Í fréttablaði sem kemur hér inn um lúguna vikulega segir frá því í dag, að feðgar tveir hafi verið teknir inn til yfirheyrslu fyrir að transporta með lík.
Og það lík húsmóðurinnar sem gaf upp öndina, 74 ára gömul á sjálfan Valentínusardag (af eðlilegum orsökum víst). Eftirlifandi eiginmaður og sonur klæddu hana upp í sitt fínasta púss fyrir síðustu kvöldmáltíð fjölskyldunnar sem fór fram daginn eftir andlátið og svo bara rúlluðu þeir henni út í taxa í hjólastól og keyrðu með hana einar 60 mílur héðan og til Englands þar sem kellingunni var bara skellt í frost. Aðrir ættingjar konunnar leituðu til lögreglu um hálfum mánuði eftir andlát hennar vegna þess að ekkert bólaði á jarðaför. Feðgarnir eru alveg fjúríus yfir því að lögreglan sé að blanda sér í þetta því með þessu voru þeir að uppfylla hinstu ósk gömlu konunnar. Ekki fylgdi sögunni hvers vegna í ósköpunum þessi gjörningur var henni svo mikið hjartans mál. En lögin eru víst þannig að það má víst ekki drösla líkum yfir landamærin bara sisvona og svo er það víst skylda að jarða fólk.
Það er nefnilega það. Það sem fólki dettur í hug að leggja á fjölskylduna sína. Ég sé þessa kvöldmáltíð alveg fyrir mér. Jæja, maður á kannski ekki að vera grín að þessu, en það er nú varla annað hægt...
Lov, Hilla
fimmtudagur, mars 09, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

3 ummæli:
Ja hérna. Það er ekki öll vitleysan eins. Það er kannski einmitt út af svona fólki að það eru akjúallý sett lög um þetta.
kv ISS
Jeminneinasti, þetta er alveg magnað! Spurning hvaða trú þessi familía aðhyllist, einhverja "upprisu holdsins" kenningu...
Varðandi þetta bankarán sem þú varðst fyrir - sá einmitt eitthvað í BBC í fyrrakvöld um fólk sem er komið í stríð út af gjöldum í bankakerfinu og komið með þá fyrir rétt út af einhverju sem mig minnir að hafi verið kallað ...man það ekki, "charge" eitthvað og þeir eiga að endurgreiða fólki sem sækir um það. Voru með heimasíðu og samtök og alls konar skammir sem var virkilega gaman að heyra.
obbobobb, ég gæti nú vel hugsað mér að joy-na þessum samtökum, skal svo vera jafn aggressiv og þeir sem mótmæla hnattvæðingunni og gvvuð veit hverju, þetta er eins ó-liberal og frekast getur verið og sýnir það að það er enginn andsk...samkeppni hér frekar en annars staðar! Alltaf verið að vernda aurapúkana...einhverra hluta vegna færist a.m.k. Björgúlfur Thor alltaf ofar á Forbes listann....
þarf að finna þessa heimasíðu og deila reynslu minni þar hið snarasta...
Skrifa ummæli