Kærar þakkir fyrir hamingjuóskir í kommentunum mínum, ég hringdi á skrifstofu Félagsvísindadeildar í gær til að fá það nú staðfest að ég hefði örugglega útskrifast, fór allt í einu að hafa áhyggjur af því að ég skuldaði sekt á Bókhlöðunni eða eitthvað álíka.
Við áttum hreint ágætan en rólegan dag á laugardaginn. Höfðum smá kaffi hérna heima, gáfum mömmu afmælisgjöf og röltum aðeins í bæinn. Það var skipulagður Íslendingahittingur á laugardagskvöldið og við létum aðeins sjá okkur þar. Íslendingarnir hér virðast ekki gera mikið af því að hittast fyrir utan árlegt þorrablót. Þetta var því smá undantekning. Þar hittum við fólk sem er búið að búa hér í nokkur ár og hefur ekkert samband við aðra landa sína hér. Fólk vill bara fá að vera í friði. Þessir sem eru fastbúsettir hér virðast ekki vera á heimleið, geta ekki hugsað sér dýrtíðina, pólitíkina og lífsgæðakapphlaupið. Ég er svolítið sammála þó ég sé ekki búin að vera nógu lengi til að vera komin með alvöru heimþrá. Í fyrsta skipti síðan ég hóf búskap er ég ekki orðin peningalaus um miðjan mánuð. Nú á ég m.a.s. bara afgang um mánaðarmót. Öðruvísi mér áður brá. En ég ætla nú hvorki að þreyta ykkur á heimilisbókhaldinu né á því að fara ræða þreytta pólitíkusa.
Svo fór mamma heim á sunnudaginn. Það tók dálítið á okkur og það var frekar niðurlút þrenning er hélt heim frá flugvellinum í Glasgow á mjög svo gráum rigningardegi. Við hlökkum hins vegar mikið til að fá Arnar, Möggu og Elvar Orra á morgun!!! Þau ætla að vera hjá okkur fram á sunnudag og mikil er eftirvæntingin, ekki síst eftir litla prinsinum okkar.
Bið að heilsa í bili, Hilla
þriðjudagur, október 25, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
hæ mamma þetta er Gísli bara þurfum að jafna okkur á að amma er farinn atfur orðinn þrjú en bara gangi þér vel með síðuna kv.Gísli
Takk elsku Gísli minn, þú ert algjör draumur, við jöfnum okkur á þessu í sameiningu...
Ég verð nú að segja af minni "miklu" reynslu af utanfararbúskap að ég myndi nú heldur vilja aðlagast landi og þjóð enn búa í íslendingakommúnu. Þannið að ég skil vel að fólk vilji halda sig svoldið privat. Skil vel að það sé viðbrigði að m/amma sé farin. En það styttist svo í jólin og þá er fyrirhuguð mæting á klakann er það ekki?
Kveðja Inga
já við gerum það mamma kv.Gísli
Skrifa ummæli