Í dag er útskriftardagurinn minn og ég get frá og með seinnipartinum í dag, notað titilinn stjórnmálafræðingur. Það er nú víst betra að maður viti þá eitthvað í sinni haus. Eins og maður er búin að bíða eftir þessu mómenti lengi, þá er þetta hálf óraunverulegt. Ég var alveg búin að sætta mig við það að mæta ekki í útskriftina og það var ekki fyrr en í gærkvöldi að mér fannst allt í einu hálf leiðinlegt að geta ekki veitt skírteininu mínu viðtöku. En hvað um það, ég gerði vel við mig í gær og keypti mér þetta fína fóðraða vesti og TVÖ glansmagasín og ég ætla bara að lesa um the best beauty products og high street fashion um helgina. Svo maður sökkvi sér ekki bara í lágmenninguna þá ætlum við í dag í Dynamic Earth sem er svona náttúrusafn. Og fara svo eitthvað gott út að borða því við erum líka að fagna sextugsafmælinu hennar mömmu sem er næsta laugardag. En allavega, svona tímamótum vill maður fagna með vinum og velunnurum og þess vegna langar mig að verða dálítið sentimental og halda hér stutta tölu ykkur til heiðurs:
Í fyrsta lagi á mamma mín alveg svaka mikið í öllu því sem ég hef afrekað því hún er mitt sanna back up og hefur verið mér ómetanleg aðstoð í öllum skilningi. Auk þess eyðilagði hún tvo prentara vegna hins óraunverulega magns af glósum sem hún prentaði út á þessu þriggja ára tímabili og las yfir allar ritgerðirnar mínar sér sjálfri til mismikillar ánægju.
Keli minn fær ótal prik fyrir að vera enn kærastinn minn þrátt fyrir að hafa m.a. þolað kvöldupplestur úr Neill Nugent um stofnanir Evrópusambandsins, sem hann gerði án þess að kvarta. Hann fékk einnig að prenta út nokkuð magn af glósum og leiðrétta ritgerðir. Hann er núna sérlegur ráðgjafi minn í framsetningu á enskum fræðitexta.
Danni og Gísli elska mömmu sína enn þrátt fyrir að miklum tíma og púðri hafi verið eytt í námið sem annars hefði verið varið með þeim. Ballið er ekki búið hjá þeim, elsku körlunum mínum, en vonandi gerir þetta nú okkur öllum gott, in the end.
Pabbi og bræður mínir, Arnar og Árni fá bestu þakkir fyrir alla aðstoðina. Pabbi hljóp oftar en ekki undir bagga með drengina þegar á þurfti að halda og það gerði Árni minn líka auk þess að skemmta mér með nærveru sinni í skólanum. Arnar minn hefur ótrúlegt langlundargeð og hefur verið boðinn og búinn til að aðstoða systur sína, ekki síst með hina langveiku fartölvu og á heiðurinn að hönnun hinnar smart tímalínu í lokaritgerðinni minni. Magga mágkona hefur sýnt þessu kvabbi mikla þolinmæði. Bestu þakkir bæði tvö, ég skil bara ekkert í því af hverju þið svöruðu alltaf númerinu mínu á þessu tímabili.
Edda, Inga Salóme, Guðný, Elísa, Gulla, Ingunn, Lilja og aðrar vinkonur í saumaklúbbunum mínum. Takk fyrir vináttuna og öll skemmtilegheitin. Þið eruð bestar og þegar ég flyt aftur heim ætla ég að bjóða ykkur oftar í mat því nú er ég orðin svo dugleg að elda.
Síðast en ekki síst verð ég að þakka mínum kæru samnemendum í stjórnmálafræðinni er gerðu þennan tíma ógleymanlegan. Ferðirnar okkar til Brussel og Bandaríkjanna standa upp úr öðru skemmtilegu og ef mig misminnir ekki, þá er í dag akkúrat ár síðan við flugum á vit ævintýranna til Washington og New York. Ó mæ god, hvað það var gaman.
Halla, Söndrurnar báðar, Stebbi og aðrir góðir félagar; þetta hefði svo sannarlega ekki verið eins án ykkar.
Lifið heil mín kæru...
Ykkar, McHillary.
laugardagur, október 22, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

13 ummæli:
Til hamingju með útskriftina, kæra siss. Mjög flott ræða hjá þér. Ég er viss um að allir eru mjög stolltir af því að hafa hjálpað þér að ná þessum mikla áfanga og finnist tímanum sem fór í það hafa verið vel varið :) Þú átt sjálf miklar þakkir skilið fyrir að gefa lífinu svo mikinn lit sem þú gerir og fyrir að vera vera alltaf til reiðu fyrir mann þegar maður er í einhverri flækju.
Haltu áfram að gera góða hluti.
Elsku besta Hildur
Innilega til hamingju með áfangann:-) Þú ert alveg ótrúlega dugleg og mátt með sanni vera stolt af sjálfri þér. Njóttu kvöldsins, heyri svo í þér fljótlega.
Guðný
Elsku elsku Hilly mín. Ég er orðin svo sentimental með aldrinum að ég sit hérna með tárin í augunum. En innilega hjartanlega til hamingju með áfangann. Það hefði svo sannarlega verið gaman að geta komið og samglaðst með þér í dag. Þú ert algjör hetja og ég er svo mikið stolt af þér á þessum merku tímamótum. Ég er svo sannarlega rík að eiga þig fyrir vinkonu.
Bestu kveðjur frá klakanum og knús og kram og sendu mínar bestu kveðjur til mömmu þinnar.
Þín vinkona Inga Salóme
Hildur Stjórnmálafræðingur og mesti dugnaðarforkur sem ég hef kynnst! INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ TITILINN og að hafa tekist svona vel upp með alla þá vinnu sem liggur að baki. Haldi þér áfram að ganga svona vel. Vonandi fáum við aðeins að sjá þig um jólin.
kv. Ásta
Innilega til hamingju með þennan stóra áfanga, verst að geta ekki fagnað deginum með þér. Þú ert nú einhver sá mesti dugnaðarforkur sem ég veit um og kjarnakona mikil :)
Enn og aftur til hamingju :*
Elsku hjartans Hildur mín!!!
CONGRAT með þetta allt saman! Ég tek undir með hinum að þú ert ein sú duglegasta og vandaðasta stelpa sem ég hef kynnst og mér þykir svo mikið undirvænt um þig.
Knús og kveðja til háttvirts stjórnmálafræðings.
Elsku Hilla mín!
Innilega til hamingju með áfangann!!
Mikið óskaplega máttu vera ánægð með þá ákvörðun þína að hætta að pikka inn sögur af fólki með hor og slef í Mjóddinni og drífa þig í nám :-)
Þetta er alveg meiriháttar hjá þér!!
Innilegar hamingjuóskir.
þú ert snillingur :) tek undir með stelpunum að maður er að springa úr stolti :o).
Elsku frú Hildur stjórnmálafræðingur, til lukku með titilinn! Rosa ertu dugleg mar, maður fær nú bara nettan móral að vera bara með "má bjóða þér eitthvað að drekka/would you like something to drink?" fræðin hérna megin.. Maður þarf nú að vera ofsalega vel gefinn til að geta ropað því rétt út úr sér, það skal ég segja þér! Þú ert líka frábær penni og ég kíki á síðuna daglega. Flott að útskrifast á kvennréttindadaginn sjálfan, til lukku með það líka. Njóttu slúðursins, maður hefur stundum mjög gott af því að vita hvernig Kate Moss gengur í afvötnunni og hvort að Gwyneth Paltrow sé í alvöru ólétt aftur?!
Knús, Harpa.
Elsku Hildur mín,
Innilega til hamingju með prófið....það er nú ekki amarlegt að geta sagt að maður þekki stjórnmálafærðing!! Enn og aftur til hamingju og gangi þér allt í haginn með námið. Þú ert alveg frábær penni.
Kv. Bryndís
Já Hildur mín, þú ert eldklár og mikill dugnaðarforkur, það verður ekki af þér tekið! Það eru ekki margir sem farið hefðu með þvílíkum stæl og þú hefur gert í gegnum þetta nám, með þrjú börn á bakinu - þar af eitt alveg sérstaklega erfitt :-) Fyrir það elska ég þig -
Hrmpf....það er búið að segja það allt hér að ofan. Ég er tímanlega sem endranær sjáðu. Tek undir þetta allt tífalt! Þú ert bara best og ég sakna þín hrikalega.
Takk takk takk takk, hvað þið eruð yndislega góð við mig, ég fer bara að skæla yfir því hér og nú hvað ég er lánsöm að eiga svona góða að, hvað getur maður beðið um meira...elska ykkur öll!!!
Skrifa ummæli