Má til með að koma með nýjasta up-date af krem-inal málinu. Kerlan á skrifstofunni fór alveg í klukku þegar ég hringdi í hana á laugardaginn og fannst bara rétt að ég kærði barnfóstruna til lögreglu. Ég ákvað því bara að gera það. Vera ekki með neina linkind en ég er nú bara búin að vera í töluverðu uppnámi yfir ósvífninni í kerlingunni. Það munaði svo ekki um lögguna er birtist hér í dag. Bara í skotheldu vesti með kylfu og maze-sprey. Alveg í fullum herklæðum. Það vantaði bara hjálminn sem þeir voru með hérna í sumar þegar G-8 fundurinn var. Mér leið kjánalega með útprentaðar myndir af kremunum mínum. Hann hins vegar var bara frekar alvarlegur yfir þessu, fannst þetta violation á mínu heimili, tók af mér skýrslu og skoðaði baðherbergið. Við Gísli vorum hér grafalvarleg að lýsa the suspect. Medium built, small woman with brown curly hair. Og in her mid-fifties. Það var bara eins og við hefðum aldrei gert annað. PC Hamilton ætlar að rannsaka málið, athuga hvort hún hefur verið kærð áður og ef svo er þá bara kemur hann hingað brunandi og tekur af mér full statement. Það dugar þá ekkert minna. Nú hvort sem er, þá fer hann og ræðir við barnfóstruna. Það verður refsingin hennar. Að fá gæjann í strílingunni heim til sín og tilkynna henni að ég hafi kært hana fyrir þjófnaðinn. Það væri gaman að vera fluga á vegg og sjá hvernig hún bregst við því. Hann lofaði að hringja í mig á morgun og láta mig vita um gang mála.
Kerlan á skrifstofunni hringdi hérna aftur í dag og er bara frekar stressuð yfir þessu. Hélt jafnvel að það gæti verið að barnfóstran væri með eitthvert hormóna óbalance sem lýsir sér þá í því að konan hefur ekki stjórn á sér inn á ókunnugum baðherbergjum. Þær ætla að greiða mér þóknunina sem ég borgaði þeim til baka og vonandi fæ ég hana senda í vikunni. En hún bauð mér endilega að hafa samband aftur og þá myndi hún senda einhvern betri. Ekki eru nú miklar líkur á því að ég geri það.
Nú ætla ég að gleyma þessu leiðindamáli og einbeita mér að ritgerðunum mínum. Ekki veitir af. Er alveg að fá flog yfir því hvað tíminn líður. Og ég á enn eftir að skrifa þær nánast frá grunni. Má alls ekki við því að vera rænd á þessum viðkvæma tíma. Ofan í kaupið er ég með flensu og Gísli var vakandi með mígrenikast í mestalla nótt. Þannig að ástandið gæti nú verið betra. Danni okkar fór í morgun í 5 daga skólaferðalag til hálandanna. Ég og hann vorum áberandi mest nervus í morgun þegar krakkastóðið hélt af stað. Þetta verður nú samt örugglega svaka gaman hjá honum.
Jæja, hafiði það sem best.
Hilla.
mánudagur, nóvember 21, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

5 ummæli:
Bévítans kerlingarhrukkan að ræna þig svona...en eins og þú segir, það verður henni fín refsing að fá lögregluna heim til sín. Miðaldra breskar kellur eru nú örugglega ekki mikið fyirr að fá löggeman í heimsókn til sín...slæmt fyrir reputationið ;)
Vona að þið hafið gott saman og gangi þér vel í ritgerðarstússinu.
Ég er stolt af þér mín kæra að láta ekki bjóða þér svona framkomu! Hvernig dirfist hún! This will show her!!!
Þú verður að leyfa manni að fylgjast með framhaldinu, þetta er farið að grípa meira en CSI....
kv,
Birgitta.
Guð minn góður hvað ég ligg á bæn og bið fyrir því að þú finnir nú ekki kremin á bak við ofninn eða uppí eldhússkáp.
Spennandi að sjá framhaldið:)
Jesús haldiði að það yrði nú, ef kremin finndust nú eftir allt havaríið, oó gjúgg í borg...nei, held að það sé nú útilokað, veit ekki hvar það ætti að vera..hef annars ekki heyrt frá fulltrúanum mínum í lögreglunni í dag, hann hlýtur að fara að hringja, hummmmm...kemst annars ekki ískólann í dag, er alveg bakk. Þetta hefur ekki góð áhrif ámann.
Gvöööööð mín kæra. Viltu endilega skrifa um leið og episode III af krem-inalnum hefst. Ég er alveg að fara á límingunum hérna.
Gangi þér annars svaka vel að loka á þetta og einbeita þér að skólanum og því öllu. Vona og veit að Danni skemmtir sér konunglega í ferðalaginu.
Skrifa ummæli