Haldiði ekki að barnfóstran ógurlega hafi launað mér að lokum með því að ganga út með dýrustu kremin mín. Og eins og ég er ægilega skaðasár. Hún hefur dýran smekk, þetta var dýrasta krem er ég hef á ævinni keypt, La Praire krukka sem kostaði 6000 kr. í fríhöfninni og svo Chanel ægilega fínn hrukkumaski. Andvirði þessa hvoru tveggja er svona 10.000 krónur. Það rýkur úr mér eins og eldspúandi dreka yfir þessum ósköpum. Þvílík ósvífni. Þetta þýðir að kerlingarrottan hefur verið að gramsa í gegnum mitt persónulega dót inn á baðherbergi. Ég notaði þetta sjálf síðast á þriðjudaginn áður en hún kom og veit alveg nákvæmlega hvar ég setti þetta. Ég tók fína fína kremið mitt og setti það í tösku upp á baðherbergishillunni. Þannig að hún hefur þurft að leita að þessu. Ég uppgötvaði þetta í gærkveldi og jafn handviss og ég sit hér að svona er í pottinn búið, því það hefur enginn annar komið hingað inn.
Það er slæmt að missa kremin mín og nú er þessi hrukkukrókódíll einhvers staðar að maka þeim á sig. Verra þykir mér þó að manneskjan skuli hafa notfært sér mig á þennan hátt. Ég verð að viðurkenna að ég er ægilega sár og bara upplifi þetta sem algjöra árás. Inni á mínu eigin heimili. Hún var á þrusulaunum hérna við að gera nákvæmlega ekki neitt. Eins og ég hef áður sagt þá er alveg klárt að hún hefur hvergi komist í betra jobb. Kannski er þetta lærdómurinn sem ég á einmitt að draga af þessu. Að gera of litlar kröfur. Ef ég hefði verið meiri harðstjóri hefði hún sennilega ekki vogað sér þetta eða hvað? Kannski vegna þess að ég er ung og útlensk og á rosalega mikið af snyrtidóti. Kerlingin þekkir ekki íslenskan lífstíl og veit sennilega ekki að maður er kannski ekkert rosalega well off þó maður líti út fyrir það. Keli er í sjokki. Aðallega yfir því að hafa komist að því hversu dýrar kremdollurnar mínar eru.
Langaði að deila þessu með ykkur. Ég veit ég sé kremin mín aldrei aftur en ég ætla að hringja í skrifstofuna og láta reyna á réttindakaflann minn um prívasíið sem mér var lofað. Svo bara verð ég að gleyma þessu. Þetta er allt karma eins og Edda mín segir. Kerlingin fær þetta í bakið einhvern tíma. Ég er samt með þeim ósköpum gerð að ég get fengið svona á heilann. Ég hef það frá ömmu minni á Akureyri. Einu sinni hvarf frá henni mjólkurkanna úr stelli sem langafi keypti ages ago og var ömmu afar hjartfólgið. Hún þóttist alveg viss um hver hefði tekið könnuna og endaði á því að fara til miðils í Reykjavík til að grafast fyrir um örlög mjólkurkönnunar. Þar fékk hún að vita að kannan væri í tveimur hlutum og hún sæi hana aldrei meir. Kannski enda ég á skyggnilýsingafundi út af kremunum mínum í jólafríinu. Í það minnsta er það ljóst að ég kem krumpaðri heim um jólin en ég hefði ella gert.
Luv, Hilla kremlausa-pilla
sunnudagur, nóvember 20, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

7 ummæli:
Hrukkukrókódíll hehehe. En mér finnst enn að þú eigir að hlíta ráðum konukindarinnar á ráðningarskrifstofunni og kæra...það er bara ekki hægt að láta taka sig svona í þurrt ****gatið. Karma or no karma. Og fyrst við erum að tala um Karma, þá er það ekki gott karma fyrir þig að óska henni slæms karma, svona ef þú vilt vera on the safe side;)
Sagan um mjólkurkönnuna var afar skemmtileg. Það er nú meira hvað þessar ömmur þínar eru uppátektarsamar! Hver man ekki eftir sögunni af ömmu Dúllu og heimsókn hennar í húsgagnaverslunina á sólbjörtum degi?
jæja, þarna þurrkaði ég út kommentið mitt í bríaríi, það hljómaði einhvern veginn svona:
hahahah, það var dálítið gott þegar mér var óskað slæms karma á hinu háttvirta Barnalandi..kannski er það bara að rætast núna, ég verð fórnarlamb í Skotlandi af því að ég sveik kerlinguna um barnastólinn. Er að semja stragedíuna mína, læt vita hver framvindan verður. Ég ætti nú kannski að segja tryggum lesendum mínum söguna af ömmu Dúllu og ferðum hennar á hinum gamla Volksvagen...það muna sennilega flestir eftir hinni rosalegu ferð í Valhúsgögn.
svei mér þá ef ég hef ekki heyrt eitthvað um téða Valhúsgagnaferð.
Ég verð eiginlega að hringja í mömmu og segja henni frá kremdolluþjófinum, ef einhver skilur your pain þá er það hún ;) Later skvís og takk fyrir spjallið í gær. Ertu búin að ákveða hvað næsta skref verður?
ISS
Sælar dömur mínar. Update af kremþjófnaðinum. Nú sit ég og bíð eftir lögreglunni en ég hringdi áðan og það á bara að senda officer hingað heim til að skoða the crime scene. það er bara ekkert annað. Ég bíð hérna tilbúin með útprentaðar myndir af þýfinu...
Allamalla.... þetta er bara að verða eins hinn besti reyfari! Er Taggart semsagt á leiðinni til þín?
En ég skil þig vel!! Yrði brjáluð ef bjútí kremunum mínum yrði stolið og maður sæti eftir með krumpað og ókremað ennið!
Kannski að sjálfur Taggart rísi upp frá dauðum til að upplýsa málið. Læt vita hvort rétt er...Sit enn og bíð, það er greinilega eitthvað meira emergency í gangi en þjófnaður á kremunum mínum. Strange but true!
Skrifa ummæli