þriðjudagur, mars 07, 2006

Geðvonska


Bráðum verð ég að skipta hér um viðskiptabanka eða í það minnsta útibú. Í dag beit ég nefnilega næstum af þeim hausinn í útibúinu mínu. Og ástæðan, jú, bankinn rukkaði mig 38 pund fyrir að það vantaði rúmlega 1 pund til að hægt væri að borga reikning í beingreiðslu. Samt fór ég ekkert yfir á reikningnum eða neitt slíkt, heldur gat fyrirtækið bara ekki tekið út af reikningnum og því var hann ekki borgaður. Ég mátti náttúrulega borga companíinu sekt, frekar hóflega upp á 10 pund og allt í góðu með það, en mér finnst það alveg óskiljanlegt að bankinn skuli taka næstum 4000 kr. fyrir nákvæmlega ekki neitt. Administration costs, sagði bankastarfsmaðurinn. Hah! Meira administrationið það. Ég var bara alveg reglulega furious og lét svona dálítið eins og þetta væri þeim að kenna, Charlotte og félögum þarna í bankanum sem eru alla jafna frekar sljó. Ekki var það til að bæta mitt geð þegar strákurinn sagði með ólund að þetta væri gjald fyrir að misnota bankareikninginn. Nation-wide policy. Nú flokkast ég semsagt bara sem misuser út af þessum hundraðkalli. Það er bara ekkert annað.

Ég var samt eiginlega alveg tútal þarna þegar ég fer að spá í því, næstum jafn óþolandi og liðið sem tók vandamálin sín út á kassanum í Miklagarði hérna í denn. Þegar maður hamaðist bara við að stimpla inn PLU og mátti ekki vamm sitt vita. Sælla minninga....
En jæja, best að fara ekki í bankann á næstunni ... sérstaklega ekki meðan ég er með the embedded liberalism í ESB á herðunum.

Og þegar ég er búin að klára önnina, nánar tiltekið um næstu mánaðarmót (ferfalt jibbí), ætla ég að tríta mig svoleiðis á verðlauna-snyrtistofunni að ég verð eins og 10 ára þegar ég kem út. Þegar ég tek mér pásu blaða ég stundum í bæklingnum með the wide selection of treatments og læt mig dreyma. Maður verður víst alltaf að hafa eitthvað til að hlakka til, það kemur manni í gegnum ótrúlegustu hluti...
Og gvvuð minn góður hvað ég mun eiga inni fyrir því.

Luv, Hilla.

p.s. Heldur þykir mér orðin mikil gúrkutíð á mbl en í kvöld er actually sérstök frétt um það að það er bara óánægja með skólamötuneytið á Ísafirði. Óánægja foreldra felst aðallega í því að á boðstólnum er tilbúinn matur svo sem naggar og buff og krakkarnir kvarta yfir fisknum. Maður er bara alveg hlessa eða þannig...heldur betur saga til næsta bæjar...skyldi vera eitthvert skólamötuneyti þar sem ekki er kvartað undan þessu?

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvurslags peningaplokk er þetta ! Ég skil þig vel að verða svoldið frústreruð yfir þessu. Já nú fer þetta að styttast hjá þér, bara að koma vor... Jiii hvað tíminn er fljótur að líða !

Hér eru allir sæmilega ferskir, krossleggjum fingur að litli ráðherrann kræki sér ekki í fleiri pestir í bráð :)

Jæja vonandi hafið þið það hyggeligt.
Bestu kveðjur

Nafnlaus sagði...

Ég varð nú bara ill af því að lesa þessa frásögn. Ég skil vel að þú hafir stokkið upp á nef þér. Það hefði ég svo sannarlega gert sjálf. Urrrr!

Nafnlaus sagði...

Guð hvað ég skil þig vel elsku Hildur mín, þetta er nú bara peningaplokk af fátækum námsmanni.....skil þig vel að hafa ausið úr þér yfir staffi...þau verða fljót að gleyma þessu (eða í það minnsta leggja það til hliðar) eins og við í Mikló!!Bestu kveðjur til þín og þinna ...gangi þér vel þar til langþráða fríið kemur.

Nafnlaus sagði...

datt eitthvað út kveðjan frá mér en hér kemur hún.
kv. Bryndís

Nafnlaus sagði...

Omæ hvað ég man þegar einhverjar brjálaðar húsmæður voru alveg að fara á límingunum yfir einhverjum verðhækkunum, skemmtilegasta sem ég gerði eftir góðan yfirlestur var að brosa fallega og óska þeim góðrar helgar, klikkaði aldrei.

Skil þig vel að verða fjúríus á svona ráni um hábjartann dag.

Knús ISS