Elísa kom með dálítið gott komment hérna fyrir síðustu færslu að ég hefði getað látið slá hinni "fólskulegu nuddárás" upp á forsíðu DV. Ekki spurning, þeir hefðu keypt það eins og skot. Með því hefði verið hægt að rústa á einu augabragði ferli pólsku nuddkonunnar sem e.t.v. hefur ákveðið að freista gæfunnar eftir stækkun ESB til austur. Það er annars með ólíkindum hvernig starfsmenn þessi snepils leyfa sér að haga sér. Horfði á fréttirnar í gegnum netið í gær og er bara alveg gáttuð yfir þessu öllu. Held þó að það verði lítil breyting á, nema ef fólk skyldi nú hætta að kaupa þennan ljóta pappír.
Annars er eitt aðkallandi mál er ég þarf að biðja ykkur um að aðstoða mig við. Þannig er að ég er að missa mitt kæra netfang hildusi@hi.is núna 16. jan. þar sem ég er víst ekki lengur í HÍ. Mig vantar nýtt netfang pronto, en ég er með skólanetfang hér sem er svo langt og ómögulegt að það myndi aldrei ganga. Ég þarf netfang þar sem ég hef nóg geymslupláss þar sem ég er ekkert of dugleg að eyða mailunum mínum. Ég held að gmail ætti að henta vel en það virðist ekki vera hægt að skrá sig á það. Getið þið nú aðstoðað mig við þetta, bent mér á einhvern góðan póstþjón eða hvernig ég kemst á þetta gmail?
Með fyrirfram þökkum, Hilla
fimmtudagur, janúar 12, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

6 ummæli:
Sælar skvís.
Það er ekkert mál að skrá sig inn á Gmail hjá Google. Held að þetta sé mjög sniðugt póstforrit og sé (í minni vinnu) sífellt fleiri nota það.
Slóðin til innskráningar er:
https://www.google.com/accounts/NewAccount
Vona að þetta virki for you my dear.
Þú póstar svo vonandi nýja netfanginu hérna inn svo við getum bombardað þig með ruslpósti...
Kveðja,
B
takk fyrir skjót viðbrögð mín kæra Brigitte, mun skrá mig bara núna strax. Auglýsi netfangið síðan svo ég missi nú ekki af neinu.. luv, H
Heyrðu þetta er víst þannig að einhver sem er með svona netfang þarf að senda mér boð um að gerast member, þetta er eitthvað exclusive dæmi. Getur einhver velviljaður sent mér slíkt boð???
Hmmm, voðalega er það skrítið. Kjánalegt eiginlega bara....
Skal athuga hvort ég finni einhvert fórnarlamb í þetta.
kv,
B
maría var að fá sér svona gmail.com eins og þið sáuð kannski. mariarebekka@gmail.com.
Hæ, hefurðu tjékkað á yahoo? Það er hægt að hafa 1 gb af pósti þar inni :)
Tjékk on it,
kv. Harpa
Skrifa ummæli