miðvikudagur, október 05, 2005

Foreldrakvöld...

Þakka ykkur kærlega fyrir kveðjurnar í kommentunum mínum. Mér finnst ægilega gaman að fá komment. Ég er líka búin að fá nokkrar kveðjur í emailum, takk takk kærlega fyrir það. Þetta færir mig nær ykkur kæru vinir og vandamenn. Sem er svo huggulegt.

Ég er nýkomin heim af parent consultation. Það er einu sinni á önn. Og það er sko ekkert verið að gefa grísunum heilan frídag í skólunum, neinei.. hér tekur hver kennari á móti foreldrum, ca. 30 barna, eftir vinnu í dag og á föstudaginn. Í kvöld átti ég að hitta kennarann hans Daníels. Ég held að hann verði að til 9 í kvöld og ég var bara alveg í mínus yfir þessu vinnuálagi. Hann var samt ekki vitund þreytulegur. Svo eru öll viðtölin í stórum sal! Hver kennari er bara með lítið borð og svo bíða foreldrarnir bara á stól þangað til næsti er búinn. Og í salnum eru allir kennararnir í skólanum. Ég held að ég hafi einhvern tíma séð þetta í bíó, mér fannst þetta allavega eitthvað kunnuglegt. Þetta tryggir vissulega að viðtölin dragist ekki á langinn. En það þurfti svo sem ekkert að orðlengja þetta neitt. Drengurinn minn er til fyrirmyndar. Ekki minnkaði hólið þegar ég hitti deildarstjóra árgangsins en hún ljómaði eins og sólin. Daníel er ekki bara “lovely boy” heldur er hann líka “such a credit to the school”. Það er bara ekkert annað. Mig langar að senda þetta statement í tölvupósti til Foldaskóla, með afriti á nokkra vel valda einstaklinga. Ég meina það. Ég ætla nú samt að hlífa ykkur við löngum pistli um hvað íslenskir skólar gætu lært af því starfi er við erum að kynnast hér. Ég verð óþolandi þegar við komum heim. Þess vegna er kannski bara best að við komum ekkert heim...

Eitt í viðbót. Ég var að fá rosa kredit frá leiðbeinandanum mínum fyrir ritgerðina. Ég er alveg í skýjunum....nú bara bíð ég spennt eftir einkuninni en það er vonandi að prófdómarinn verði eins imponeraður.
Kveðjur og kossar, Hildur

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ó herregud ! endilega segðu okkur frá skoska skólakerfinu, ég sé alveg í hillingum agann sem ku ríkja í þarlendum skólum...væri sko alveg til í að taka upp svoleiðis á þessi xxxxxxxx sem ég er að kenna :/
Til hamingju með kreditið fyrir ritgerðina, þú ert soddan snilli ;)
Kveðja

Nafnlaus sagði...

Mikið er nú gaman að fylgjast með þér Hillary mín og haltu áfram að vera svona dugleg að skrifa.
Frábært að þú skulir vera að fá gott kredit frá leiðbeinandanum en ég bjóst svo sem ekki við neinu öðru. Þú ert svo rosalega samviskusöm og gáfuð ung kona :)
Gulla

Nafnlaus sagði...

Kúúúl sister! til hamingju með allt saman... "credit to the school!" hvað getur maður beðið um meira? mar bara spyr! Goood hvað ég er spennt að heyra meira með ritgerðina þína! *voni voni* að Hr. prófdómari sjái þína einskæru snilld í réttu ljósi.
Later Hillígater!

Nafnlaus sagði...

Kúúúl sister! til hamingju með allt saman... "credit to the school!" hvað getur maður beðið um meira? mar bara spyr! Goood hvað ég er spennt að heyra meira með ritgerðina þína! *voni voni* að Hr. prófdómari sjái þína einskæru snilld í réttu ljósi.
Later Hillígater!

Nafnlaus sagði...

Ég er nú ekkert hissa á því Hildur mín að þú fáir gott kredit fyrir ritgerðina, enda er þetta náttlega bara ritgerð á Masters-leveli. Þannig að það er eins gott að þeir gefi þér dísent einkunn. Sem ég reyndar efast ekkert um. Til lukku dear. Inga S

Nafnlaus sagði...

Dúddamía... ég var bara svo spennt yfir þessu öllu að ég kommentaði tvisvar... ræð ekki við mig í dag!