornt þarna að manni finnst maður bara vera að labba inni í biblíusögurnar og bíður bara eftir því að lærisveinarnir tólf komi marserandi á móti manni í einfaldri röð.Að lokum verður að minnast á eitt aðaleinkenni Möltu, bátana luzzu sem hafa verið notaðir á eyjunum síðan á tímum Fönikana. Þeir eru litríkir og hafa allir auga öðru megin á stafninum. Augað er hið sívökula auga Osiris, eins af mikilvægustu Egypsku guðunum, sem á að fæla frá hið illa.
Mér finnst eitthvað svo ótrúlega heillandi við þessi gónandi aug
u framan á litskrúðugum flotanum. Fjárfesti því í einu slíku sem mun verða fest upp í andyri framtíðarheimilis míns á gamla góða Íslandi. Og þá hlýtur maður nú að verða í nokkuð góðum málum.Síðast en ekki síst ( ef einhver hefur nú lesið þessa löngu tölu) vil ég óska Elísu til hamingju með afmælið í dag! Guðný átti svo afmæli þ. 11. og Birgitta fagnaði 35 ára afmælinu sínu þ. 13. Það er nú meira hvað þið raðið ykkur niður á þessa daga elskurnar. Og nú svo að það sé nóg er dagurinn hennar Ingu Salóme þ. 18. !!
Til hamingju allar saman, þið eruð æði.
Luv, McHilla.
P.S. Fyrir þá sem vilja kíkja á fleiri myndir úr fríinu er ég búin að hlaða inn á barnanetið. Ég er búin að læsa myndaalbúminu og lykilorðið er edinborg.

8 ummæli:
Dásamleg ferðasaga:) Mig langar til Möltu!
Segi það sama :) Líst rosalega vel á Möltu eftir að sjá myndirnar og lesa ferðasöguna, ótrúlega sjarmerandi. Vonandi hafið þið það gott, sendum knús á línuna :*
Frábært! Þetta hljómar ekkert smá heillandi... Fer á listann yfir löndin sem ég ætla að skoða ;).
Takk fyrir afmæliskveðjuna :o).
B
ummmmmmmmmm mig langar líka !!!
Já vá ég var bara komin til Möltu í huganum, frábært að lesa þetta. Vonandi ertu nú að jafna þig á eitruninni, meiri óheppnin að næla þér í þetta. Takk fyrir spjallið um daginn og takk fyrir afmæliskveðjuna. Heyrumst fljótt ISS thirtythree.
Takk fyrir flotta ferðasögu. Segi það sama og görlíurnar hér að ofan... mega spennó!
Svo segi ég líka það sama og Inga ammmælisdeppa, þ.e. takk fyrir afmæliskveðjuna. Heyrumst fljótt og takk fyrir spjallið um daginn. Þú ert flott Hildur mín og góð vinkona! Guð geymi.
Einstaklega skemmtileg lesning, Malta mun sömuleiðis fara á minn ferðalista! Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn!
Kveðja,
Vilborg
Ju hvað mig langar til möltu núna! Þú ættir að vera á % hjá þeim þarna suðurfrá mér sýnist þú vera komin langleiðina með að fylla eina breiðþotu kona góð.
Skrifa ummæli