
fyrir andartaki var lokaslátturinn sleginn í ritgerðinni ógurlegu, 4821 orð takk fyrir. Nú má McHillan stytta herlegheitin um tæplega fimmtung. Habblaha.... svo tekur næsta verkefni við sem er að skoða hvernig velferðinni hér í landi er nú háttað undir Labour government. Það ætti nú ekki að standa í mér. Myndin hér að ofan er af okkur Ingu að hamingjast yfir eigin skemmtilegheitum. Og til að fagna áfangasigri mínum ákvað ég að fanga stemmningu dagsins með því að smella henni hérna centralt. Hún er eitthvað svo hressandi þessi mynd sem tekin var á áhyggjulausu sumarkveldi, nóttin var ung og jólakötturinn sunginn af innlifun. Verð aldrei leið á því...
Ég veit ég sletti of mikið á þessari síðu. Ég hef svolítinn móral yfir því en ég ákvað hinsvegar að leyfa mér að vera ekki í neinu sérstöku málræktarátaki þennan veturinn (hummm) af því að nú er ég sko í útlöndum.
Þið sem þekkið mig vitið að ég er ekkert slæm í íslenskunni... þið sem þekkið mig ekki (ef einhver...) endilega smellið á mig eins og einu kommenti, það hressir mig enn meira við að fá fleiri kveðjur....meiri komment, meiri komment...
Luvvvv, Hilla ritgerðarsmilla.

22 ummæli:
Til hamingju esskan !
Vildi óska að ég væri í þínum sporum og væri að setja endapunktinn á mína ritgerð. En nei...ekki einn stafur komin á blað og ég reyni að finna mér eitthvað til dundurs, þ.e. annað en að skrifa um birtingamynd goðsagna í listum...Eins og til dæmis að byrja að blogga, ja hérna hér...manni er ekki viðbjargandi ;)
Njóttu dagsins :)
Kv.Magga
p.s. þetta er geysilega hressandi mynd af ykkur Ingu ;)
Jólakötturinn í júli...það er ekki að spyrja að því þegar þið Inga eruð annars vegar!
Þetta er fögur mynd. Enda myndasmiðurinn ekki af verri kantinum.
Til hamingju með ritgerðina elskan mín:)
til hamningju ljúfan mín að vera búin að skrifa ritgerðina þína:) ég næ samt ekki alveg þessu með jólaköttinn enda er ég bara nývöknuð. kannski fatta ég þetta um hádegið
Innilega til hamingju mín kæra. Ég vissi það allan tímann að þú myndir nú klára þetta verkefni enda ekki þekkt fyrir annað.
Annars fara líkurnar vaxandi á að þú fáir jafnvel heimsókn í sumar. Ætla að vafra um aðeins meir og slæ síðan á þráðinn til þín fljótlega. Verið er að tala um í kringum 17.júl. Er ekki hægt að gera alveg fullt og skoða alveg fullt í Edinborg og nágrenni fyrir krílin mín?
Bestu kveðjur,
GH
Sælar allar elskurnar!
Ég man ekki betur mín kæra Hildur Birna en að þú hafir farið þarna fremst í flokki og sungið jólaköttinn manna hæst....don't you remember darling? Jólakötturinn hefur mikla tilfinningalega þýðingu fyrir okkur vinkonurnar vegna þess að hann sungum við alltaf þegar við vorum hífaðar og glaðar hérna í denn. Held að jólakötturinn fylgi Eddu svona upphaflega, hún hefur svo skrítinn músíksmekk (bara grín ;) ), og hún sýnir by far mestu innlifun í söngnum...sérstaklega hérna í þessum parti: "hann glennti upp glyrnurnar síííínar, glóandi báðar tvææææær...."
Myndin er tekin á hinu mjög svo eftirminnilega kveðjukvöldi mér til heiðurs í júlí sl. Hvernig er hægt að gleyma því? ég hef aldrei aldrei...
hahahaha.... "ég hef aldrei aldrei...!" Góð hugmynd ha! Skrelix hvað þetta var skemmtilegt kveld!!!
Til hamingju darling með lokastafinn í ritgerðinni. Jeeeahhh!
hafðu það hrikalega gott beibí!
Knús og kveðja.
Komiði svoleiðis alveg margfagnandi Gulla mín..jú það ætti að vera alveg nóg að sýsla fyrir börnene, í það minnsta DT, spurning hvort Þórey Hildur er áhugasöm um kastala og dýflissur...en svo eru líka falleg græn svæði, Botanic gardens og fleira bjútífúl þar sem hægt er að rölta um og hafa kósí in the sun. ( sem vonandi verður), það er því miður enginn svona tívolí park, veit ekki hversu æst þið eruð í svoleiðis...láttu mig vita hvað þið eruð að spá og ég skal advertæsa á vefnum hvort einhver getur leigt ykkur íbúð..
Já það er ekki af okkur skaffið vinkonunum þegar við tökum okkur til. Ef ég man rétt þá byrjuðum við að kyrja þetta ágæta lag í leigubílum í þeirri ágætu borg Bournemouth, þar sem við töldum að hugsanlega væri hægt að fá þarlenda taxadrivera til að slá af fargjaldinu gegn því að fá að hlusta á okkur stöllur taka eitt gamalt með Björk okkar Guiðmunds, sem á þeim árum var orðin seleb í UK. Eftir það er þetta lag kyrjað við öll möguleg og ómöguleg tækifæri. En lagið kemur frá Eddu í upphafi á því er engin vafi. Er þetta rétt munað hjá mér?
Og innilega hjartanlega til hamingju með ritgerðasmíð það er svo gott þegar gengur vel. Knús ISS
æji þið eruð svo frábærar að meira að segja lag um jólaköttinn virðist spennandi þegar þig talið um það :) ég get varla beðið eftir að hitta ykkur allar aftur og fá að syngja þetta með ykkur.. kannski að söngnámið komi loks að gagni :)
Jú Inga mín, þetta er rétt munað með leigubílana, sennilega hefur samband okkar við Jólaköttinn hafist þá...come to think of it held ég samt að við höfum aldrei fengið afslátt, sem er nú alveg makalaust merkilegt.
Hildur B: ekki spurning að halda verður sérstaka Jólakattargleði hið fyrsta...en náttúrulega ekki nema ég sé með...
Innilega til hamingju með ritgerðarlokin darling!!
Myndin af ykkur Ingu er BARA snilld. :-)
... alveg svooooona gaman!!!
Kv.
Unnur sem er að fara til Amster, gista á Krasna og dansa í tunglsljósinu eftir bara viku ....
Hæ Unnsa mín. Úff ritgerðarlokin segirðu, hitti kennarann minn í dag sem þurfti að fara að koma með ný aspects á efninu mínu.Ferfalt ARGGGG, "He is all over the place" sagði Chad vinur minn um þennan ágæta kennara og því get ég svo sannarlega verið sammála. Á því hellings vinnu eftir.
Ó gvvuð hvað ég öfunda þig að vera fara á Krasna, ef ég ætti myndina á stafrænu af okkur að skála í the finest champagne in town á Amsterdamflugvelli myndi ég smella henni sko beint inn á síðuna mína... þá var nú gaman að vera til...Luv, Hilla.
Já ég styð svo sannarlega tillögu Hildar. Jólakattargleði verður haldin við fyrsta tækifæri þegar frúin af Edinborg mætir á klakann....
jújú ritgerðarLOKIN er kannski ,,doldið" frjálslega farið með staðreyndir en þau nálagast..... :-)
Ó já það var gaman að vera til í Amster og ég get lofað þér því, mín kæra, að ég mun skála fyrir þér í the finest champagne in town alveg frá morgni til kvölds í þeirri ágætu borg!
Til hamingju með áfangann í ritgerðarsmíðinni! Það er nátturulega ekki af þér skafið. gosh það er bara eins og maður hafi verið þarna með ykkur í jólakattarfárinu... frábærar lýsingar þetta var greinilega stórskemmtilegt hjá ykkur. Áfram með bjarta daga og skemmtilega:)
kv, Ásta
Jamm...ástarævintýri mitt og jólakattarins. Og leigubílarnir í Bournemouth. Aumingja vesalings bílstjórarnir.
17 komment - ég verð sko bara abbó! En bæti þessu við: Til hamingju með að hafa þetta á bak við þig, er í sama sjöunda himni af sömu ástæðu! Jessmann!
18 komment - and still going strong!
yesss, ætla sjálf að slá 20 kommenta múrinn!
Ójá ég er ekkert smá lánsöm, það lærir maður svo sannarlega að meta betur þegar maður er from a distance að endurmeta sjálfan sig og lífið. Kveðjurnar frá ykkur halda mér bara alveg gangandi!
Ást, kossar og kveðjur til ykkar allra.
P.s. Elísa mín, hún Gulla er að spekúlera í Skotlandsreisu í sumar og er að velta því fyrir sér hvert er gaman að fara með familíuna. Ég hef nánast ekkert farið fyrir utan Edinborgina og því ert þú nú sennilega bara rétta manneskjan til að gefa henni tips eftir að hafa straujað hér um allar sveitir í fyrra sumar, ekki satt??
Það er nú ánægjulegt að heyra, Hillý mín það er engin spurning að bloggið þitt skemmtir mér ævinlega, sérstaklega þó ógleymanlegur kreminal. Hefurðu eitthvað frétt meira af því máli. Ég skal sko vera ennþá duglegri að kvitta. Svo heyri ég nú í þér fljótlega á skypinu. Take care svítý og fariði varlega. ISS
Já kreminalinn var nú alveg toppurinn á bloggferli mínum so far, hahhh...Hef ekkert heyrt af málinu, ég var í svo miklu uppnámi fyrir áramót að ég lagði það ekki á mína litlu sál að hringja í Pc. Hamilton. Hinsvegar ímynda ég mér stundum að ég mæti frú Kennedy barnfóstru á förnum vegi og sendi henni í meira lagi eitrað augnaráð...en ég læt þar við sitja.
Það var hinsvegar gott að hægt var að hafa gaman af öllu saman...
Heyrumst endilega á skype darlingur!
Skrifa ummæli