fimmtudagur, október 20, 2005

Og það er næstum aftur föstudagur!

Á morgun skila ég verkefninu mínu sem ég er ennþá eitthvað að fínpússa. Þoli það ekki hvað maður getur ekki látið þetta vera þó maður sé búinn með þetta, þess vegna er kannski bara best að byrja á síðustu stundu.

Ég kom hálf klaufalega út úr samtali er ég átti við eina samstúdínu mína í skólanum. Þetta var í gærmorgun og ég mætti rétt passlega til að hlassa mér hliðina á einni af amerísku stelpunum sem ég kann svo ágætlega við. Og þar sem ég er nú öll að koma til svona samskiptalega fannst mér alveg liggja beint við að forvitnast um hennar hagi.
Jæja og hvar býrðu svo spurði ég og hún sagði mér það án þess að ég áttaði mig nú á staðsetningunni. Er þetta stúdentagarður eða leigðirðu prívat spurði ég áfram. Bara prívat sagði hún vinkona mín. Já og leigðirðu með öðrum stúdentum? Nei, með mínum partner svaraði hún stuttlega. Það er nice, sagði ég, er hann líka að læra? Nei, hún vinnur á bókasafninu sagði gellan. Úpps, það kom þögn áður en ég sagði vælulegt ókei og ég skammaðist mín samstundis fyrir hnýsnina og fór að hafa áhyggjur af því að þetta væri óþægilegt fyrir hana. Á sömu stundi byrjaði aðferðafræðitíminn og samtalsglugginn lokaðist.

Kannski finnst henni þetta svo bara ekkert óþægilegt, kannski er það bara ég sem er kramin og það að óþörfu. En eitt lærði ég á þessum litla dialog og það er í fyrsta lagi að vera ekki að rekja garnirnar úr fólki um persónuleg mál og númer 2 að ef ég geri það samt, þá ætla ég í framtíðinni að vísa í partnerinn en ekki gera sjálfkrafa ráð fyrir því að hann sé af gagnstæðu kyni.

Á morgun ætla ég að eiga frí... sofa frameftir og ætla ekki að líta í bók! Bara að gera eitthvað skemmtilegt með mömmu og strákunum en nú er komið að því að mamma kveður okkur því hún fer heim á sunnudaginn. Við verðum því að nýta vel tímann sem eftir er.
Grítings, Hilla

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bwahahahaha...það var nú samt gott að tíminn byrjaði þarna, ég heyri framhald samtalsins alveg fyrir mér ef af hefði orðið. Þú ert svo dæmalaust lagin við að blaðra bull. Eins og ég. Merkilegt alveg.

Nafnlaus sagði...

LOL þú náttlega getur EKKERT að þessu gert, þú ert bogmaður. Þeir lenda í svona aðstæðum.
Njóttu dagsins á dag, slappaðu af og gerðu eitthvað skemmtilegt.
knús
Inga Sa

McHillary sagði...

Já ef einhver er með MSc í bullumþrull þá erum það við Edda mín. Það er hárrétt hjá þér, þetta hefði orðið svona MöBj situation ef mér hefði ekki verið saved by the bell. En svo er það kannski rétt hjá Ingu að þetta eru bara bogmannsörlögin. Vona að þið eigið geðveikt góða helgi, elskurnar mínar...