Sælinú.
Það er kósíkvöld hjá okkur Gísla en á þriðjudagskvöldum fer Daníel alltaf með vinum sínum að keppa í fótbolta. Þá förum við Gísli í Safeway, gerum innkaup vikunnar og kaupum okkur ljúffengt pasta í alveg svaka miklu majonesi og borðum það yfir Simpsonþætti. Ekki það að það sé ekki ægilega kósí að hafa Daníel heima en eitthvað verðum við að gera þegar hann er að skemmta sér með strákunum en þeir fara alltaf á veitingastað eftir leikina. Það er nú bara heilmikið treat. Í dag höfum við líka miklu að fagna því Gísli minn var nú bara verðlaunaður í dag á assembly fyrir afbragðsframmistöðu. Ég skil ekki alveg þetta assembly system, þetta er eins og í Harry Potter, þau skiptast í houses og svo safna þau golden house points og kredits eftir því hvað þau eru stillt og dugleg. Svo fær einn úr hverjum bekk verðlaunu á vikulegu assembly. Og Gísli minn sem sagt fékk “medal” fyrir að hafa unnið “extremely hard” og náð góðum árangri. Við erum náttúrulega montin af þessu mæðginin enda hafa þessi assembly verið nokkuð til umræðu á heimilinu og ljóst var að Gíslanum mínum langaði nú doldið að fá verðlaun.
Jæja, svo hefur barnfóstran lokið störfum. Síðasta kvöldið var sem sagt í kvöld. Ég þurfti að hringja heim og tala við Daníel og hún vissi ekki hvor þeirra það var. Ég held að það segi allt sem segja þarf. Hún blandaði varla nokkru geði við þá þessi skipti sem hún kom. En það vantar nú ekki að hún vill endilega halda áfram að koma, alltaf að ítreka að ég geti hringt í sig hvenær sem er. Það skil ég vel. Þetta er örugglega auðveldasta job sem hún hefur komist í. Ég er kannski ekki alveg að skilja þetta breska vinnufyrirkomulag. Ég sagði henni reyndar að hún þyrfti ekki að hafa mikið fyrir þeim, þeir myndu sjá um sig sjálfir. Hún mætti hins vegar líta til með heimanáminu. Það var nú það eina. Ég hefði t.d. getað beðið hana um að elda kvöldmatinn en þær eru víst vanar því. Ég get nú ekki sagt að hún hafi “hjálpað” þeim með heimanámið. Ég hélt líka að ég þyrfti ekki að taka það fram að það væri æskilegt að hún yrti á börnin, sérstaklega þar sem hún kemur í gegnum skrifstofu sem hefur það á stefnuskránni að ég nái öllum markmiðum í lífinu. Kannski er þetta bara cultural difference og allt þurfi hér að skilgreina. Ég þurfti t.d. að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis að það mætti m.a. bera á Daníel sólarvörn í skólaferðalaginu sem hann fer í næstu viku og bera á hann kælandi krem ef hann yrði fyrir skordýrabiti.
En jæja, það er gott að þetta er frá og nú kemur Keli bara eftir 2 daga!!! Það er eiginlega alveg ótrúlegt og við höfum bara ekki sést núna í tæpa 3 mánuði. Það er langur tími. Verð því örugglega ekki dugleg að blogga meðan hann er hérna.
Kveðja, Hilla.
þriðjudagur, nóvember 15, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

6 ummæli:
Mikið áttu nú duglega drengi og þeir eru greinilega að blómstra þarna úti (sem og móðirin!)Til hamingju með góðan árangur Gísla, ég sé þetta alveg fyrir mér-svona Harry Potter fílíngur.
Kv.Gulla
Ég gratúlera! frábært að heyra með guttann. Mér finnst þetta alveg hreint frábærar fréttir og hvað þá þegar maður horfir á hvað þið eruð búin að vera stutt þarna úti. Alveg meiriháttar!
Gott hjá þér að losa þig við píuna. hljómar ekki mjög rílæabúl.
Góða skemmtun með Kela þínum!
knús og kveðja
Til lukku með Gísla gæja, hann er nú bara algjör hetja. Að standa sig svona vel.
Mikið er ég glöð hvað til blómstrið þarna úti....og ekki skemmir fyrir þegar Keli mætir á svæðið. Fariði vel með ykkur,knús ISS
Hei, frábær barnfóstra, reddaðu mér númerinu hennar, mig vantar svo einhverja svona pottþétta ;) Flott með stráksa, það eru náttúrulega svo svakalega góð gen í þessu, og allt beint úr móðurættinni.. Gaman að heyra hvað allt gengur vel, nú dreplangar mig til Edinborgar :)
Knús, Harpa.
Takk elskurnar mínar, mér líður dálítið eins og þessum óþolandi kjéllingum sem eru alltaf að monta sig af börnunum, bwaaa, en maður má nú aðeins er það ekki, þeir eru bara svo ánægðir þessar elskur. Já, Harpa mín, viltu númerið?hahahahah, sennilega hefurðu rétt fyrir þér með genin ;) komdu fagnandi til Edinborgar, Huginn getur fengið vinnu í löggunni, þeir eru hér í svona smart skærgulum vestum, ekki alveg virðulegt og júníformin heima verð ég að segja. Vona að þið komið nú að heimsækja mig eftir jól. Skal taka velá móti ykkur, það er t.d. hægt að fara í draugaferð á föstudagskvöldi um most haunted kirkjugarð á öllu Bretlandi held ég bara. Það er nú upplagt challenge fyrir þær sem voru á flughræðslunámskeiðinu...
Jæja, en nú er Keli minn lentur sennilega í Glasgow og ég er búin að gera mig sæta! Luvjú, Hilla
Allamalla krikjugarður og draugar... það væri þá næsta fóbía að komast yfir! Er einmitt að horfa á breskan draugaþátt. Úúúúúú....!!!!
Hafið það dásamlega gott um helgina öllsömul!
Skrifa ummæli