fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Vináttan

Linda vinkona mín var að segja mér frá fyrirlestri sem hún fór á um daginn hjá einhverjum Bandaríkjamanni hér í skólanum. Hann var að fjalla um reynslu sína af samningaviðræðum á átakasvæðum og það er skemmst frá því að segja að hann hefur komist að því að það er bara ekkert sem virkar af öllum þessum líkönum sem hafa verið smíðuð um hvernig eigi að leysa slík vandamál. Og lausnin hver er hún, jú það besta sem hann hefur komið upp með er vináttan. Hann lýsti því hvernig hann féll í faðma við einhverja ráðamenn þarna í miðausturlöndum og þeir deildu því að þeir bara elskuðu hvorn annan. Við Linda gátum ekki annað en hugsað til heimalandsins og séð fyrir okkur stjórnmálamennina okkar í slíkum faðmlögum. Hah, það er alveg kreisí hugmynd, eins miklir frosnir ýsukögglar og við Íslendingar getum verið.

Og af hverju er ég nú að reifa þetta hér? Jú, fréttirnar af sprengingunum í Jórdaníu hafa meiri áhrif á mig nú en þær hefðu haft ef ég væri enn bara heima í Frostafoldinni og hefði séð þetta á netinu. Ææ, hefði ég hugsað þetta er nú meiri skálmöldin alltaf, og síðan skrollað niður á fólk í fréttum.

Ég upplifi það sem gríðarlegan plús fyrir mig persónulega að vera að kynnast öllu þessu fólki í prógramminu mínu með þennan víða bakgrunn úr öllum heimshornum. Jórdanska vinkona mín hún Tala, er t.d. ein mest hrífandi manneskja sem ég hef á ævinni hitt en hún er bráðgáfuð, falleg, brosmild og hlý. Algjört sjarmatröll. Hún er að vinna fyrir NGO’s samtök í Jórdaníu, fékk skólastyrk til að koma hingað og ætlar að nota námið til að styrkja lýðræði í Jórdaníu með því að gera almenning og ekki síst konur virkari í stefnumótun. Og maður bara efast ekki um það eina sekúndu að hún nái markmiðum sínum. Það er ekki hægt að verjast þeirri hugsun hversu heimurinn yrði fátækari ef þessi elegant kona yrði eitt fórnarlamba slíkrar tilgangslausrar og ömurlegrar árásar. Tala er í miklu uppnámi yfir fréttunum frá heimalandinu þar sem ríkt hefur stöðugleiki og friður þrátt fyrir róstursamt nágrenni.
Það er ótrúlega skrýtið hvernig hlutirnir verða öðruvísi um leið og maður getur persónugert þá. Mér þykir allt í einu orðið bara vænt um ríki sem ég veit lítið sem ekkert um eins og Tajikistan, Kazakhstan og Georgíu. Þannig á ég eftir að hugsa með velvild til allra heimalanda þessa frábæra fólks sem er með mér í prógramminu í framtíðinni og þau vonandi líka um Ísland. Vináttan er málið, sagði Ameríkaninn í fyrirlestrinum og ég held ég taki bara undir það.
World Peace and Friendship.
Og fullt af ást, ykkar Hilla.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég varð bara klökk á að lesa þetta og er þér algjörlega sammála í einu og öllu. Ást, kærleikur, vinátta = friður
Gulla

Nafnlaus sagði...

Vá Þetta var allt of djúpt svona árla morguns.....en ég hélt samt að ég sé hjartanlega sammála þér ;)
ISS

Nafnlaus sagði...

Fallega mælt Hillí mín og svo mikill sannleikur. Þú ert líka svo falleg að innan sem utan mín kæra.

Nafnlaus sagði...

Góðar vangaveltur svona á þessum síðustu og verstu, Hildur mín, það mættu fleiri hugsa eins og þú...

Can´t we just get along? sagði nú greyið hann Rodney King eftir að löggurnar börðu hann. Ef fólk gæti nú bara látið mannkostina ráða vináttunni en ekki látið stjórnast af kynþætti, trú eða menningu.

Það hlýtur að vera frábært að fá að kynnast fólki frá hinu ýmsu heimshornum...fá innsýn inn í mismunandi menningu.

Og jú ... þau eiga án efa eftir að hugsa hlýlega til þín og Íslands...hvernig er annað hægt..

McHillary sagði...

gaman kæru vinkvennur að þið takið undir þessar hugleiðingar...hafið það sem best um helgina elskurnar

Nafnlaus sagði...

Word!