laugardagur, mars 18, 2006

Annarlok...


Á fimmtudaginn var næstsíðasti fyrirlesturinn minn og við það tækifæri var þessi hópmynd tekin í síðasta tíma hjá prófessor Fraser. Og svo bara skelltum við okkur út að borða og maður var bara úti til 9, legg ekki meira á ykkur. Á myndina vantar örfáa en þetta er hópurinn minn svona more or less. Því miður sést ekkert í hina írsku Vivienne sem ég skyggi alveg á þarna, í öllu mínu veldi. Hún og landi hennar, Kevin eru án nokkurs vafa stuðboltarnir í hópnum.

Hér til hliðar er Kevin ásamt hinni jórdönsku Tölu, sem eru meðal þeirra er ég hef kynnst hvað best í vetur. Allt er þetta mikið öndvegisfólk. En jæja, nú er best að eyða ekki tímanum í blogg heldur að halda áfram með ritgerðirnar. Svo er Keli káti karl í heimsókn og eitthvað verður nú að sinna honum líka....Nóg að gera þessa helgina sem sagt.

Lov, Hilla

8 ummæli:

Magga sagði...

Þetta er sannarlega föngulegur hópur :) Gangi þér vel í ritgerðarmálunum og vonandi eigið þið góðar stundir með Kelanum...

Kveðja frá Stuðheimum

Nafnlaus sagði...

En svakalega smartlegur og gáfulegur hópur. Að sjálfsögðu ber íslenska valkyrjan af :-)
Gangi þér vel með rigerðir og vonandi hafið þið notið heimsóknar Kelmundar.

Nafnlaus sagði...

Já föngulegur hópur, ekki spurning. Er bara verið úti á galeiðunni....til 9 my omy.
Later ISS

Nafnlaus sagði...

Já fjarskalega eruð þið spekingsleg og ég er auðvitað sammála því að íslenska valkyrjan sé þarna langsterkust!
Ha´det bra, kv Ásta

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Síðasta kennslustund hjá mér í dag!
Sumarið kemur víst á sunnudaginn: Fann það hér http://wwp.greenwichmeantime.com/info/bst.htm að sumartíminn amk hefjist klukkan 1. eftir miðnætti þann 26.mars, síðasta sunnudag í mars, og þá á víst að færa klukkuna fram um klukkutíma. Hmm.. töpum við þá einum eða græðum einn? Get aldrei fattað þetta!

McHillary sagði...

takk fyrir þetta! hvernig nenna þeir að vera færa þessa klukku? þar sem við græddum einn í okt. og töpum núna einum komum við út á sléttu! til hamingju með að vera búin í tímum, kláraði minn síðasta á mánudaginn. Vonandi síðasta fyrirlesturinn in my life...

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Heyrðu Hilla, hvaða skónúmer notarðu? Er hér með óskaplega hlýjar prjónaðar tátiljur sem mér voru sendar af Klakanum, sem eru númer svona 38 og þ.a.l. heldur litlar á mínar stórbeinóttu og sterklegu bífur. Þetta eru svona "prjónaðar alltof stórar úr lopa og svo þæfðar í vél tátiljur."

p.s. Ég hef neyðst til að drekka rauðvínsflöskuna sem ég keypti handa okkur um daginn alein út af þessum gestagangi og ritgerðastússi hjá þér að undanförnu....

p.p.s Mattinn mætir á svæðið 31. mars og biður að heilsa strákunum.

Nafnlaus sagði...

Sæl skvís Langt síðan ég hef heyrt í þér....er ekki næs að vera búin að fá m&p? kveðja ISS