sunnudagur, janúar 08, 2006

Aftur í Edinborg.

Bestu nýársóskir til ykkar allra.
Þá erum við komin aftur heim og því er ekki að neita að það var ósköp ljúft þó okkur hefði vissulega þótt erfitt að kveðja okkar nánustu. Það var ekki laust við að við værum eftir okkur eftir ferðalagið enda lítið sofið nóttina sem lagt var af stað. Helgin hefur því verið afar róleg, ég græjaði heimilið á föstudaginn, gekk frá dótinu okkar og keypti inn og við fórum ekki út fyrir hússins dyr í gær en fengum nágranna okkar Matthías og Vilborgu í heimsókn.

Ég var bara svo ósvífin að afþakka fótbolta fyrir drengina en Lindsay hringdi hérna stuttu eftir að inn var skriðið á föstudaginn og vildi endilega koma og sækja piltana í fótbolta fyrir kl. 9 í gærmorgun. Nei takk, þennan eina laugardag langar mig að sofa þangað til mig langar að vakna sagði ég. You are a cruel mother sagði þá Lindsay. Það verður að hafa það...í þetta eina skipti. Svo átti nú heldur betur að sofa vært í nótt og vakna í fyrra fallinu og fara út að spóka sig. Hinir nýju nágrannar mínir hér á annarri hæð ætla hins vegar ekki að gera manni helgarsvefninn auðveldan. Þetta eru ungir krakkar sem fluttu inn í byrjun desember. Daginn eftir að þau fluttu inn var haldið þetta þvílíka teiti. Og það var nú ekkert smá. Við héldum að húsið myndi hrynja. Undir morgun dugði svo ekkert minna en óeirðalögregluna (yess, hjálmar and everything, alveg eins og á G8...) til að ferja liðið út í 6-8 manna hópum. Það reyndust vera yfir 60 manns í íbúðinni. Það kom reyndar ekkert á óvart miðað við djöfulganginn. Og núna var sem sagt teiti aftur í gærkvöldi, það lá straumur fólks inn og út úr íbúðinni í alla nótt og þau síðustu fóru út um kl. 8 í morgun. Þetta er sérlega óheppilegt því inngangurinn í stigaganginn er akkúrat hinum megin við svefnherbergisvegginn hjá mér og þetta lið er nú ekkert að reyna að ganga pent um. Frekar mikið anti social people sýnist mér. Hef ekki meiri þolinmæði gagnvart þessu liði og mun hringja og kvarta á morgun í leigumiðlunina sem sér um íbúðina. Af þessum sökum fengum við eðlilega ekki eins væran svefn og áætlað var og fórum ekki út fyrir en eftir hádegi. Dagurinn í dag var yndislegur, smá kalt en sól og heiðskírt. Við fórum í skemmtilegt safn, Camera Obscura sem er elsta “attraction” í Edinborg, eða 150 ára. Þar skoðuðum við borgina í sjónaukum og fengum að upplifa hvernig hægt er að blekkja augað.

Nú byrjar hin venjulega rútína á morgun. Strákarnir mæta í skólann aftur og ég fer í fyrsta tíma annarinnar eftir hádegi. Úff. Get ekki annað sagt. Það verður heldur betur átak. Hefði alveg þegið nokkra daga í viðbót í rólegheitum, það fer svo skrambi vel um okkur hérna. Ég ætlaði að koma heldur betur með ferskar hugmyndir um mastersverkefni úr Íslandsfríinu en verð að horfast í augu við þann kalda veruleika að hafa ekkert spekúlerað í þá átt. Alla malla, það er því nóg fram undan.

Biðst aftur afsökunar á því að jólakortin mín voru afar sein á ferðinni, hummm, þau skiluðu sér væntanlega til ykkar öðru hvoru megin við áramótin. Veit þið fyrirgefið mér, ætla að standa mig betur næst...hef nokkur fyrirheit fyrir nýja árið og ætla að deila þeim með ykkur í næstu færslu...
Takk fyrir frábærar stundir í fríinu, það var svo gaman að hitta ykkur öll.
Bestu kveðjur, McHilla Edinborgarpilla.

P.s. Er búin að vera hlaða inn myndum á barnanetið, endilega kíkið: www.barnanet.is/1777.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ skan og takk fyrir síðast:) Æðislegt að fá ykkur heim yfir hátíðirnar! Ég hringi fljótlega...á fullt af mínútum inni núna.

Nafnlaus sagði...

Hallúúúú. Tak för sidst og þarsidst. Mikið var nú gaman að hitta þig mín kæra. Frábært að skoða myndirnar líka... strákarnir eru svo myndarlegir og svo miklir herramenn. Jahérnahér hvað tíminn líður!
Gangi þér vel að komast í gang aftur.

Nafnlaus sagði...

Sæl skvís

Mikið var nú gott að hafa þig heima um hátíðarnar. Verð í bandi fljótlega. Gangi ykkur vel að koma ykkur í gang aftur. kveðja

McHillary sagði...

Hæ elskurnar!!! Er loksins búin að hlaða öllum myndunum inn á barnanetið, er að reyna að koma mér að því að lesa...hummm, ekki auðvelt. Allt byrjar strax á fullu og þarf að koma mér í verulega gott stuð. Vona að þið hafið það allar sem best..
Luv, Hilla

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Hæ og takk fyrir tilvísunina, verð fastur blogg-lesandi héðan í frá! Ætla að skella myndinni af strákunum inn hjá mér líka. Sjáumst sem fyrst - n.b. þarf væntanlega ekki að hafa nein not af Asleigh þetta misserið, kemur þó betur í ljós í næstu viku.