Jæja, haldiði að bréfið frá barnfóstru skrifstofunni hafi ekki komið í síðustu viku. Það var engin smáræðis lesning með allskonar skilmálum sem ég þarf að skrifa undir sem “vinnuveitandi”. Þetta er ekkert gaman mál. Ég fæ náðsamlegast að sleppa við að reikna út skatt af tekjum “launþegans” sem ég er að ráða í vinnu af því að ráðningartíminn er aðeins hálfur mánuður. Ég sá það fyrir mér að ég þyrfti að fara skila skattpeningum umslagi til The Council. Þetta er allt saman mjög professional, en kemur manni svolítið spánskt fyrir sjónir. Ekki síst “The Charter of Rights” sem fylgir ráðningarsamningnum. Ég skil það þannig að þessi réttindakafli sé bæði fyrir mig og launþegann minn. Ein réttindin sem ég sem sagt hef öðlast eru Realising your Potential og hljóma eftirfarandi: We will do whatever is in our power to help you achieve what you want from life. Það er ekkert smá háleitt verð ég að segja.
Þessi vika er fimmta vikan mín í skólanum af tíu. Önnin er sem sagt hálfnuð. Svo eigum við að skila ritgerðum fyrir 16.desember og þá er ég komin í jólafrí. Ú hvað það verður gaman. Þá verður Keli minn hérna og við getum jólast hérna saman þangað til við komum heim á Þorláksmessu. Þá verður nú mikið stuð og Keli minn, ef þú ert að lesa, það sem við getum nú skemmt okkur í búðunum saman minn kæri, múhahahahaha...
Bestu kveðjur, Hildur employer.
þriðjudagur, október 18, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

7 ummæli:
Gvöööð... nú langar Kela örugglega til að koma eina aukaferð út... svona til að þjófstarta búðarrápi. Bwahahahaha!
Líst mér vel á þessa barnfóstruþjónustu. Þetta er allt svo profesjónal og elegant. En þér hefur ekki dottið í hug að hengja bara upp miða úti í sjoppu? það er kannski ekki svo góð hugmynd, hmmmmm.
Later Hillí mín.
Hvernig fór þetta í tímanum í gær? Varstu ekki svoldið málefnaleg að útskýra ástæðu atvinnuþátttöku danskra kvenna. Ég verð eiginlega að segja að þessar ströngu reglur í UK eru augljóslega fremur heftandi. En kannski er þetta nauðsynlegt.
kv
Inga danska
Hæ görlís. Jú, ég gat komið með innlegg um þetta, að það að geta skilið eftir stálpaða krakka heima e. skóla auðveldaði atvinnuþáttöku kvenna í Skandinavíu enda kemur í ljós að konur með 2 og fleiri börn eru miklu fremur í hlutastörfum í UK.
Sem mér finnst ekkert undarlegt þar sem þú þarft að vera milljónamæringur(eða því sem næst) til að hafa efni á barnagæslu. Þannig að ég gat aðeins úttalað mig um þetta.
Veit ekki með miðann út í sjoppu...svei mér þá,en er að hugsa um eftir áramót að auglýsa niðri í skóla. Það kannski vill einhver fátækur stúdent taka að sér aukavinnu hjá Hillu milljóner.
bestu kveðjur til ykkar, hildur
Ef hann Keli er eitthvað líkur þeim körlum sem ég þekki þá er hann örugglega byrjaður að fá stórmarkaðsverki og kvíðaköst vegna fyrirhugaðra búðarferða ;)
Verslunarkveðjur :o)
Það gleður mig ósegjanlega að þú skulir loksins vera farin að huga jólaversluninni, Hildur mín. Mér var bara ekki orðið um sel - komið langt fram í október og ekki eitt múkk um jólainnkaup - það hefði nú einhverntíma þótt saga til næsta bæjar!
Stelpur! ég get sagt ykkur það að það er sko ekki neinn "stórmarkaðskvíði" á þessum bæ - ó nei. Það getur ún Hildur mín vitnað um að á Íslandi finnst ekki annar eins garpur til verslunar og undirritaður - já.. sennilega bara ekki í þessum heimshluta!
EF þið hefðuð séð okkur í fyrra - þegar við í sameiningu tróðum niður 15 manns til að koma okkur inn í Smáralindina - og þegar við samtaka og einbeitt tókumst í hendur eins og handboltalið fyrir leik og hrópuðum: "o-o-o-og berjast!! áður en við ruddumst af stað með kortin á lofti.
OG EF..þið hefðuð heyrt mig fara með jólaverslunar-hvatingar-möntruna (sem er á þessa leið. já-jú, vaá!, æði!, nau-nau! frábært!, virkilega smart, auðvitað!, ekki spurning!, þú ert ekkert smá góð í að spara!) samfleytt í 16 klukkustundir án þess að anda á milli - þá væri nú kannski minna um múha-ha-ha og bwa-ha-ha-ha...Ha!?
Og nóta bene - tvehnní-for-seven í topp-jólaskapi...og þegar ég segi jólaskap þá meina ég sko JÓ-LA-SKAP - í samaburði við mig er jólasveinninn ekkert annað en helv. fýlupoki!
Mig minnir allavegana að síðustu jólainnkaup hafi verið með þessu sniði...og ég er viss um að Hildur staðfestir það...Það er ekki spurning!
Kv.
Keli - Powershopper
Er hægt að fá þig lánaðann í jólainnkaupin, Keli minn ? Gott að hafa vana menn með sér í svona alvarlegum innkaupum sem jólainnkaupin eru...Og að maður tali nú ekki um að fá hvatningarorð líka, sbr. "þú ert ekkert smá góð í að spara!". Sweet music to a shoppers ear ;)
Hann Arnar er ekki svona aktífur á þessum sviðum, hann er þegar farinn að hafa áhyggjur af því að ég sé að komast í tæri við allar búðirnar í Edinborg ;)...mú ha ha ha ha....
Gvvöööð, Keli minn, þú hefðir nú ekki átt að opinbera svona jólainnkaupsgleðina, nú verður bara rifist um þig í pokaburð og hvatningar, ég er viss um að Arnar og Valtýr gefa báðir eftir hlutverkið áður en hægt er að segja simmsalabimm...
Skrifa ummæli