þriðjudagur, janúar 10, 2006

Fyrirheit um áramót, efnahagsumræður og ólánsnudd

Hummm já, fyrirheitin mín, ég ætlaði víst að deila þeim núna. Ég vil nú ekki taka svo djúpt í árinni að kalla þetta áramótaheit en einhvurslags heit eru þetta.

1) Minnkuð sykurneysla. Þori ekki að kalla þetta sykurneyslustraff þar sem ég mun ólíklega hafa sjálfsaga í það. Hins vegar ætla ég að huga betur að mataræði og heilbrigðum lífsmáta og reyna að vinna á mikilli lakkrísfíkn minni. (það hefði nú sennilega verið gott start að taka ekki fylltar appolloreimar með út, mmmmmm).
2) Samhliða þessu hef ég í hyggju að rækta andann enn betur og reyna að minnka streituna. Mér hefur verið bent á bók, Slowing down to the speed of life (takk fyrir það Villa ;) ) sem ég ætla að panta og lesa á kvöldin fyrir svefninn. Bókin er eftir Richard Carlson, sem er sá hinn sami og skrifaði Láttu smámálin ekki ergja þig. Einhverjir muna e.t.v. eftir því þegar ég reyndi eftir mætti að tileinka mér speki hans. Í smámálunum segir hann t.d. frá því hvernig hann fer snemma að sofa og vaknar kl. 3 á næturna til að vinna meðan fjölskyldan sefur, horfir á sólina koma upp og hlustar á fuglana syngja. Ég gerði nokkrar tilraunir til að leika þetta eftir (ekki alveg kl. 3 samt..) með litlum árangri. Vona tekst mér betur upp í þetta sinn.
3) Hætta að fara með skólabækurnar upp í rúm og leyfa mér að lesa eitthvað spennandi fyrir svefninn.....það verður heilmikið trít.
4) Verða ennþá skemmtilegri en ég er vön að vera..(það verður erfitt, múhahahahaha) en heit 1-3 ættu reyndar að stuðla að þessu.
5) Nú skulu fjármál heimilins tekin föstum tökum. Greiðsluþjónustunni hefur verið sagt upp, nú ætla ég að sjá um þetta sjálf og hagsýn skal verða mitt middle name. Stigið var mikilvægt skref í þessa átt hér síðla dags þegar ég gekk til liðs við Scottish Power sem ætlar að tryggja mér 17% discount á rafmagni og gasi. Ekki amalegt það. Daman frá þessu kompaníi gaf mér nokkur energy saving tips, t.d. það að skilja ekki eftir gemsa hleðslutæki í sambandi þegar maður er ekki að hlaða símann. Það eyðir víst jafnmiklu rafmagni og að hlaða...vissuði það???

Einhver fleiri heit átti ég nú en þau eru greinilega ekki merkilegri en svo að ég er strax búin að gleyma þeim.

Ég fór í fyrsta tímann minn í gær. Þetta er valkúrs sem virkar spennandi og kennarinn með skemmtilegasta móti. Eina vandamálið er að fyrirlesarinn ákvað að hafa bara einn umræðutíma beint eftir fyrirlesturinn en þeir áttu að vera tveir og annar klukkan fimm en ég á erfitt með að mæta fyrr. Ég bar þetta vandamál upp við kennarann sem er ungur og áhugasamur og vildi alls ekki að ég hætti við að taka kúrsinn vegna þessa. Þetta væri ekkert mál, hann hvort eð er ynni alltaf lengi á mánudögum og ég gæti þá bara verið ein í seinni umræðutímanum. Ó mæ god! Ég og hann í klukkutíma vikulega að diskútera evruna og hið efnahagslega umhverfi Evrópusambandsins út ýmsum kenningum um Evrópusamrunann. Þvílík martröð. Er frekar kramin yfir þessu, vil alls ekki missa af kúrsinum en fæ magaverk í hvert skipti sem ég hugsa um hina 11 umræðutíma er framundan eru á milli mín og þessa ágæta manns.

Svo var ég afar óheppin í hádeginu í dag en ég var búin að ákveða að gera vel við mig og fara í nudd á snyrtistofu er heitir því vafasama nafni bibi beauty. Og þvílíkt nudd ef nudd skyldi kalla. Pólska "nudd"konan talaði nánast enga ensku og vissi ekkert hvað hún var að gera, byrjaði með einhverjar kattarstrokur, kleip í mig og kitlaði og endaði svo á því að berja hraustlega í bakið á mér. Ég gat ekki leynt gremju minni þegar hún fór að spyrja mig hvort ég hefði náð að slaka á!!!Nei, ekki gat ég nú fallist á það, ég var alveg hin fúlasta og spurði hana aftur hvort hún væri lærður nuddari. Jú, það hélt hún nú og ég mátti punga út 27 pundum fyrir þessi ósköp. Svo að það sé nú ekki nóg er ég búin að vera ómöguleg eftir þetta og hef skrítna tilfinningu í höfðinu (ég meina, meira en venjulega ;)) og hefur verið hálfóglatt. Ætli hún hafi ekki bara veitt mér whiplash áverka með þessu barsmíðum.
Ætla að vera undir sæng í kvöld og byrja að lesa af fullum krafti á morgun. Ekki veitir af fyrir umræðurnar næsta mánudag...
Luv, Hilla ólánspilla.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hellúú darling!
Mikið óskaplega hljóma þessi áheit þín eitthvað kunnuglega. Nú er lifað á ávöxtun, grænmeti og vatni eftir hátíðirnar, allar sjálfshjálparbækur lesnar spjaldanna á milli og sparnaðarárið 2006 byrjar með trompi!!! Sjáum svo til með hvað þetta endist......
Hafðu það gott mín kæra og ég ætla rétt að vona að ,,nudd"kellingin hafi ekki skaðað þig varanlega :-(
Verðum í bandi fljótlega
Unnur

McHillary sagði...

Hæ Unnsa mín. Svaf vel og lengi í nótt og er alveg í ljómandi ástandi í dag, í það minnsta so far. Kannski hefur bara þurft að lemja úr mér slenið...já það eru alltaf sömu loforðin árlega, en það er nú samt betra en að gefa þetta alveg upp á bátinn..skilaðu nú góðri kveðju til Hildar.
Kv. Hilla

Nafnlaus sagði...

hellúú darling.
Æ skúsan mín... ég hef bara áhyggjur af meðferð þessarar pólsku á þér. Ef þú værir heima kæmi í DV á morgun "fólskuleg árás á nuddbekk!" Farðu í mál við Bibi.
Svo er það hitt málið, umræðutímar. Eins og minns segir nú bara: Shittíbój!!! Hvað ætlar þinns að gera? Allamalla....
Já og eitt enn. Ég bara vissi þetta ekki með gemsann og rafmagnið. Ég er ábbbigilega búin að tapa skrilljónum og úrið tikkar. Áttu fleiri tips?

Nafnlaus sagði...

O já ég man þegar þú ætlaðir að lifa eftir speki þessa ágæta manns, hafði smá nettar áhyggjur af því að þú værir búin að lesa yfir þig á þeim tímapunkti.....en svo varðstu nú aftur eðlileg, þakka guði fyrir það. Díses kræst það er ekkert grín að vera ein í umræðutíma með kennaranum....allamalla...ertu ekki annars vel að þér í evrópska myntbandalaginu og öðru því tengdu. Later skvís.

McHillary sagði...

Hæ gellur, er að reyna að redda barnapíu til að sækja strákana í skólann á mánudögum, svo ég komist í fyrri tímann, það verður að hafa það þó það kosti mig aukalega,umræðutíminn milli mín og Dr. Howarth er óyfirstíganleg tilhugsun. Fékk nýja barnapíu í gær, hún er amerísk og er með Lindu í middle ease studies og ætlar að koma til mín næstu vikurnar, ætla að sjá hvort hún er laus. Fleiri sparnaðarráð segirðu Lísa skvís, maður á t.d. bara að áætla það vatn sem maður ætlar að nota þegar maður er að sjóða í katlinum, voða mikið orkuwaste segja þeir að sjóða alltaf fullan ketil. Svo er eitt með hljómflutningstæki og sjónvarpið, ef þú hefur þetta á standby í stað þess að slökkva alveg, þá eyðir þetta jafnmiklu rafmagni...það er ýmislegt sem maður þarf að athuga í þessu sambandi...Lov jú, Hilla

Nafnlaus sagði...

Safnast saman þegar saman kemur! Ég held ég væri nú barasta orðin rík ef ég hefði vitað að þessum tipsum fyrr. En svo er auðvitað svaka munur á orkuverði milli landanna.
Annars hugsa ég oft pabba Salóme minnar þegar ég set tækin mín á standby. Það er víst gasaleg eldhætta á því.
Já sei sei... svona er það nú.

Nafnlaus sagði...

Flisss, og það er svo fyndið að við öll systkinin tökum tækin helst úr sambandi áður enn við förum að sofa og förum öll svona "eldöryggishring" á kvöldin. Og við vissum ekki að hvort annað gerði þetta fyrr enn þetta kom einhvern tíma upp í spjalli. Makalaust hvað maður tekur með sér úr heimahögum ;)