mánudagur, nóvember 14, 2005

Ennþá meira brrrrrrr.....

Hitastigið hérna inni hefur náð sögulegu lágmarki. Ég er heima að læra og er kappklædd, í frotteslopp og dúninniskóm og með sæng og samt er mér svo ískalt að það fer að hægja allverulega á líkamsstarfsemi minni innan skamms. Þá er nú gott að eiga nóg að kjamsa en ég er búin að byrgja mig upp af dásamlegum Marks og Spencer jólakökum með frosty topping. Fór og keypti fullan poka af M&S kruðeríi í gær. I love it. Svo er ég líka brjáluð í víngúmmí, það kemur núna alveg í staðinn fyrir lakkrísinn. Ég er að prófa mig áfram og hef komist að því að Sainsburys víngúmmíð er best. Áður en mamma fór rússaði hún í Sainsburys með strákana í þeim eina tilgangi að kaupa víngúmmí birgðir. Þegar þau komu með fjóra poka að kassanum hafði afgreiðslukonan eitthvað farið að kommenta á þetta undarlega vöruval. "Mamma okkar étur svo mikið af þessu" sögðu synir mínir. Þetta fannst afgreiðslukonunni fyndið og hefur sjálfsagt séð fyrir sér mömmuna sem var búin að éta of mikið víngúmmí til að komast sjálf í búð. Skuggahliðar þessa eru náttúrulega þær að kílóin sitja ansi föst þrátt fyrir mikið púl á hjólinu alla daga. En jæja, maður tekur bara á þessu eftir jól, er það ekki alltaf besti tíminn???
Luv, Hilla gúmmípilla

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mmmmmmm.... ég smakkaði geeeeðveikt kruðerí frá marks og Spencer um daginn.... svona kornflekskökur. Mæli með þeim.. jummí krummí!
Við söknuðum þín svoooo mikið í saumó í gær. Það mættu allar nema þú (snökkt snökkt) og stóð hann stóð langt fram á nótt enda var um margt að tala. þetta eru allt svo mikið góðar stelpur!
Taktu frá 28. eða 29. des. Þá málum við bæinn í þeim lit sem við viljum.
Knús og hitakveðja.

Nafnlaus sagði...

Þrátt fyrir að ég öfundi nú ekki af kuldanum finnst mér þetta hljóma mjög kósí...náttsloppur, sæng, fullt af kruðeríi...yum yum, verst að þú þarft að vera með nefið ofan í skólabókum en ekki góðum reifara.... þá væri þetta nú fullkomið.

Har det bra

McHillary sagði...

Æji ég vildi að ég hefði komist í saumó, vantar núna saumóhitting með ykkur elskurnar mínar og bara allar mættu, það er bara ekkert annað. Tek frá dagana með det samme, annan eða báða, fæ ekki nóg af ykkur, málum bæinn alveg örugglega bara bláan....
Og já Magga mín, betra væri það nú ef ég væri bara að blaða í RED Magazine...herre gud, geri það í des, les bara RED og horfi á myndir á Hallmark...get ekki beðið.
Luv til ykkar