....það er að kólna í Edinborg.
Það var leiðinda veður í dag, hvasst, vott og kalt. Ekki að maður ætti neitt að vera að kvarta þar sem það er fyrst núna að verða kalt hérna en þið elskurnar mínar hafið mátt þola vetur síðan um miðjan september. Það er búið að rigna mikið síðustu vikuna og herre gud, þvílíkt úrhelli. Maður er bara svo rennandi að það lekur í allir áttir og er svona frekar lítið huggulegur að mæta í tíma, nýbúinn að berjast á hjólinu að heiman. Síðasta föstudag rann allur farðinn af mér í bókstaflegri merkingu en ég hafði reynt að gera mig huggulega þegar ég sótti strákana í skólann. Það var bara eins og ég hefði farið í bað þegar ég kom heim. Ég er óvön því að það sé svona kalt inni eins og er hérna í íbúðinni. Íbúðin er ekkert kynnt milli átta og þrjú á daginn og ekkert frá 10 á kvöldin til morguns. Það kyndir enginn hér allan sólarhringinn nema J.K. Rowling og aðrir milljónerar. Ég er stundum alveg hrikalega dúðuð enda kuldaskræfa mikil. Svo kólnar fyrr af því að klukkan var færð aftur um klukkutíma og kyndingarsystemið tekur ekki mið af því. Þori ekkert að eiga við þetta apparat sem stjórnar þessu enda skildi ég varla neitt af því sem hann sagði hérna gaurinn frá Scottish gas þegar hann kom hérna á fyrstu dögunum okkar, nema það að við gætum ekki drepið okkur með því að stinga hausnum í ofninn. Nú væri nefnilega allt natural gas en ekki eitrað gas eins og í gamla daga. Þar höfðum við það og vorum ánægð með að hafa fengið svo gagnlegar upplýsingar.
Við fórum aðeins í bæinn í gær og ég lét pranga inn á mig jólaglimmeri og mun glitra þessi jólin sem aldrei fyrr. Það lítur annars allt út fyrir aðra rólega helgi hjá okkur. Strákarnir fara í boltann í fyrramálið og ég ætla að ritgerast. Við höfum ekkert planað nema kíkja aðeins á Princess Street seinnipartinn og borða kvöldmatinn á Fridays. Jumm jumm.
Kv. Hillary.
föstudagur, nóvember 11, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
Nú ríkir neyðarástand á Klakanum. Já ég meina sko KLAKANUM af því að hér er alveg fljúúúúgandi hálka og annar hver maður kyssir stéttirnar með afturendanum eða hausnum. uss uss uss... best að vera bara inni til að halda kúlinu.
Gvvööööð ekki vissi ég að það væri komið natural gas í Bretlandi. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.
Elsku tjellan. Þú verður bara að skella í þig einum sterkum fyrir svefn til að hlýja þér. Þér má ekki vera kalt.
Bless skan. Saumó hjá Guðný verðandi uppeldisssení túmorróv.
Hehe...þetta er nú fyndið með Scottish gas gaurinn. Ætli honum sé gert að segja fólki þetta fyrirfram svo það geti bara farið beint í pillurnar eða reipið ef það á annað borð er í slíkum hugleiðingum? Ekkert eins glatað og sitja heilt eftirmiðdegi með hausinn í ofninum og bíða eftir því að öndin yfirgefi mann.
hæ elskurnar.
vildi að ég væri með ykkur í saumó...sakna saumóhittinga, verðum að eiga einn um jólin.
Já, það myndi fara inn á Lúser aldarinnar listann, að hanga með höfuðið í ofninum klukkutímum saman án þess að nokkuð gerðist LOL.
Við söknuðum þín sko í gær Hildur, fyrsta skipti í laaaaangan tíma sem það mættu bara allar (nema auðvitað þú) og það var sko setið til 1:30! Höldum einn svona góðan þegar þú kemur, ekki spurning!!!
Skrifa ummæli